Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Besta, KR og landsliðsmál
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. apríl.
    Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fréttir vikunnar, bikarleikina, hita upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni og Theodór Elmar Bjarnason, leikmaður KR, er á línunni.
    Gestur þáttarins er Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ, en hann var einn þeirra þriggja sem leiddu ráðningu á nýjum landsliðsþjálfara, Age Hareide.
    1 hr 49 min
  • Kári Árnason - Hareide, KR og Gunnar Vatnhamar
    Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, er einn af tíu Íslendingum sem nýi landsliðsþjálfarinn Age Hareide hefur þjálfað á sínum ferli. Þeir unnu saman hjá Malmö í Svíþjóð. Kári ræddi um hans kynni af norska þjálfaranum.
    Hann fór einnig yfir þá ákvörðun að víxla á heimaleikjum við KR. Víkingur spilar heimaleik við KR á mánudag en sá leikur átti upprunalega að fara fram í Vesturbænum.
    Loks var hann spurður út í kaupin á varnarmanninum Gunnari Vatnhamar í upphafi mánaðar. Skiptir máli að hann sé færeyskur landsliðsmaður?
    15 min
  • Heimavöllurinn: Lokaspá og upphitun fyrir Bestu
    Besta deild kvenna hefst á þriðjudag og í dag er komið að því að opinbera lokaspá Heimavallarins fyrir sumarið og hita upp fyrir veisluna sem þetta Íslandsmót verður! Þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir eru gestir þáttarins.
    1 hr 45 min
  • Enski boltinn - Er hausinn farinn hjá toppliðinu?
    Hallur Flosason, fyrrum leikmaður Aftureldingar og ÍA, er gestur í þættinum þennan þriðjudaginn.
    Hallur er mikill stuðningsmaður Arsenal, eins og nokkrir aðrir góðir menn af Akranesi. Í þættinum fer Hallur yfir stöðuna hjá sínum mönnum eftir að liðið missti frá sér tveggja marka forskot annan leikinn í röð.
    Er hausinn farinn hjá toppliðinu?
    Einnig er rætt um allt það helsta sem gerðist í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi.
    1 hr 1 min
  • Innkastið - Græn gleði og gulur völlur
    Innkastið eftir 2. umferð Bestu deildarinnar kemur beint frá Hlíðarenda, eftir flott svar Breiðabliks og 2-0 útisigur gegn Val. Leikir umferðarinnar eru skoðaðir en veður og vallaraðstæður höfðu mikið að segja.Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Benedikt Bóas fara eftir málin en Benni er lítill í sér eftir tapið gegn Blikum.Víkingar afskaplega sannfærandi, jafntefli í Kórnum, serbneska blómið blómstrar, KA með upprúllun, Eyjamenn fáliðaðir og með markmannsþjálfarann á bekknum og það borgar sig ekki að sofa á KR.
    1 hr 5 min
  • Útvarpsþátturinn - Sá norski mættur, Gylfi laus og enski
    Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir stærstu fréttir vikunnar. Norðmaðurinn Age Hareide er tekinn við íslenska landsliðinu og Gylfi Þór Sigurðsson er laus allra mála.
    Þá er hitað upp fyrir 2. umferð Bestu deildarinnar og Kristján Atli Ragnarsson mætir við enska hringborðið en óhætt er að segja að spennandi lokakafli sé framundan.
    1 hr 51 min
  • Margrét Magnúsdóttir - Draumurinn sem við ætluðum að stefna á
    U19 landslið kvenna náði því magnaða afreki að enda í efsta sæti í sínum riðli í annarri umferð undankeppni Evrópumótsins 2023. Liðið tekur því þátt í lokakeppninni í sumar.
    Þetta verður í annað sinn þar sem U19 landslið kvenna tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins.
    Liðið var í mjög erfiðum riðli í milliriðlunum með Danmörku, Svíþjóð og Úkraínu. Íslensku stelpurnar lögðu bæði Dani og Svía á leið sinni á lokakeppnina.
    Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 landsliðsins, mætti á skrifstofu .net í spjall í dag og ræddi þar um þennan magnaða árangur.
    33 min
  • Innkastið - Tryllt byrjun á deild þeirra Bestu
    Innkastið eftir magnaða fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Gummi og Sæbjörn Steinke skoða leikina. Sverrir er á línunni.
    Tryllingur í Kópavogi, Vuk náði í stig fyrir FH í Dal draumanna, endurkomusigrar hjá Val og Keflavík, bikarmeistararnir gerðu góða ferð í Garðabæ og KA og KR skiptu stigunum á milli sín.
    1 hr 9 min
  • Enski boltinn - Hiti á Anfield, lúði helgarinnar og rán um hábjartan dag
    Gummi og Steinke fara yfir stóru málin í enska boltanum eftir skemmtilega páskaumferð.
    Einn af leikjum tímabilsins fór fram á Anfield í gær þar sem Liverpool kom til baka gegn toppliði Arsenal eftir að hafa lent 2-0 undir. Virgil van Dijk átti ekki sinn besta dag og það átti Mikel Arteta, stjóri Arsenal, ekki heldur.
    Það var rán um hábjartan dag þegar Totteham lagði Brighton, Frank Lampard byrjaði ekki vel með Chelsea en Man Utd og Newcastle unnu flotta sigra í Meistaradeildarbaráttunni. Roy Hodgson er mættur aftur með látum.
    Þá var lúði helgarinnar tilnefndur en það var mjög auðvelt val.
    1 hr 18 min
  • Útvarpsþátturinn - Besta upphitunin og hringt til Lyngby
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 8. apríl.
    Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Með þeim í hljóðveri er Almarr Ormarsson sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en hann er nú að starfa við íþróttafréttamennsku fyrir RÚV.
    Í þættinum spjallar Tómas einnig við Frey Alexandersson, þjálfara danska úrvalsdeildarliðsins Lyngby.
    1 hr 42 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners