
Sign up to save your podcasts
Or


Það mætti segja að hjónin Katrín Bjarkardóttir og Stefán John Stefánsson séu sértækir fagmenn í draugagangi. Þau halda úti vinsæla hlaðvarpinu Draugasögur og ferðast með hlustendur um myrkustu horn heimsins. Þau eru gestir vikunnar í Fókus og ræða um það sem er fyrir handan, hvernig draugagangur lýsir sér, hvernig er hægt að losna við drauga, þeirra fyrsta reynsla að sjá eitthvað að handan og margt fleira. Þau fara einnig yfir reimda staði á Íslandi og eftirminnilegustu upplifanir þeirra, eins og þegar þau náðu röddum á upptöku í Hvítársnesskála eða þegar Stefán vaknaði við að sjá huggulegan prest standa yfir sér, sá maður dó fyrir mörgum árum. Allt þetta og svo margt fleira í Fókus.
Arna Vilhjálms sigraði Biggest Loser árið 2017. Hún fer yfir vegferð sína bæði fyrir og eftir keppnina, leitina að sjálfsást og hvernig tilfinningin var að komast loks á leiðarenda. Arna fer einnig yfir ákvörðun hennar að gangast undir efnaskiptaaðgerð, magaermi, allt ferlið og hvernig henni líður í dag. Arna ætlaði aldrei að verða þrítug, hún bjóst við að lífið yrði búið fyrir þann áfanga. Í dag er hún 33 ára, hamingjusöm í eigin skinni og spennt fyrir framtíðinni. Allt þetta og svo margt meira í Fókus.
Daginn sem Móna Lind byrjaði á blæðingum vissi hún að eitthvað væri að. Nú tæpum tveimur áratugum síðar hefur hún gengist undir þrjár aðgerðir vegna endómetríósu og er öryrki vegna sjúkdómsins. Hún á tvær dætur og mætti segja að fæðing þeirra yngri sé lyginni líkast. Móna Lind segir frá mögnuðu heimafæðingunni og mörgu öðru í Fókus.
Athafna- og áhrifavaldaparið Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson, kallaður Kleini, eru gestir vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.
Parið hefur haldið sig til hlés frá sviðsljósinu undanfarna mánuði, sérstaklega Kleini sem hefur verið í pásu frá samfélagsmiðlum síðan í lok júlí í fyrra. Þau opna sig um síðastliðið hálft ár, hvað þau hafa verið að braska og bralla, hvað sé fram undan og margt fleira.
Gullsmiðurinn, einkaþjálfarinn og fitnesskeppandinn Unnur Kristín Óladóttir er gestur vikunnar.
Hún snýr til baka á keppnissviðið í maí eftir fimm ára pásu. Undanfarna mánuði hefur hún unnir hörðum höndum að byggja sig upp, bæði líkamlega og andlega, eftir mjög erfitt tímabil. Hún missti matarlyst, átti erfitt með að finna gleðina og brosa, hún hafði fjarlægst fólkið sitt og fann að hún var búin að ná botninum. Þá var bara eitt í stöðunni: Standa á fætur og rífa sig upp.
Unnur spurði sjálfa sig: Hver er ég? Við tók mikil vinna, bæði líkamleg og andleg, sem hefur skilað henni ótrúlegum árangri.
Hún ræðir þetta og margt annað í þættinum.
Fjölmiðlakonan og laganeminn Nína Richter var afburðanemandi í grunnskóla og ætlaði sér að verða lögfræðingur. En að vera í námi og borga leigu á sama tíma reyndist of erfitt og hún hætti í framhaldsskóla. Eftir að systir hennar lést úr krabbameini var hún týnd og fann enga fótfestu í lífinu í nokkur ár. Hún flutti um tíma til Spánar, kom síðan heim og byrjaði í kokkanámi, kláraði handritagerð og leikstjórann við Kvikmyndaskólann og var loksins byrjuð að finna sig. Metnaðinn hefur Nínu aldrei skort, stundum með aðeins of mikinn metnað en hún hefur alltaf fundist hún þurfa að sanna sig. Sjálfsmyndin sködduð eftir einelti í æsku en krakkar útsettu hana því hún fæddist með skarð í vör.
Árið 2019 var Nína komin á endastöð, búin að keyra sig í kaf í vinnu og var komin með lífshættulega blóðeitrun. Þá fékk hún vakningu að eitthvað þyrfti hún að gera öðruvísi. Spólum nokkur ár fram í tímann og nú er Nína í lögfræði við HR og náði svo góðum árangri síðustu önn að hún komst á forsetalistann.
Nína ræðir allt þetta og svo margt meira í nýjasta þætti af Fókus.
Umsjón hefur Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Styrktarþjálfarinn Rakel Hlynsdóttir lenti á vegg árið 2018. Hún var með mikið þunglyndi og kvíða en engum hefði dottið það í hug. Hún faldi sjúkdóminn vel og barðist við hann í hljóði. Það kom síðan tímapunktur þar sem hún varð að leita sér hjálpar því lífsviljinn var að hverfa en innst inni vissi hún að hana langaði að lifa. Rakel hefur alla tíð verið með mikið keppnisskap sem hefur meðal annars skilað henni góðum árangri í handbolta og ólympískum lyftingum. Þarna fann hún fyrir keppnisskapinu taka yfir, nú var keppnin að lifa og hún var ákveðin að sigra.
Rakel lauk endurhæfingu fyrir nokkrum mánuðum og lítur björtum augum fram á veginn. Hún ræðir um allt þetta og svo margt fleira í þættinum.
Ljósmyndarinn, hlaðvarpsstjórnandinn og áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson var í ofbeldissambandi í átta ár. Það tók hann langan tíma að átta sig á því sem væri að gerast fyrir hann, en ofbeldið var andlegt og vissi hann ekki hvað gaslýsing og narsisissti var á þeim tíma. Með mikilli sjálfsvinnu er hann kominn á þann stað sem hann er í dag og berst fyrir vitundavakningu um andlegt ofbeldi.
From the publisher's feed

215 Listeners

121 Listeners

131 Listeners

91 Listeners

18 Listeners

17 Listeners

70 Listeners

30 Listeners

22 Listeners

14 Listeners

6 Listeners

6 Listeners

27 Listeners

12 Listeners

3 Listeners