Fókus
Download on the App Store

Fókus episodes

  • Sara Lind: Ástar- og kynlífsfíkn

    Kynlífsfræðingurinn Sara Lind er gestur vikunnar í Fókus. Hún sérhæfir sig í ástar- og kynlífsfíkn en hún er sjálf ástar- og kynlífsfíkill og hefur þurft að leggja mikla vinnu í að koma sér úr hegðunarmynstrinu sem hafði mikil áhrif á líf hennar.

    Hún ræðir einnig um skömm tengda kynlífi og lífið í Danmörku.

    30 min
  • Bjarki Steinn – „Upplifunin var að ég rétt náði að lifa þetta af“

    Bjarki Steinn Pétursson var um átta ára gamall þegar ókunnugur karlmaður braut á honum á fótboltavellinum á skólalóðinni. Hann segir frá brotinu og afleiðingum þess en hann fékk enga áfallahjálp og hélt áfram að ganga í skólann, gekk framhjá staðnum, þar sem honum fannst lífi sínu ógnað, á hverjum degi. Eftir þetta fór að halla undan fæti, hann byrjaði snemma að drekka og neyta fíkniefna, sem hann segir hafa verið ákveðna björgun frá sjálfsskaða og sjálfsvígshugsun á sínum tíma, þar til neyslan fór að vera önnur tegund af sjálfsskaða.

    Fyrir nokkrum árum breyttist allt. Hann varð edrú, kynntist hugvíkkandi efnum og vann úr áföllum. Hann kom út sem trans maður og hóf ferlið sem hann ræðir nánar í þættinum.Bjarki hefur undanfarin fjögur ár sótt sér menntun í undirbúning og eftirvinnu tengt notkun hugvíkkandi efna. Hann ræðir um hugvíkkandi ferðalög, mikilvægi undirbúnings og áhætturnar.

    Allt þetta og mikið meira í Fókus.

    1 hr 2 min
  • Selma Soffía - Sjálfsvinna eftir ofbeldissamband

    Hlaðvarpsstjórnandinn og athafnakonan Selma Soffía Guðbrandsdóttir er gestur vikunnar í Fókus.

    Í þættinum segir hún frá sambandi sem hún var í frá 16 til 23 ára. Þetta var á erfiðum tíma, mikilvægum mótunarárum, og hafði mikil áhrif á Selmu. Hún var ung og hélt að svona ætti ást að vera, að það væri enginn annar þarna úti fyrir hana og þetta ætti hún skilið.

    Hún leyndi ofbeldinu, sem hún segir hafa mest verið andlegt en einnig líkamlegt, fyrir fjölskyldu sinni og gleymir ekki þegar hún var að útskrifast úr MS og þurfti að hylja annan handlegginn því hann var svo blár og marinn eftir þáverandi kærasta.

    Henni tókst að slíta sambandinu eftir atvik þar sem ekki var hægt að leyna þessu lengur. Hún flutti erlendis og segir að hún hafi einfaldlega verið að flýja land. Þar með hófst sjálfsvinnan sem hefur skilað henni á þann stað sem hún er í dag.

    Hún er hamingjusöm í heilbrigðu sambandi, veit hver hún er og hvað hún vill. Hún lætur álit annarra ekki hafa áhrif á sig, enda ekki að lifa lífinu fyrir þá, heldur sig sjálfa.

    46 min
  • Fegurðardrottningin Elísa Gróa – Kom sér upp úr dimmum dal

    Fegurðardrottningin Elísa Gróa Steinþórsdóttir er gestur vikunnar í Fókus. Hún er einnig aðstoðarframkvæmdarstjóri Ungfrú Ísland, yfirflugfreyja hjá Play og förðunarfræðingur.

    Elísa tók þátt í sinni fyrstu fegurðarsamkeppni árið 2015 og vann loksins árið 2021. Í dag lifir hún og hrærist í bransanum. Hún er sviðshöfundur Ungfrú Ísland og tók við sem aðstoðarframkvæmdastjóri keppninnar í nóvember í fyrra.

    Í þættinum ræðir hún um fegurðarsamkeppnabransann og að gefast ekki upp. Hún opnar sig um þrautseigju, erfiðleika, jákvæðni og ástina. Allt þetta og mikið meira í Fókus.

    35 min
  • Götustrákurinn Bjarki Viðarsson: Reis upp úr öskunni eftir kókaín- og klámfíkn, smálánaskuldasúpu og sjálfshatur

    „Það er ótrúlegt að fá að upplifa venjulegt líf,“ segir Bjarki Viðarsson, gestur vikunnar í Fókus.

    Hann skaust fram á sjónarsviðið fyrir einu og hálfu ári síðan þegar fyrsti þáttur af Götustrákum kom út. Síðan þá hefur hann nýtt vettvanginn til að tala um erfiða hluti, hluti sem margir þora ekki að tala um, jafnvel ekki við sína nánustu. Eins og baráttu hans við kókaín- og klámfíkn. Djúpa sjálfshatrið sem hann fann nær alla sína ævi og skuldasúpuna sem honum tókst að koma sér út úr.

    Hann segir verra að skulda smálánafyrirtæki en dópsala, því maður getur allavega gert samning við dópsalann.

    Allt þetta og svo mikið meira í nýjasta þætti af Fókus.

    49 min
  • Móeiður Sif – Bati eftir átröskun, fitness og flugfreyjulífið

    Flugfreyjan og fitnesskeppandinn Móeiður Sif Skúladóttir er gestur vikunnar í Fókus. Í þættinum ræðir hún um flugfreyjulífið, hvað hún myndi aldrei gera um borð í flugvél, hvað hún gerir við flugdólga og svo framvegis. Hún ræðir einnig um fitness og átröskun sem hún glímdi við í næstum einn og hálfan áratug.

    31 min
  • Pálína Ósk Ómars - Símtal frá lögreglunni strax eftir fæðingu vakti upp erfiðar minningar

    Snyrtifræðingurinn og athafnakonan Pálína Ósk Ómarsdóttir er gestur vikunnar í Fókus. Í þættinum opnar hún sig um fæðingarþunglyndi, nauðgun sem hún varð fyrir og hvernig sú reynsla breytti henni til frambúðar. Hún ræðir um dómsmálið og árin þrjú sem fóru í að leita réttar síns sem enduðu með gerandann í fangelsi. Pálína ræðir einnig um líkamsímynd, samfélagsmiðla, fegrunaraðgerðir og margt annað. 

    1 hr 2 min
  • Lína Birgitta

    Athafna- og ofurkonan Lína Birgitta Sigurðardóttir er gestur þáttarins. Hún ræðir um upphaf Define the Line, fyrsta fyrirtækið hennar sem fór í gjaldþrot og hvernig hún fann sig loksins í námi eftir að hafa átt mjög erfiða skólagöngu.

    Lína opnar sig einnig um veikindi og hvernig hún er að tækla þau í dag. Ásamt því hvernig er að vera þekkt manneskja í sambandi með þekktri manneskju á þessu litla landi. Allt þetta og svo margt meira í Fókus.

    36 min
  • Steinunn Ósk – Vildi sleppa feluleiknum þegar hún fór í meðferð

    Steinunn Ósk Valsdóttir er áhrifavaldur, förðunarfræðingur, hlaðvarpsstjórnandi, markaðsstjóri og stílisti.

    Hún er einnig þriggja barna móðir en hún varð ólétt af tvíburum þegar hún var nítján ára gömul.

    Hún opnar sig um lífið sem ung móðir, lærdóminn sem hún hefur dregið af því, hvernig samstarfið gengur með barnsfeðrunum og svo margt annað.

    Hún ræðir einnig einlæg um áfengisvanda en Steinunn fór fyrst í meðferð um 17-18 ára gömul. Hún fór aftur fyrr á þessu ári og í framhaldsmeðferð á Vík. Hún segir alkóhólisma ekki fara í manngreiningarálit og að hún vilji vekja athygli á málefninu til að hvetja fólk að leita sér hjálpar áður en það verður of seint.

    Allt þetta og margt fleira í nýjasta þætti af Fókus.

    27 min
  • Guðrún Ósk Maríasdóttir - Lífið með bæði langveikt barn og heilbrigð börn og höfuðhöggið sem breytti öllu

    Guðrún Ósk Maríasdóttir er matvælafræðingur, næringarþjálfari, nuddari og saunadrottning. Hún er þriggja barna móðir. Halldóra María er elst, ellefu ára gömul og er með mjög sjaldgæfan genasjúkdóm og þekkir Guðrún Ósk það vel hvernig það er að þurfa að berjast fyrir réttindum barnsins síns.Þegar hún varð ólétt af sínu öðru barni var tíminn þar til þau hjónin gátu fengið staðfest hvort barnið væri með sama sjúkdóm eða ekki hrikalega erfiður. En hann og yngsti drengurinn fæddust báðir heilbrigðir.Hún eignaðist þann eldri heima og ætlaði að gera það sama með þann yngri en það gekk ekki eftir áætlun og finnst Guðrúnu Ósk eins og það hafi verið farið yfir mörk hennar á sjúkrahúsinu.Hún segir einnig frá höfuðhöggi sem breytti stefnu lífs hennar, hvernig hún og maðurinn hennar rækta sambandið og svo margt fleira í nýjasta þætti af Fókus.

    36 min

About Fókus

From the publisher's feed

Fókus er birtur í hljóði og mynd vikulega á dv.is. Þátturinn er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.

More shows like Fókus

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

ILLVERK Podcast by Inga Kristjáns

ILLVERK Podcast

121 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Morðskúrinn by mordskurinn

Morðskúrinn

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

6 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

True crime Ísland by True Crime Ísland

True crime Ísland

3 Listeners