Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Byrjað á bardaga í Bosníu
    Í næstu viku hefur Ísland leik í undankeppni EM þegar leikið verður gegn Bosníu/Hersegóvínu í borginni Zenica.
    Ejub Purisevic er frá Bosníu og er sérstakur gestur í Innkastinu. Hann ræðir við Elvar Geir og Sæbjörn Steinke um komandi leik. Íslenska liðið og það bosníska eru til umræðu og rýnt í möguleikana.
    Auk þessara liða eru Portúgal, Slóvakía, Liechtenstein og Lúxemborg í riðlinum en tvö efstu liðin tryggja sér sæti í lokakeppni EM í Þýskalandi 2024. Möguleikar Íslands eru því nokkuð góðir en fastlega má gera ráð fyrir því að Portúgal vinni riðilinn en hart verði barist um annað sætið.
    39 min
  • Enski boltinn - Sættir sig við að Arsenal verði meistari
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu símtal á Suðurlandið til Ingimars Helga Finnssonar, litlu flugvélarinnar, til þess að ræða leiki helgarinnar í enska boltanum.
    Litla flugvélin er að glíma við veiruna skæðu og náði því að fylgjast vel með boltanum um helgina.
    Tottenham-menn fögnuðu óvæntu tapi Liverpool, Arsenal rann svo sannarlega ekki á bananahýði og Manchester United olli vonbrigðum aðra helgina í röð.
    Þetta er á meðal þess sem rætt er um í þættinum í dag.
    Þá er einnig spjallað um ótrúlega fallbaráttu sem hefur myndast í deildinni. Hvaða þrjú lið fara eiginlega niður?
    1 hr 4 min
  • Að halda lífi eða halda áfram í fótbolta
    Emil Pálsson þurfti að leggja skóna á hilluna í fyrra eftir að hafa farið í hjartastopp á æfingu með FH. Þetta var í annað sinn á stuttum tíma þar sem Emil fór í hjartastopp í fótbolta.
    Emil mætti í dag á skrifstofu Fótbolta.net, fór yfir feril sinn og hvernig hann endaði.
    „Þetta fer eftir því hvernig maður horfir á hlutina. Ég þurfti að horfa á þetta þannig að ég væri að velja á milli þess að vera á lífi eða að vera í fótbolta. Það er mjög auðvelt val, ég tek það að vera á lífi," segir Emil í spjallinu.
    Hann er núna byrjaður að þjálfa hjá FH og stefnir á að ná langt í þeim bransa.
    1 hr 9 min
  • Enski boltinn - Frosið í helvíti
    Ólafur Þór Jóelsson, þáttastjórnandi GameTíví, var á línunni frá Kóngsins Köben í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn. Þar ræddi hann um vandamál Tottenham sem núna hrannast upp.
    Tími Antonio Conte virðist á enda hjá félaginu en hver á þá að taka við stjórnartaumunum?
    Rætt var við Óla um leikinn gegn AC Milan, frammistöðu Oliver Skipp, viðtalið við Richarlison, framtíð Harry Kane og margt fleira.
    Annars var rætt um Meistaradeildina, Evrópudeildina - þar sem Man Utd og Arsenal eru bæði í fínum málum - og leikina sem framundan eru í ensku úrvalsdeildinni núna um helgina.
    1 hr 18 min
  • Enski boltinn - Vandræðaleg uppgjöf
    Liverpool vann sögulegan risasigur gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Til þess að ræða leikinn og aðra leiki helgarinnar fékk Sæbjörn Steinke Framarana Óskar Smára Haraldsson og Guðmund Magnússon.
    Af hverju vann Liverpool 7-0? Rætt um varnarmanninn Antony, fyrirliðann Bruno Fernandes, fluggírinn hjá Liverpool og uppgjöf gestanna á Anfield í gær.
    Daginn áður vann Arsenal frábæran endurkomusigur gegn Bournemouth og er meistarabragur á Skyttunum. Manchester City heldur þó áfram pressu og er mikil barátta um meistaratitilinn milli þessara tveggja liða. Chelsea vann þá lífsnauðsynlegan sigur en eftir sigur gegn einmitt Chelsea var vikan hjá grönnunum í Tottenham hræðileg í einu orði sagt.
    1 hr 1 min
  • Útvarpsþátturinn - Horft til Bosníu og Heimir Guðjóns gestur
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 4. mars. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas.
    Farið yfir fréttirnar í íslenska boltanum, úrslit vikunnar í Lengjubikarnum og rætt um komandi undankeppni EM hjá íslenska landsliðinu sem mætir Bosníu síðar í þessum mánuði.
    Heimir Guðjónsson þjálfari FH er gestur og ræðir um komandi tímabil í Bestu deildinni. Þá er hitað upp fyrir Liverpool - Man Utd.
    1 hr 30 min
  • Enski boltinn - Ferðasaga og ansi langsóttur Íslandsvinur
    Það var farið yfir FA-bikarinn, ensku úrvalsdeildina og margt fleira í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag.
    Sæbjörn Þór Steinke er mættur aftur heim eftir glæsiferð til Englands. Hann sagði ferðasögu í þættinum þar sem hann og Guðmundur Aðalsteinn fóru yfir málin.
    Rætt var um úrslitin í FA-bikarnum í gær, þar á meðal óvæntan sigur Grimsby gegn Southampton. Markaskorari Grimsby, Gavan Holohan í leiknum hefur einnig spilað fyrir Hull en það eru bæjarnöfn sem eiga óneitanlega stóran sess í fiskveiðisögu Íslands. Ansi langsóttur Íslandsvinur.
    Þá var auðvitað rætt um leiki Manchester United og Liverpool sem voru spilaðir í gær.
    1 hr 21 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners