
Sign up to save your podcasts
Or


Kvikmyndagerðamaðurinn, framleiðandinn og ljósmyndarinn Davíð Goði Þorvarðarson er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.
Davíð Goði er 27 ára gamall og fyrir ári síðan var veröld hans snúið á hvolf. Hann greindist með óútskýrðan sjúkdóm en fyrir það hafði hann alla tíð verið heilsuhraustur.
„Ég er í rauninni eini á landinu sem er með þetta og mögulega bara einn af þeim fáu í heiminum. Það eru ekki til nein dæmi sem læknarnir fundu sem var eins og mitt tilfelli,“ segir hann.
Davíð fór í mjög þunga og erfiða meðferð í Svíþjóð. Fyrir það fékk hann að vita að það væru 99 prósent líkur að hann yrði ófrjór eftir meðferðina, sem var mikið áfall þar sem hann og konan hans voru búin að ákveða að hefja barneignir á árinu. Honum tókst að frysta sæði hjá Livio en hjónin fengu einn mánuð, eina tilraun til að eignast barn með náttúrulegum hætti fyrir meðferðina. Það tókst og hugsaði Davíð til ófædda sonar síns þegar hann lá í sjúkrahúsrúminu í Svíþjóð í baráttu um að lifa af. Hann lítur nú björtum augum fram á veginn og bíður spenntur eftir nýju hlutverki, föðurhlutverkinu.
Helgi Jean Claessen, hlaðvarpskóngur, lífsstílsþjálfi og rekstrarmaður, rakst harkalega á vegg miðlífskrísunnar árið 2023. Síðasta ár fór í að vinna sig í gegnum krísuna og kom hann út úr henni sterkari en nokkurn tíma áður. Hann aðstoðar nú aðra sem eru að ganga í gegnum erfiðleika, en hann tekur að sér lífsstílsþjálfun fyrir hópa, auk þess að vera annar umsjónarmaður vinsæla hlaðvarpsins Hæhæ – Ævintýri Helga og Hjálmars.
Heilsumarkþjálfinn Erla Guðmundsdóttir er gestur í fyrsta þætti ársins. Við ræddum um áramótaheit en flestir gefast upp á fyrstu vikum ársins. Erla gefur hlustendum góð ráð til að standa við markmiðin. Hún ræðir einnig um mismunandi þætti heilsu, „heilsusérfræðinga“ á netinu og ýmislegt annað, eins og hvers vegna konum á besta aldri gengur oft illa að létta sig.
Erla ræðir einnig einlæg um það þegar hún klessti á vegg og tókst að koma sterk til baka, meðvituð um rauðu flöggin.
Allt þetta og meira í nýjasta þætti af Fókus.
Spákonan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í þessum skemmtilega þætti. Við fengum hana til að spá fyrir mörgum landsþekktum einstaklingum eins og fyrrverandi forsetahjónunum, Valkyrjunum, Katrínu Jakobsdóttur, Þórði Snæ Júlíussyni, World Class-fjölskyldunni, Línu Birgittu og Gumma Kíró, Sveindísi Jane og fleiri!
Eygló Mjöll Óladóttir er gestur vikunnar í Fókus. Hún er fjögurra barna móðir, það elsta er átta ára og það yngsta er fimm mánaða. Hver meðganga og fæðing var öðruvísi.
Hún segir einnig frá upphafi sambands hennar og unnusta hennar, en þegar þau kynntust sat hann inni á Litla-Hrauni og fór fyrsta stefnumótið fram innan veggja fangelsisins.
Eygló opnar sig einnig um erfiðleika og hvernig hún notaði sjálfsskaða til að losa um erfiðar tilfinningar.
Hún ræðir um allt þetta og meira í þættinum.
Fatahönnuðurinn Anton Bjarki Olsen er gestur vikunnar í Fókus. Hann gaf út forvorlínu fyrir 2025 út í byrjun desember. Línan er mjög persónuleg fyrir hann en hann greindist með mjög sjaldgæfa tegund krabbameins í miðju sköpunarferli.
Í sumar kom í ljós að æxli, sem læknar höfðu áður sagt að væri góðkynja, væri illkynja. Á þeim tímapunkti hafði Anton verið með æxlið það lengi í fætinum að hann væri viss um að það væri búið að dreifa sér um líkamann. Hann viðurkennir að reiði hafi blossað upp, fyrir að hafa verið misgreindur en sem betur fer fór allt vel. Hann fór í öfluga geislameðferð og horfir björtum augum til framtíðar.
Hún eignaðist dóttur sína með aðstoð nútímatækni í janúar. Hún segir lífið leika við þær mæðgur og að það sé yndislegt að vera móðir.
Svava Kristín er það sem er kallað „einstök“ móðir, þar sem ekkert annað foreldri er í myndinni og segir hún að þó hún einblíni á það jákvæða þá sé það auðvitað líka krefjandi.
Götustrákurinn Aron Mímir Gylfason, eða Ronni Turbo Gonni eins og hann er þekktur á samfélagsmiðlum, hefur gengið í gegnum dimma dali til að komast á þann stað sem hann er í dag. Hann ræðir í þættinum um æskuna, upphaf neyslunnar og vítahringinn sem hann fann sig í.
Þegar hann var tvítugur átti hann von á barni og sá spenntur fyrir sér föðurhlutverkið. Barnið fæddist andvana eftir tuttugustu viku og var það mikið áfall. Hann deyfði sig með áfengi og fíkniefnum og við tók fjögurra ára dagneysla.Honum tókst síðar að vera edrú en féll í ferð til Tenerife. Í þættinum ræðir hann um dópsenuna á Tenerife, steranotkun ungra drengja á Íslandi og hvernig allt breyttist eftir að hann sótti sér sálfræðiaðstoðar og vann í sínum málum.
Í dag leikur lífið við Aron sem mun fagna þriggja ára edrúafmæli í desember og eignast barn í janúar með kærustu sinni.
Birna Ólafsdóttir hefur um skeið barist fyrir réttindum aðstandenda fanga, sér í lagi barna fanga, en málefnið stendur henni nærri.
„Þetta snertir mig persónulega því maðurinn minn situr inni, faðir barnanna minna,“ segir hún.Eiginmaður Birnu, Ólafur Ágúst Hraundal, var dæmdur til tíu ára fangelsisvistar í fyrra fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi.
Hann var handtekinn í maí 2022 í saltdreifaramálinu svokallaða og hefur setið inni síðan.
Þjálfarinn og fitness-keppandinn Valentína Hrefnudóttir er gestur vikunnar í Fókus. Í þættinum ræðir hún um fortíðina, áföll og sjálfsvinnuna sem hefur gert henni að þeirri konu sem hún er í dag. Mikið hefur gengið á í lífi Valentínu, hún hefur glímt við átröskun og fíknivanda en náði bata og er í dag edrú og heilbrigð. Á barnsaldri varð hún fyrir ofbeldi og sleit samskiptum við blóðföður sinn þegar hún var ellefu ára gömul. Tíu árum seinna steig hún fram og greindi frá ofbeldinu og kærði hann.
Valentína ræðir einnig um alvarlegt bílslys sem hún lenti í árið 2019. Í tvo daga var henni vart hugað líf og var það kraftaverk þegar hún vaknaði úr dái. Hún var lengi að jafna sig og var hreyfihömluð á olnboga í fimm ár, allt þar til hún var á æfingu í sumar og eitthvað small.
Valentína segir sögu sína einlæg, hún ræðir einnig um fitness-lífið og lífið eftir sjálfsvinnuna.
From the publisher's feed

215 Listeners

121 Listeners

131 Listeners

91 Listeners

18 Listeners

17 Listeners

70 Listeners

30 Listeners

22 Listeners

14 Listeners

6 Listeners

6 Listeners

27 Listeners

12 Listeners

3 Listeners