Lestin

Floni, Le Grand Bain, Vice, J Dilla, lýðræðishugtakið


Listen Later

Tónlistarmaðurinn Floni vakti fyrst athygli innan hiphop og rappsenunnar með útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar árið 2017. Í síðustu viku gaf hann út aðra breiðskífu sína, Floni 2. Lestin kynnir sér plötuna nánar í þætti dagsins - Floni tekur sér far með Lestinni og leyfir hlustendum að skyggnast inn í hugarheim sinn og tónlistarsköpun. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um opnunarmynd Franskrar kvikmyndahátíðar, Le Grand Bain, Að synda eða sökkva, gamanmynd sem fjallar um átta miðaldra karlmenn í tilvistarkreppu sem stunda samhæfða sundfimi og stefna á heimsmeistaramót. Marta fjallar einnig um kvikmyndina Vice eftir leikstjóra kvikmyndarinnar The Big Short, Adam McKay, mynd sem fjallar um ævi og störf valdamesta varaforseta Bandaríkjanna, Dick Cheney. Bandaríski upptökustjórinn, taktsmiðurinn og rapparinn J Dilla hefði orðið 45 ára á dögunum en hann lést árið 2006. Dilla hefur verið kallaður Mozart rappsins en aðdáendur hans og fylgjendur fagna svokölluðum Dilla degi þann 6. febrúar. Stiklað verður á stóru um feril J Dilla og rætt við Magnús Tryggvason Eliassen, trommara í Dillalude, íslenskri hljómsveit sem tileinkuð er meistaranum. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um mörk lýðræðishugtaksins og hvort unnt sé að víkka þau út og gera hið efnahagslega að hinu pólitíska.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

LestinBy RÚV

  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8

4.8

5 ratings


More shows like Lestin

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

20 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

27 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

4 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners