Fjármálakastið

Fjármálakastið

By FjármálakastiðBusiness
Download on the App Store

Fjármálakastið episodes

  • Þáttur 21 - Viðtal við Ragnar Árnason, prófessor emeritus við HÍ

    Í þessum þætti ræðum við um kostnað vegna umferðartafa en samkvæmt nýlegri rannsókn sem gerð var fyrir Samtökin samgöngur fyrir alla með stuðningi frá Rannsóknarmiðstöð um samfélags og efnahagsmál kemur fram að við töpum um 60 milljörðum á umferðartöfum. Til að ræða um þessi mál fékk ég til mín hann Ragnar Árnason, prósessor emeritus, við Háskóla Íslands og formann Rannsóknarráðs RSE.

    21 min
  • Þáttur 19 - Viðtal við Andreu Sigurðardóttur, fyrrum blaðamann á Viðskiptablaðinu

    Í þessum þætti er rætt um Íslandsbankaútboðið. Þann 22. mars seldi ríkið 22,5 prósent hlut í Íslansbanka til 207 fjárfesta á tæpa 53 milljarða króna. Þar með er ríkið ekki lengur meirihluta eigandi að bankanum en eftir söluna þá á ríkið 42,5 prósent í bankanum en einkaaðilar 57,5 prósent. Til að ræða um útboðið fékk ég til mín hana Andreu Sigurðarsdóttur, fyrrum blaðamann á Viðskiptablaðinu. 

    26 min
  • Þáttur 16 - Viðtal við Elísu Örnu Hilmarsdóttur, aðalhagfræðing Viðskiptaráðs

    Í þessum þætti er rætt við Elísu Örnu Hilmarsdóttur, aðalhagfræðing Viðskiptaráðs. Elísa er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og var nýverið ráðin sem annar tveggja aðalhagfræðinga Viðskiptaráðs en hún starfaði áður hjá Seðlabankanum. Í þættinum er rætt um helstu áskoranirnar í íslensku efnahagslífi á þessu ári, kjaramálin, sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda, stýrivexti, fasteignamarkaðinn, samfélagsbanka og ýmislegt fleira.

    27 min
  • Þáttur 14 - Viðtal við Jón Sigurðsson, fráfarandi forstjóra Össurar

    Í þessum þætti er rætt við Jón Sigurðsson, fráfarandi forstjóra stoðtækjafyrirtækisins Össurar. Jón tók við forstjórastól Össurar fyrir rétt tæpum 26 árum en mun láta af störfum í apríl á næsta ári. Í þættinum er rætt um feril Jóns og tíð hans í forstjórastól Össurar. Þá er jafnframt rætt um vöxt Össurar í gegnum árin, hvað stuðlaði að velgengni fyrirtækisins og ýmislegt fleira. 

    28 min
  • Þáttur 13 - Viðtal við Sólveigu Gunnarsdóttur, eiganda Sólveig Consulting

    Í þessum þætti er rætt við hana Sólveigu Gunnarsdóttur, eiganda Sólveig Consulting. Sólveig er með BSc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Hult International Business School. Þá er hún einnig með próf í verðbréfaviðskiptum. Sólveig hefur starfað í 12 ár á fjármálamarkaði og hefur starfað sem stjórnarmaður en rekur nú sitt eigið fyrirtæki Sólveig Consulting en þar ráðleggur hún fyrirtækjum og einstaklingum í fjármálum. Í þættinum er meðal annars rætt um fjármál fyrirtækja og einstaklinga, atferlisfjármál en einnig það sem stóð upp úr í viðskiptalífinu á árinu sem er að líða og horfur á næsta ári. 

    30 min
  • Þáttur 12 - Viðtal við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, forstöðumann efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins

    Í þessum þætti er rætt við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, forstöðumann efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. Anna Hrefna er hagfræðingur og hefur lengi starfað við efnahagsgreiningar. Í þættinum er meðal annars rætt um fjárlögin, brýnustu verkefni nýrrar ríkisstjórnar, fjölgun opinberra starfsmanna og ýmislegt fleira en einnig er rætt um þær efnahagslegu áskoranir sem við stóðum frammi fyrir á árinu sem er að líða og þau verkefni sem bíða okkar á nýju ári. 

    24 min

About Fjármálakastið

From the publisher's feed

Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu…

More shows like Fjármálakastið

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

ILLVERK Podcast by Inga Kristjáns

ILLVERK Podcast

122 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Íslenski Draumurinn by Íslenski Draumurinn

Íslenski Draumurinn

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners