Í sítengdum snjallsíma- og samfélagsmiðlavæddum samtíma getum við stöðugt fylgst með vinum okkar og kunningjum, hvað þeir eru að gera og hvað er að gerast á þessu tiltekna augnabliki. Það er augljóst að við erum stöðugt að missa af einhverju stórmerkilegu sem er að eiga sér stað, einhvers staðar annars staðar - þar sem við erum ekki. Meðal ungs fólks hefur hugtakið ,,fómó" fest sig í sessi og táknar kvíðann sem þetta veldur, óttann við að missa af. Í Lestinni í dag verður fjallað um fyrirbærið ,,fómó".
Fullveldismaraþon Reykjavíkurakademíunnar kemur við sögu, en það fór fram um síðustu helgi, þar var fjallað í fjömörgum örfyrirlesturum um fullveldið, sögu Íslands og samfélag í fortíð og nútíð. Við ætlum að grípa niður í erindi sem Kolbeinn Óttarsson Proppé sagnfræðingur og alþingismaður flutti, en hann spurði Sleit þjóðernisvitundin barnsskónum? Og hann staldraði þar við umdeildan fund Alþingis sem fram fór á Þingvöllum fyrir mánuði.
Kanadíska hljómsveitin Arcade fire spilaði í Laugardalshöll í gær, Lestin var auðvitað á staðnum, og við heyrum viðbragð Davíðs Roach Gunnarssonar.
Við lítum einnig við í útvarpsleikhúsinu, og ræðum við Ragnar Ísleif Bragason og Friðgeir Einarsson, úr leikhópnum Kriðpleir, en þeir vinna að nýju útvarpsleikriti sem frumflutt verður hér á Rás 1 í september og ber vinnuheitið Bónusverðin.
Við fáum í heimsókn tvo meðlimi hljómsveitarinnar Grúska babúska, sem spilar draumkennda og gáskafulla tónlist, og heldur tónleika í Hannesarholti á morgun. Gestir okkar verða þær Harpa Fönn Sigurjónsdóttir og Erla Stefánsdóttir.