Fókus
Download on the App Store

Fókus episodes

  • Fegurðardrottningin Sóldís Vala - Lærði að standa með sjálfri sér

    Fegurðardrottningin Sóldís Vala Ívarsdóttir var valin Ungfrú Ísland 2024 í ágúst í fyrra. Hún fór til Mexíkó og keppti fyrir hönd Íslands í Miss Universe og segir ferlið hafa kennt henni margt, eins og að standa með sjálfri sér.

    Sóldís var yngsti keppandinn úti í Mexíkó og segir að hún hafi alveg þurft að leggja hart að sér til að vinna sér inn virðingu annarra keppanda sem litu á hana hornauga sökum aldurs , en hún lét það ekki stoppa sig og hélt ótrauð áfram.Sóldís er hvergi hætt og mun keppa fyrir hönd Ísland í Miss Earth í ár.

    Næsta mál á dagskrá er að krýna nýja Ungfrú Ísland þann 3. Apríl næstkomandi í Gamla Bíó. Sóldís ræðir um Ungfrú Ísland ferlið, hvað hún lærði á árinu, hvaða málefnum hún brennur fyrir og svo ótal margt fleira í þættinum.

    27 min
  • Árni Björn: „Við verðum alveg vör við það að fólk er byrjað að slúðra í kringum okkur“

    Fasteignasalinn og vaxtaræktarkappinn Árni Björn Kristjánsson er gestur vikunnar í Fókus.

    Árni lifði og hrærðist í CrossFit-heiminum í rúmlega tólf ár. Hann æfði, keppti og þjálfaði en lífið breyttist fyrir nokkrum árum. Hann fór að huga meira að andlegri heilsu, fór til sálfræðings og fór að líta meira inn á við. Hann færði sig yfir í vaxtarrækt og er nú að undirbúa sig fyrir fyrsta mót sitt í vaxtarrækt.

    Hann hefur lengi verið duglegur að deila lífi sínu á samfélagsmiðlum. Um tíma var það allt tengt CrossFit en eins og lífið breyttist, breyttist efnið sem hann deildi. Hann er óhræddur við að berskjalda sig, deila gleðistundum sem og erfiðum augnablikum, stíga út fyrir boxið og sýna það sem aðrir eru ekki vanir að sjá, sem á það líka til að stuða fólk.

    Árni Björn ræðir þetta allt saman, sjálfsvinnuna, samband þeirra hjóna sem hefur þróast yfir árin og svo margt annað í þættinum.

    53 min
  • Kristjana Björk – Stekkur beint í djúpu laugina og stofnar nýtt fyrirtæki

    Frumkvöðullinn Kristjana Björk Barðdal er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.Hún er að stofna nýtt fyrirtæki með Guðmundi Birki Pálmasyni, betur þekktur sem Gummi Kíró, en hún hefur verið að starfa sem umboðsmaður hans síðan í sumar. Nú opna þau áhrifavaldaumboðsskrifstofuna Atelier Agency.

    Kristjana ræðir um þetta nýja ævintýri, ferðalagið sem skilaði henni á þann stað sem hún er í dag, lífið og tilveruna í skemmtilegum þætti vikunnar.

    49 min
  • BIRGO: Hún fékk að sjá mig og kvaddi svo þennan heim

    Söngkonan Birgitta Ólafsdóttir, eða BIRGO eins og hún er betur þekkt, söng sig inn í hjörtu landsmanna og Eurovision aðdáenda um alla Evrópu á fyrra undanúrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins. Það er óhætt að segja að Eurovision samfélagið hafi nötrað eftir að hún komst ekki áfram í úrslit í kjölfar símakosningar.

    Birgitta er gestur vikunnar í Fókus og ræðir um keppnina, viðbrögð fólks, þakklætið sem hún finnur fyrir og hvernig hún lítur björtum augum fram á veginn.Það var alltaf draumur hennar og ömmu hennar að taka þátt í Eurovision. Amma hennar lést sama kvöld og undanúrslitin voru en náði að sjá Birgittu stíga á svið. „Hún fékk að sjá mig og kvaddi svo þennan heim,“ segir Birgitta.

    18 min
  • Hera Rún - „Ég hugsaði: Nú er minn tími kominn“

    Hera Rún Ragnarsdóttir er leikkona, athafnakona, hlaðvarpsstjórnandi, móðir og svo margt meira.

    Í þættinum opnar hún sig um erfiða æsku, eineltið sem mótaði hana og hvernig henni tókst að vinna sig í gegnum það. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að tala um einelti en hún glímdi við sjálfsvígshugsanir sem barn sem henni finnst skelfileg tilhugsun.  Hún segir frá sjálfsvinnunni sem hún hefur verið í síðastliðin ár, hvað hafi hjálpað henni og hvenær hún ákvað að breyta lífi sínu og hvernig hún kom sér á þann stað sem hún er í dag.

    Hera ræðir einnig um hvernig var að koma úr þrettán ára sambandi og á „markaðinn“ aftur, hvernig hún kynntist kærasta sínum og hvernig lífið leikur við þau í dag.

    Ekki nóg með það þá hefur Hera staðið í alls konar fyrirtækjarekstri í gegnum árin og segir hún okkur dýrmætustu lexíuna sem hún hefur lært.Allt þetta og meira í nýjasta þætti af Fókus.  

    38 min
  • Þórhildur – Tantra, sambönd og kynlíf

    Kynlífs- og sambandsmarkþjálfinn Þórhildur Magnúsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.

    Þórhildur er fyrsti gestur Fókuss til að koma aftur en mikið hefur gerst síðastliðna átján mánuði.

    Hún hefur sankað að sér meiri þekkingu og er að klára markþjálfaranám. Hún byrjaði að iðka tantra sem hefur verið eins konar rauði þráðurinn í lífi hennar í gegnum árin. Í þættinum ræðir hún um þjálfunina, hvers konar fólk leitar til hennar í sambandsmarkþjálfun, þemu sem hún hefur tekið eftir, að finna frelsi með með tantra og margt fleira.

    Þórhildur og eiginmaður hennar fögnuðu átján ára sambandsafmæli og ræðir hún um það hvernig þau halda neistanum gangandi eftir öll þessi ár.

    Átta ár eru liðin síðan þau opnuðu sambandið og hefur Þórhildur verið í sambandi með Marcel í um eitt og hálft ár. Hún ræðir um sambandið, hvað gerir gott kynlíf gott og svo ótal margt fleira

    54 min
  • Vala um systurmissinn: „Það var ótrúlegt að alast upp með henni og mín mesta gæfa“

    Viðskipta- og markaðssérfræðingurinn Valgerður Anna Einarsdóttir, kölluð Vala, er gestur vikunnar í Fókus.Vala hannaði Lífið er núna húfurnar í ár fyrir Kraft, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hönnun húfanna er innblásin af verkum systur Völu, Þórunnar Maríu Einarsdóttur, sem var prjónahönnuður og listakona undir nafninu Tóta Van Helzing.

    Tóta lést eftir erfiða og hetjulega baráttu við krabbamein í desember 2021.Í mjög einlægu viðtali segir Vala frá systur sinni, sköpunarkraftinum og ótrúlegu hæfileikum hennar að skapa eitthvað einstakt. Hún ræðir um baráttu Tótu við krabbameinið, símtalið sem engin systir vil fá og kveðjustundina sem kom allt of snemma.

    Vala hefur síðastliðin ár haldið áfram með verkefnið Tóta Van Helzing og haldið lista- og tískusýningar með verkum Tótu. Nú stendur yfir listasýning, House of Van Helzing, í Rammagerðinni við Laugaveg 31. Lífið er núna húfurnar má kaupa í Rammagerðinni, Hagkaup, Krónunni og á Lifidernuna.is.

    44 min
  • Stebbi Jak – Fann frelsi eftir að hann fór á fund með árásarmanni sínum

    Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson er gestur vikunnar í Fókus. Það er margt spennandi á döfinni hjá Stefáni, sem margir þekkja sem Stebba Jak, en hann mun stíga á svið á fyrra undanúrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins þann 8. febrúar næstkomandi.

    Í þættinum fer Stefán um víðan völl. Hann ræðir um Söngvakeppnina, ævintýrið sem því fylgir, lífið og ástina, en hann opnar sig einnig um alvarlega líkamsárás sem hann varð fyrir árið 2000. Hann þurfti að fara í tvær aðgerðir í kjölfarið en verst voru andlegu áhrifin sem árásin hafði. Hann burðaðist með þetta í rúm tuttugu ár en segir frá því þegar hann fór á fund með einum árásarmanninum í fyrra.

    37 min
  • Kristín Tómas: „Konur taka frekar ákvörðun um skilnað heldur en karlar“

    Kristín Tómasdóttir er fjölskyldumeðferðarfræðingur sem sérhæfir sig í parameðferð og metsöluhöfundur. Hún ræðir um allt sem tengist samböndum í þættinum. Eins og algeng vandamál í parasamböndum, hvernig er hægt að bæta samskipti og svarar spurningunni hvort það sé hægt að halda áfram í sambandi eftir framhjáhald eða trúnaðarbrest.

    Allt þetta og svo miklu meira í þætti vikunnar.

    47 min

About Fókus

From the publisher's feed

Fókus er birtur í hljóði og mynd vikulega á dv.is. Þátturinn er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.

More shows like Fókus

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

ILLVERK Podcast by Inga Kristjáns

ILLVERK Podcast

121 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Morðskúrinn by mordskurinn

Morðskúrinn

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

6 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

True crime Ísland by True Crime Ísland

True crime Ísland

3 Listeners