Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Landsliðsgluggi sem fær falleinkunn þrátt fyrir stærsta sigur sögunnar
    Íþróttafréttamaðurinn Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, var í yfirvinnu á skrifstofu Fótbolta.net í dag. Hann ræddi ekki bara um HK því hann tók líka landsliðsumræðu með Guðmundi Aðalsteini og Sæbirni Steinke.
    Íslenska karlalandsliðið var að klára sinn fyrsta glugga í undankeppni EM 2024.
    Liðið vann í gær stærsta sigur sinn í keppnisleik frá uppahafi er liðið vann 7-0 sigur á Liechtenstein. Þrátt fyrir það fær glugginn falleinkunn þar sem liðið féll harkalega á stóra prófinu gegn Bosníu.
    Strákarnir ræða um leikinn í Liechtenstein og gluggann í heild sinni í þessum þætti.
    49 min
  • Niðurtalningin - HK ætlar að fara Framleiðina
    Tvær vikur í Íslandsmót og tími til kominn að hita almennilega upp fyrir Bestu deildina. HK er spáð 12. sætinu í sumar og til þess að ræða málefni HK voru stuðningsmennirnir Andri Már Eggertsson og Árni Þórður Randversson.
    Einhverjir kannast við Andra (@nablinn) frá Stöð 2 Sport þar sem hann tekur reglulega viðtöl í kringum íþróttakappleiki. Árni er svo einn af þáttarstjórnendum Punkts og basta þáttarins - hlaðvarpsþáttur sem fjallar um ítalska boltann.
    Leifur Andri Leifsson, fyrirliði HK, var þá á línunni frá Spáni, þar er HK-liðið í æfingaferð þessa dagana.
    HK-ingarnir voru duglegir að tala um Framleiðina, vera spáð neðsta sæti eins og Fram í fyrra en halda svo sæti sínu í deildinni.
    53 min
  • Sama ástríða með yngri flokka KA og Öster í Svíþjóð
    Srdjan Tufegdzic er þjálfari sænska liðsins Öster sem spilar í B-deildinni. Liðið hefur verið lengi í næstefstu deild en setur stefnuna á efstu deild. Á síðasta tímabili fór liðið í umspilið um sæti í efstu deild en tapaði þar. Stefnan er sett á sæti í Allsvenskan á komandi tímabili.
    Túfa, eins og hann er alltaf kallaður, er Serbi sem kom fyrst til Íslands árið 2006 og lék með KA. Hann lagði skóna á hilluna tímabilið 2012 og var þá farinn að þjálfa hjá KA.
    Hann var aðstoðarmaður Bjarna Jóhannssonar árin 2013, 2014 og hálft tímabilið 2015 áður en hann tók við sem aðalþjálfari. Túfa stýrði KA svo út tímabilið 2018. Fyrir tímabilið 2019 tók hann við Grindavík og eftir það tímabil varð hann aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá Val.
    Túfa ræddi um lífið í Svíþjóð, tímabilið í fyrra, komandi tímabil og ýmsilegt fleira í viðtalinu. Hann var þá spurður sérstaklega út í þá Alex Þór Hauksson og Rúnar Þór Sigurgeirsson sem eru leikmenn Öster.
    38 min
  • Hörmungarnar í Bosníu gerðar upp með Einari Guðna
    Ísland fór ekki vel af stað í undankeppni EM 2024 í gær þar sem liðið tapaði 3-0 fyrir Bosníu í Senica.
    Leikurinn var ekki góður hjá íslenska liðinu, bara alls ekki.
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu til Svíþjóðar í dag og spjölluðu við Einar Guðnason, fyrrum aðstoðarþjálfara Víkings, um vonbrigðin í gær.
    Farið var yfir uppstillinguna á liðinu, frammistöðu liðsins í leiknum og framtíð Arnars Þórs Viðarssonar sem landsliðsþjálfara ásamt mörgu fleiru. Þetta var einn af úrslitaleikjunum í þessari undankeppni og sárt að hafa tapað honum eins og við gerðum.
    1 hr 10 min
  • Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir Lengjudeildina 2023
    Heimavöllurinn er hokinn af reynslu að þessu sinni og teiknar upp ótímabæra Lengjudeildarspá þegar 40 dagar eru í mót. Fyrrum landsliðskonurnar og þjálfararnir Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Rakel Logadóttir eru gestir þáttarins að þessu sinni og fara yfir spánna ásamt Mist Rúnarsdóttur.
    1 hr 17 min
  • Enski boltinn - Ræða Conte og Mitrovic ekkert gáfnaljós
    Það var skemmtileg helgi í fótboltanum á Englandi að klárast í gær, en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke fara yfir hana í hlaðvarpinu Enski boltinn.
    Hörður Ágústsson, stuðningsmaður Tottenham, kíkti á skrifstofu Fótbolta.net í dag og greindi eldræðu Antonio Conte á fréttamannafundi um liðna helgi.
    Conte var brjálaður eftir 3-3 jafntefli gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni, en Tottenham hefur verið mikið upp og niður upp á síðkastið og hefur verið áhugavert að ræða stöðu félagsins.
    Einnig er rætt um ótrúlega atburðarás í leik Manchester United og Fulham, magnað lið Arsenal og margt fleira í þessum þætti.
    1 hr 1 min
  • Útvarpsþátturinn - Albertsmálið, hópurinn og KA
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 18. mars. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór.
    Rætt um Albertsmálið sem hefur tröllriðið öllu og landsliðsvalið fyrir fyrstu leikina í undankeppni EM. Það er áfall að Sverrir Ingi Ingason verður ekki með.
    Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er í viðtali.
    Hitað upp fyrir Bestu deildina. Hallgrímur Jónasson þjálfari KA er kokhraustur fyrir sumrinu og ætlar að reyna að vinna mótið.
    1 hr 41 min
  • Enski boltinn - Lengi verið eitrað andrúmsloft á Goodison
    Magnús Geir Eyjólfsson, fréttamaður á RÚV, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Hann settist niður með Gumma og Steinke og fór yfir stöðuna.
    Magnús Geir er stuðningsmaður Everton en það er ekki auðvelt í dag og hefur ekki verið síðustu árin. Það ríkir mikið stefnuleysi hjá félaginu og því er illa stjórnað.
    Í þættinum í dag var farið yfir stöðuna hjá Everton og þá var farið yfir leiki vikunnar í Evrópukeppnum og í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, féll úr leik í Evrópudeildinni í gær gegn Sporting, liðinu sem er í fjórða sæti portúgölsku úrvalsdeildarinnar.
    Þá að lokum var hitað upp fyrir leiki helgarinnar í enska boltanum en það er spilað í bæði deild og bikar.
    1 hr 10 min
  • Fagnaði þegar hann sá 'missed call' frá Arnari
    Sævar Atli Magnússon fékk að vita á mánudaginn að hann yrði í landsliðshópnum fyrir komandi landsleiki í undankeppni EM.
    Þetta er í fyrsta sinn sem Sævar er í A-landsliðshóp þegar um keppnisleiki er að ræða, en hann spilaði sína fyrstu landsleiki í janúar. Hann var þá kallaður inn í hópinn eftir að upprunalegi hópurinn hafði verið tilkynntur.
    Hann hefur að undanförnu spilað vel í Danmörku, skoraði tvö mörk í sigri Lyngby gegn Midtjylland um liðna helgi. Lyngby rær lífróður í baráttunni um að halda sæti sínu í efstu deild og sigurinn á sunnudag því gífurlega mikilvægur.
    Sævar ræddi við Fótbolta.net í dag, ræddi um landsliðið og Lyngby.
    25 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners