Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Heimavöllurinn: Lífstíðarbönn eftir að viðbjóðurinn vall upp úr skýrslunni
    Heimavöllurinn er klár í nýtt fótboltaár og ýmsar vendingar hafa þegar orðið í boltanum á nýju ári. Stórtíðindi af lífstíðarbönnum fjögurra þjálfara úr Bandarísku úrvalsdeildinni hafa vakið mikla athygli en gríðarlega stór rannsókn var nýlega gerð á ofbeldi og ofbeldismenningu í deildinni. Daði Rafnsson þekkir vel til í bandaríska boltanum og mætir til að fara yfir málin. Auðvitað í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.
    1 hr 4 min
  • Enski boltinn - Hvað er að hjá Liverpool og hvað gerir Boehly?
    Þeir Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke ræddu það helsta í enska boltanum í dag. Farið var yfir umferðina í síðustu viku og rætt um bikarhelgina.Það er bras á Liverpool, Chelsea og Everton þessa dagana og spilamennska liðanna voru til umræðu. Á Chelsea að láta Potter fara? Hvað er að hjá Liverpool og hefur Darwin Nunez valdið vonbrigðum? Er Rooney lausnin fyrir Everton?Þá var rætt um það helsta í slúðrinu: Hvaða sóknarmann tekur Man Utd? Nær Arsenal að landa Mudryk? Miðjumaður í Liverpool? Endar Enzo í Chelsea?
    1 hr 41 min
  • Útvarpsþátturinn - Flóttinn frá Keflavík og ótímabæra spáin
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 7. janúar. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson.
    Gestur er Sigurður Garðarsson, formaður Keflavíkur, sem svarar fyrir sögur um að fjárhagserfiðleikar herji á félagið. Lið Keflavíkur hefur misst marga lykilmenn frá síðasta tímabili og stuðningsmenn hafa áhyggjur.
    Þá er farið yfir fyrstu ótímabæru spá Bestu deildarinnar 2023. Farið er yfir hvað liðin hafa gert á félagaskiptamarkaðnum í vetur.
    1 hr 41 min
  • Enski boltinn - Er þetta í alvöru að fara að gerast?
    Langt síðan síðast. Enski boltinn snýr aftur í dag úr HM-pásu og stuttu jólafríi.
    Enska úrvalsdeildin er komin aftur á fleygiferð og er spilað mjög þétt um þessar mundir. Tvær umferðir fóru fram á milli jóla og nýárs. Svo er leikur í kvöld þegar Liverpool og Brentford mætast.
    Er Arsenal í alvöru að fara að vinna þessa deild? Hringt var í Gunnar Birgisson, íþróttafréttamann og harðan stuðningsmann liðsins, til þess að ræða það. Þá var farið yfir stöðu mála og janúargluggann. Hvað eiga stóru félögin að gera í glugganum?
    1 hr 43 min
  • Útvarpsþátturinn - Áramótakæfan 2022
    Elvar Geir, Tómas og Benedikt Bóas gera upp fótboltaárið 2022 og veita verðlaun í ýmsum flokkum. Hilmar Jökull á línunni, Bjarki Már Elísson handboltahetja er heiðursgestur og Röddin mætir í lokin. Flugeldasýning og stuð þar sem gleðin er í fararbroddi.
    Takk kærlega fyrir hlustunina á árinu!
    1 hr 50 min
  • Heimavöllurinn: Áramótabomban 2022
    Heimavöllurinn snýr aftur eftir haustpásu og nú er komið að því að gera upp fótboltaárið sem er að líða. Reynsluboltarnir og kempurnar Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, Helena Ólafsdóttir og Kristrún Lilja Daðadóttir mæta í sett og fara yfir árið með Mist Rúnarsdóttur. Þátturinn er sem fyrr í boði Orku Náttúrunnar, Dominos og Heklu.
    1 hr 15 min
  • Elísabet leyfir smábænum að dreyma - Hvað tekur svo næst við?
    Elísabet Gunnarsdóttir er einn besti fótboltaþjálfari sem hefur komið frá Íslandi, það er óhætt að fullyrða það.
    Hún hefur frá því í janúar árið 2009 þjálfað Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún hefur náð mjög svo eftirtektarverðum árangri. Þar áður gerði hún Val að besta liði landsins, mögulega var það besta lið Íslandssögunnar.
    Í þessum hlaðvarpsþætti fer Elísabet yfir byrjunina á þjálfaraferlinum, verkefnið í smábænum Kristianstad, framtíðina og margt fleira. Markmiðin eru skýr fyrir næstu leiktíð en hvað gerist næst eftir að þessum langa Kristianstad-kafla lýkur?
    Það verður fróðlegt að sjá en hún er með samning við félagið út næstu leiktíð.
    1 hr 10 min
  • HM hringborðið - Allt í efsta stigi á mótinu hans Messi
    Síðasta HM hringborðið! Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Laufdal gera upp stórkostlegan úrslitaleik HM.
    Lionel Messi lyfti heimsmeistarabikarnum eftir sigur Argentínu í hreint rosalegum úrslitaleik, skemmtilegasta úrslitaleik sögunnar.
    Rætt er um leikinn, þetta svakalega argentínska lið, Guðmundur velur sitt úrvalslið mótsins og Arnar fimm bestu ungstirni mótsins.
    1 hr 4 min
  • Útvarpsþátturinn - Úrvalslið HM og Birkir Már um Messi og Mbappe
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 17. desember.
    Elvar Geir og Sæbjörn Steinke í hljóðveri X977 á Suðurlandsbraut og Tómas Þór beintengdur frá hljóðveri DR í Kóngsins Kaupmannahöfn.
    Hitað er upp fyrir úrslitaleik HM, úrvalslið mótsins valið, HM leikmenn sendir í ensku úrvalsdeildina og Birkir Már Sævarsson er á línunni. Birkir Már þekkir það að mæta bæði Argentínu og Frakklandi. Hvort er erfiðara að mæta Messi eða Mbappe?
    Síðasti þáttur fyrir jól. Gleðilega hátíð!
    1 hr 19 min
  • Arnar útskýrir landsliðsvalið - Einn í viðbót valinn
    Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tilkynnti í dag 22 leikmenn sem verða í landsliðshópnum í janúar þegar spilað verður við Svíþjóð og Eistlandi á Algarve í Portúgal.
    Tveir nýliðar eru í hópnum, það eru þeir Aron Bjarnason og Nökkvi Þeyr Þórisson. Aron Sigurðarson er þá í hópnum í fyrsta sinn síðan í janúar 2018. Fótbolti.net ræddi við landsliðsþjálfarann í dag og spurði hann sérstaklega út í þessa þrjá leikmenn auk þess sem spurt var út í yngsta leikmann hópsins, Danijel Dejan Djuric.
    23. leikmaðurinn verður svo tilkynntur síðar. „Við erum að bíða eftir svari frá nokkrum klúbbum," sagði Arnar um 23. manninn í viðtalinu.
    Arnar kom inn á að sum félög á Norðurlöndunum hefðu ekki hleypt leikmönnum sínum í verkefnið. Hann fór yfir janúarverkefnið, valið á hópnum, ræddi um landsliðsárið 2022 og ýmislegt annað í viðtalinu sem má nálgast í spilaranum hér að ofan, á Spotify og öllum hlaðvarpsveitum.
    23 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners