Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Vanhæfir í VAR-herberginu
    Það var nokkuð mikið rætt um dómaramistök í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag.
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fengu Magnús Val Böðvarsson til að fara yfir umferðina um liðna helgi. Maggi Bö, eins og hann er ávallt kallaður, er dómari, vallarstjóri og stuðningsmaður Crystal Palace.
    Stuðningsmenn Arsenal, Chelsea og Brighton geta verið ansi reiðir út í dómarastéttina eftir þessa umferð.
    Arsenal, sem er á toppnum, hefur verið leikið ansi grátt af dómurum á þessari leiktíð og verður líklega hugsað mikið um það hjá félaginu ef liðið verður ekki meistari.
    1 hr 14 min
  • Útvarpsþátturinn - Rúnar Kristins og áhugaverð leikmannakaup
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Fótboltafréttir vikunnar, enskar og íslenskar. Rætt um stóru fréttirnaf af Manchester City, tíðindi á íslenska leikmannamarkaðnum, undirbúningsleiki og Rafn Markús Vilbergsson segir okkur frá áhugaverðum leikmanni sem Njarðvík var að fá frá Malasíu.
    Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari KR. Rætt er um Bestu deildina, síðasta tímabil KR-inga og það sem hefur gerst hjá félaginu í vetur.
    1 hr 43 min
  • Enski boltinn - Eldræða frá Mána en áhyggjurnar litlar hjá City
    Það er boðið upp á veisluþátt af Enski boltinn hlaðvarpinu á þessum ágæta föstudegi.
    Byrjað er á því að hringja í Þorkel Mána Pétursson, stuðningsmann Leeds. Hann fer vel yfir málin hjá sínum mönnum en hann er ekki sáttur með allt sem hefur verið í gangi þar. Leeds gerði 2-2 jafntefli gegn Manchester United í miðri viku og er farið vel yfir þann leik í þættinum.
    Svo er hringt í Magnús Ingvason, stuðningsmann Manchester City. Hann er rólegur yfir stöðu mála þó enska úrvalsdeildin hafi ákveðið að kæra City fyrir brot á fjármálareglum á dögunum. Getur Man City náð Arsenal í titilbaráttunni?
    Þá er farið yfir næstu umferð í deildinni sem hefst á morgun en það eru margir áhugaverðir leikir framundan.
    1 hr 15 min
  • Atli Hrafn: Stefnir alltaf hærra en þar sem þú ert
    Atli Hrafn Andrason er uppalinn KR-ingur sem farið hefur víða á sínum ferli þrátt fyrir ungan aldur. Atli er 24 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem skrifaði undir hjá HK í desember.
    Hann varð Íslandsmeistari með 3. flokki KR árið 2014 og samdi við Fulham sumarið 2016. Hann var á Englandi í tvö og hálft ár. Næsta stopp var Víkingur, svo Breiðablik, næst ÍBV og loks HK. Atli lék á sínum tíma 25 leiki fyrir yngri landsliðin.
    Í spjallinu við Sæbjörn Steinke fór hann yfir ferilinn til þessa. Hann fer yfir tímann hjá Fulham, sumarið 2019 með Víkingi, þjálfarana Óskar Hrafn og Arnar Gunnlaugsson, tímann í Eyjum og ákvörðunina að fara í HK.
    1 hr 3 min
  • Enski boltinn - Staðan hjá Liverpool mikið áhyggjuefni
    Það gengur hvorki né rekur hjá Liverpool þessa stundina. Liðið tapaði 3-0 gegn Úlfunum um helgina.
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fengu Hallgrím Indriðason, fréttamann á RÚV, til að fara yfir stöðuna hjá félaginu en hún er áhyggjuefni.
    Einnig er rætt um aðra leiki helgarinnar en tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar töpuðu bæði um helgina. Þá er rætt um það að deildin saki Manchester City um að brjóta fjármálareglur.
    1 hr 3 min
  • Gunnhildur Yrsa er mætt heim - Kom ekkert annað til greina
    Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er komin aftur heim til Íslands eftir langa dvöl í atvinnumennsku.
    Hún bjóst aldrei við því að verða atvinnukona í fótbolta eftir að hafa slitið krossband tvisvar. Það gerðist svo í þriðja sinn eftir að hún fór til Noregs frá Stjörnunni.
    En hún hélt alltaf áfram og endaði á því að leika í tíu ár erlendis, fyrst í Noregi og svo í Bandaríkjunum. Hún á þá að baki 96 A-landsleiki með Íslandi.
    Gunnhildur er núna komin heim í Stjörnuna en það kom ekki til greina að fara neitt annað hér heima. Í þessu hlaðvarpi ræðir hún um byrjunina í Stjörnunni, tímann í atvinnumennsku, erfið mál í Bandaríkjunum, landsliðið og nýtt líf á Íslandi. Hún hvetur fólk til að fylgjast með Stjörnunni næsta sumar.
    51 min
  • Útvarpsþátturinn - Ótímabæra spáin og Óli Kristjáns
    Íslenski boltinn er í aðalhlutverki í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikunar.
    Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson opinbera nýja ótímabæra spá fyrir Bestu deildina.
    Ólafur Kristjánsson, yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki, mætir í þáttinn og ræðir um starf sitt í Kópavoginum, íslenska leikmannamarkaðinn og fleira.
    1 hr 43 min
  • Orri Steinn: Þá hefði ég hlegið í andlitið á þér
    Orri Steinn Óskarsson er einn mest spennandi ungi framherji í Danmörku. Hann hefur verið á mála hjá FC Kaupmannahöfn frá því hann yfirgaf Gróttu eftir tímabilið 2019. Þegar Orri hugsar til baka til tímabilsins 2019 þá hugsar hann um lagið sem heyrist í byrjun klippunnar.
    Orri raðaði inn mörkum fyrir U17 og U19 ára lið FCK og steig sín fyrstu skref með aðalliðinu á síðasta ári. Hann kom inn á í lokaleik deildarinnar og kom við sögu í níu leikjum með aðalliðinu á fyrri hluta þessa tímabils.
    Á gluggadaginn var hann lánaður til SönderjyskE út tímabilið. Hann er fenginn til að hjálpa liðinu að fara upp í efstu deild.
    Hann er átján ára gamall og er einn allra efnilegasti leikmaður Íslands. Orri ræðir um tímann hjá FCK til þessa, lífið í Danmörku, ástæðuna fyrir skiptunum til SönderjyskE, hápunktana, lágpunktana og ýmislegt annað.
    21 min
  • Enski boltinn - Boðið upp á bombu klukkutíma fyrir gluggalok
    Tímabil Newcastle og janúarglugginn var það sem var helst til umræðu í hlaðvarpinu Enski boltinn á þessum fimmtudegi.
    Félagaskiptaglugginn lokaði síðasta sunnudag og það er óhætt að segja að félög í ensku úrvalsdeildinni hafi misst sig í gleðinni þegar kom að því að kaupa leikmenn. Þá aðallega Todd Boehly, eigandi Chelsea. Hann ákvað að gera Enzo Fernandez að dýrasta leikmanni í sögu enska boltans rétt áður en glugginn lokaði.
    Gummi og Steinke fengu til sín góðan gest í dag því Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Grindavíkur, mætti á skrifstofuna. Jón Júlíus er mikill stuðningsmaður Newcastle sem hefur átt fantagott tímabil.
    1 hr 8 min
  • Enski boltinn - Óvænt skipti og slúðursögur fyrir gluggadag
    Á morgun er gluggadagur og það er nóg af slúðursögum í gangi er viðkemur félögum í ensku úrvalsdeildinni.
    Fer Moises Caicedo til Arsenal? Fer Enzo Fernandez til Chelsea? Liverpool og Manchester United eru róleg og þá er Manchester City að selja Joao Cancelo.
    Nóg að gerast eins, en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fara yfir allt það helsta í þessum þætti af Enski boltinn hlaðvarpinu.
    Þá er einnig farið yfir helgina í enska FA-bikarnum þar sem 32-liða úrslitin voru spiluð.
    1 hr 18 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners