Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Niðurtalningin - Síðasta tímabil eins og spænsk sápuópera
    Besta deildin byrjar að rúlla þar næsta mánudag og upphitun okkar er komin á fullt. FH er spáð sjöunda sæti deildarinnar eftir að hafa átt mjög svo brösugt tímabil í fyrra.
    Til þess að ræða FH mætti fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson á skrifstofu Fótbolta.net.
    Magnús Haukur er mikill stuðningsmaður FH en í þessu hlaðvarpi fer hann yfir síðasta tímabil, endurkomu Heimis Guðjónssonar í Kaplakrika, leikmannabreytingar og væntingarnar til komandi leiktíðar.
    Þá hringdi Sæbjörn Þór Steinke í tvo efnilega leikmenn liðsins, Úlf Ágúst Björnsson og Kjartan Kára Halldórsson. Hann fékk þeirra sýn á tímabilið sem er í vændum.
    47 min
  • Niðurtalningin - Eiður Aron og Palli Magg í Eyjaspjalli
    Innan við tvær vikur eru í það að Besta deild karla rúlli af stað og upphitun okkar er komin á fullt. ÍBV er spáð áttunda sæti deildarinnar.
    Til þess að ræða ÍBV þá mætti Páll Magnússon, fyrrum alþingismaður og fyrrum útvarpsstjóri, á skrifstofu Fótbolta.net.
    Páll er mikill stuðningsmaður ÍBV og hefur verið það alla tíð. Hann reynir að mæta á alla leiki og styðja sitt lið. Hann er bjartsýnn fyrir tímabilinu.
    Þá hringdi Sæbjörn Þór Steinke til Vestmannaeyja og spjallaði við Eið Aron Sigurbjörnsson, fyrirliða liðsins.
    42 min
  • Útvarpsþátturinn - Arnar rekinn og rýnt í Bestu
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum en sérstakur sérfræðingur er Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar og fyrrum ritstjóri á .Net.
    Rætt er um stórfrétt vikunnar en Arnar Þór Viðarsson var rekinn sem landsliðsþjálfari í gær. Hver tekur við?
    Þá er rýnt í liðin fyrir Bestu deildina í sumar. Liðunum er skipt upp í þrjá flokka í kerfinu 4-4-4; toppbaráttuna, miðjuliðin og fallbaráttuna.
    1 hr 32 min
  • Ólafur Ingi Skúlason - Miklu stærra en margir átta sig á
    Ólafur Ingi Skúlason ræddi um U19 ára landsliðið sem tryggði sér sæti í lokakeppni EM í vikunni. Ólafur er þjálfari liðsins og fór yfir milliriðilinn, umgjörðina, uppleggið, hárlitinn og allt mögulegt í kringum afrekið magnaða.
    „Ég held að enginn fyrir fram hafi búist við því að við stæðum uppi sem sigurvegarar í riðlinum. Þetta er miklu stærra en margir átta sig á," sagði Ólafur m.a. í þættinum.
    Til þess að komast í lokakeppnina þurfti að enda í efsta sæti í riðlinum sem haldinn var á Englandi. England er ríkjandi meistari í U19 og hinir andstæðingarnir voru Tyrkir og Ungverjar.
    Framundan er lokakeppni á Möltu í júlí og verður dregið í riðlana þar í apríl.
    52 min
  • Upphitun Innkastsins - Óskar Hrafn Þorvaldsson
    Innkastið hitar upp fyrir Bestu deildina með hlaðvarpsviðtölum við þjálfara þeirra þriggja liða sem spáð er efstu sætum Bestu deildarinnar,
    Í þætti tvö er Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, gestur og fer yfir undirbúning Kópavogsliðsins og samkeppnina sem liðið fær í sumar
    Í spjallinu er einnig rætt um Evrópudrauma, markmið Óskars í þjálfun, árangur U19 liðsins og fleira.
    Umsjónarmaður: Elvar Geir Magnússon.
    58 min
  • Niðurtalningin - Fimmta sætið fínt ef bikarinn fylgir með
    Frömurum er spáð 9. sæti í Bestu deildinni í ár, þremur sætum ofar en í fyrra.
    Til þess að ræða um málefni Fram kom sagnfræðingurinn Stefán Pálsson í spjall.
    Hann fór yfir síðustu ár hjá Fram, þjálfarann Jón Sveinsson og ýmislegt annað skemmtilegt. Hann er á því að 5. sætið sé fínasti árangur ef Framarar taka bikarinn.
    Seinni hluti þáttarins er svo símaviðtal við sautján marka manninn Guðmund Magnússon sem átti frábært tímabil í fyrra.
    41 min
  • Upphitun Innkastsins - Arnar Gunnlaugsson
    Innkastið hitar upp fyrir Bestu deildina með hlaðvarpsviðtölum við þjálfara þeirra þriggja liða sem spáð er efstu sætum Bestu deildarinnar,
    Í fyrsta upphitunarþættinum er Arnar Gunnlaugsson, þjálfari bikarmeistara Víkings, gestur og ræðir um komandi tímabil og undirbúning sinna manna. Í spjallinu er einnig rætt um auglýsingu Bestu deildarinnar, landsliðið, Burnley og fleira.
    Umsjónarmaður: Elvar Geir Magnússon.
    50 min
  • Niðurtalningin - Nokkuð blint rennt í sjóinn
    Tólf dagar eru í Íslandsmót og var Keflavík dag spáð 10. sætinu í sumar.
    Til þess að ræða málefni Keflavíkur voru þeir Frans Elvarsson, reynslumesti leikmaður liðsins og stuðningsmaðurinn Joey Drummer.
    Leikmanna- og stuðningsmannavinkilinn tekinn, breytingarnar á hópnum, markmiðin í sumar, væntingarnar og ýmislegt annað.
    Frans flutti á menntaskólaaldri til Njarðvíkur frá Hornafirði á sínum tíma. Hann segir frá því og ákvörðuninni að fara í Keflavík í kjölfarið.
    41 min
  • Niðurtalningin - Munu Fylkismenn svara fyrir sig?
    Innan við tvær vikur eru í það að Besta deild karla rúlli af stað og upphitun okkar er komin á fullt. Fylki er spáð ellefta sæti deildarinnar.
    Fylkismenn eru í æfingaferð og því var tekið á það ráð að fá stuðningsmann í sett til þess að ræða um Fylkisliðið. Kristján Gylfi Guðmundsson, yngri flokka þjálfari og stuðningsmaður, mætti á skrifstofu Fótbolta.net og fór yfir málin.
    Þá var hringt í Ragnar Braga Sveinsson og staðan tekin á liðinu í æfingaferðinni. Óhætt er að segja að fyrirliði þeirra Fylkismanna sé vel stemmdur fyrir tímabilinu.
    Fylki er spáð falli og er aðalmarkmiðið hjá liðinu í sumar auðvitað að halda sér uppi; þeir ætla að svara fyrir það hvernig fór síðast þegar liðið var í deild þeirra bestu.
    36 min
  • Milos í stærsta starfi sem íslenskur fótboltaþjálfari hefur gegnt
    Aldrei hefur íslenskur þjálfari verið í eins stóru starfi og Milos Milojevic er í núna.
    Milos, sem er með íslenskan ríkisborgararétt, kom fyrst til Íslands árið 2006 til að spila með Hamri. Hann spilaði svo með Ægi og Víkingi Reykjavík. Síðar meir varð hann aðstoðarþjálfari Ólafs Þórðarsonar hjá Víkingi og svo aðalþjálfari. Hann stýrði Breiðabliki áður en hann fluttist búferlum til Svíþjóðar.
    Hann hefur unnið sig hratt upp stigann og stýrði Malmö, sigursælasta félagi Svíþjóðar, áður en hann tók við Rauðu stjörnunni í fyrra.
    Að stýra Rauðu stjörnunni er erfitt starf og því fylgir mikil pressa, en allt bendir til þess að Milos verði serbneskur meistari á næstu vikum. Liðið er enn taplaust eftir 27 leiki í serbnesku úrvalsdeildinni.
    36 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners