Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Björn Már fer yfir Juventus málið
    Á föstudag bárust þær risastóru fréttir að fimmtán stig voru dregin af ítalska stórliðinu Juventus. Félagið er undir rannsókn vegna alvarlegra fjársvika þar sem svindlað hefur verið í bókhaldi og leikmönnum greitt svart.
    Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann og einn af umsjónarmönnum hlaðvarpsþáttarins Punktur og Basta, ræddi við Sæbjörn Steinke um málið.
    Enn eru margir lausir endar en farið var yfir helstu vinkla málsins og velt vöngum um hvað gæti gerst á næstu vikum og jafnvel mánuðum.
    Ráðamenn fara í bann, hversu langt? Gætu leikmenn farið í bann? Hafa þeir fengið þessar svörtu greiðslur? Gæti Juventus misst enn fleiri stig?
    29 min
  • Enski boltinn - Landsbyggðin talar um hugarfarsskrímsli
    Mikið var rætt um sigur Arsenal á Manchester United í þætti dagsins og orðin mentality monsters notuð til að lýsa Arsenal liðinu.
    Ingimar Helgi Finnsson var á línunni og ræddi um Tottenham og Óskar Smári Haraldsson gasaði um sína menn í Liverpool.
    Arsenal er með fimm stiga forskot og á leik til góða, en tvær innbyrðisviðrueignir eru eftir við City. Hvort liðið verður meistari? Nær Tottenham Meistaradeildarsæti?
    1 hr 16 min
  • Útvarpsþátturinn - Adam Páls, íslensk tíðindi og Arsenal fær rödd
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. janúar.
    Elvar Geir, Benedikt Bóas, Kári Kongó og nýjasti leikmaður Vals, Adam Pálsson, í hljóðveri.
    Fréttir úr íslenska boltanum, Arsenal er á toppnum í enska, Newcastle í Meistaradeildarbaráttu og þá er Arnar Daði sérfræðingur í beinni frá Gautaborg í handboltahorninu.
    1 hr 50 min
  • Heimavöllurinn - Bleikir fílar, samstaða og Sara sigrar
    Ár er síðan Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna voru endurvakin og þau hafa haft í nægu að snúast. Á Heimavöllinn eru mættar þær Anna Þorsteinsdóttir, forseti samtakanna, og Rebekka Sverrisdóttir, nýliði í stjórn. Þær fara yfir málin sem hafa verið veigamest á þessu fyrsta starfsári og rýna í það hvar gera má betur hvað varðar umgjörð um knattspyrnu kvenna. Þetta gera þær að sjálfsögðu í boði Dominos og Orku Náttúrunnar
    54 min
  • Enski boltinn - London er rauð og það er Manchester líka
    Það er nóg um að ræða í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í dag. Það voru tveir mjög svo áhugaverðir nágrannaslagir um helgina.
    Manchester United og Arsenal stóðu uppi sem sigurvegarar í þessum tveimur leikjum eru gestir dagsins Albert Hafsteinsson og Magnús Ingi Þórðarson, leikmenn Fram. Albert heldur með Arsenal og Magnús er stuðningsmaður United.
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fara yfir málin með þeim tveimur.
    Farið er yfir alla leiki helgarinnar og undir lokin á þættinum er uppgjör á deildinni hingað til, en hún er svo gott sem hálfnuð. Þá er rætt um Úkraínumanninn Mikhaylo Mudryk sem fór til Chelsea frekar en Arsenal.
    1 hr 34 min
  • Arnar gerir upp janúarverkefnið - „Viljum ekki vera lið sem er fyrirsjáanlegt"
    Ísland lék tvo vináttuleiki í janúar, fyrri leikurinn var gegn Eistlandi og sá seinni var gegn Svíþjóð. Leikið var í Portúgal, fyrri leikurinn endaði með jafntefli en seinni leikurinn tapaðist.
    Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson ræddi við Sæbjörn Steinke og voru leikirnir gerðir upp. Rætt var um leikkerfi, leikmenn sem heilluðu, seinni vítaspyrnuna gegn Eistlandi og ýmislegt annað. Arnar segir að það sé ekkert leyndarmál að einhverjir í þessum hópi komi til greina í næstu landsleiki.
    Þegar líður á viðtalið er Arnar spurður út í marsverkefnið þar sem alvaran hefst, fyrsti leikur í undankeppni EM er gegn Bosníu á útivelli. Gæti Albert Guðmundsson verið með í því verkefni?
    21 min
  • Útvarpsþátturinn - Janúarverkefni Íslands og viðburðarík fréttavika í Bestu
    Það er tíðindamikil vika að baki í boltanum, bæði hér heima og erlendis. Í útvarpsþættinum Fótbolti.net fara Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke yfir allt það helsta.
    Janúarverkefni íslenska landsliðsins, ótrúleg úrslit í Reykjavíkurmótinu, leikmannahræringar í Bestu deildinni og enski boltann koma við sögu.
    Í handboltahorninu er hringt til Svíþjóðar og púlsinn tekinn á Henry Birgi Gunnarssyni.
    1 hr 36 min
  • Enski boltinn - Krísuástandið hjá Chelsea krufið til mergjar
    Í dag fá Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke góðan gest í hlaðvarpsþáttinn Enski boltinn.
    Stefán Marteinn Ólafsson mætti á skrifstofuna og fór yfir það hvað í ósköpunum væri í gangi hjá Chelsea þessa stundina.
    Chelsea tapaði fyrir Fulham í gær og það er krísuástand á Brunni um þessar mundir. Graham Potter, stjóri liðsins, virðist sigraður og staða hans er auðvitað rædd ásamt ýmsu öðru.
    Þá er einnig rætt um deildabikarinn og rosalega umferð sem er framundan í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
    1 hr 10 min
  • Freysi um Söru Björk: Draumur fyrir alla þjálfara
    Í morgun tilkynnti Sara Björk Gunnarsdóttir að landsliðsskórnir væru komnir á hilluna eftir sextán ára feril. Hún fór á fjögur stórmót, lék 145 landsleiki og skoraði 24 landsliðsmörk á sínum ferli.
    Á árunum 2013-2018 lék hún undir stjórn Freys Alexanderssonar í landsliðinu. Freyr er í dag þjálfari Lyngby í Danmörku og ræddi við Fótbolta.net um Söru Björk í kjölfar tíðindanna í dag.
    Freyr gerði Söru að fyrirliða á sínum tíma þegar Margrét Lára Viðarsdóttir var með barni og leiddi hún liðið á EM í Hollandi þegar Freysi var þjálfari liðsins.
    Í seinni hluta viðtalsins ræddi svo Freysi um stöðuna hjá Lyngby sem hefur misst lykilmenn núna í glugganum og er í erfiðri stöðu í dönsku Superliga.
    23 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners