Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Engin vitleysa töluð hjá Djuric bræðrum
    Fótboltabræðurnir Danijel Dejan og Nikola Dejan Djuric eru gestir í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni.
    Þeir settust niður með Guðmundi Aðalsteini á þessu mánudagskvöldi og fóru yfir helgina í enska boltanum. Það var nóg að ræða, þá helst úrslitaleikur enska deildabikarsins í gær.
    Danijel er stuðningsmaður Chelsea en hann er tilbúinn að styðja við bakið á Graham Potter þrátt fyrir slakt gengi að undanförnu. Chelsea tapaði gegn Tottenham um helgina.
    Nikola er aðallega stuðningsmaður Real Madrid en fylgist gífurlega vel með öllum fótbolta. Hann segir það klárt mál að Arsenal verði meistari í lok tímabilsins.
    1 hr 4 min
  • Útvarpsþátturinn - Ótímabæra Lengjuspáin
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 25. febrúar. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór.
    Farið yfir leikina í Lengjubikarnum og burðarefni þáttarins er ótímabær spá fyrir Lengjudeildina. Sigurður Heiðar Höskuldsson, aðstoðarþjálfari Vals, er sérstakur sérfræðingur og skoðar öll lið deildarinnar.
    Í lok þáttarins er aðeins skoðað hvað er í gangi í enska boltanum um helgina.
    1 hr 44 min
  • Enski boltinn - Allt blómstrar á Old Trafford og þarfagreining á Anfield
    Það er feikilega mikið í gangi í boltanum og því er hér mættur þriðji þátturinn af Enska boltanum þessa vikuna. Elvar Geir og Guðmundur Aðalsteinn fengu Magnús Hauk Harðarson til sín til að skoða málin.
    Rýnt í Evrópuleiki vikunnar og hitað upp fyrir leiki helgarinnar, þar á meðal úrslitaleik Manchester United og Newcastle í deildabikarnum.
    Magnús er stuðningsmaður Liverpool og skoðar það sem hann vill sjá gerast hjá sínum mönnum í sumar.
    1 hr 9 min
  • Heimavöllurinn - Túr, bros og takkaskór
    Kynin er líffræðilega ólík en lengst af hefur lítið tillit verið tekið til þess er kemur að þjálfun í íþróttum. Flestar íþróttarannsóknir hafa verið miðaðar að körlum og íþróttabúnaður að mestu hannaður fyrir karllíkamann. Þetta er þó að breytast og mikil vitundarvakning er að eiga sér stað. Þema Heimavallarins að þessu sinni er þjálfun kvenna og gestir þáttarins sérfræðingar á því sviði. Það eru þær Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Katrín Ýr Friðgeirsdóttir. Báðar hafa þær kynnt sér þjálfun út frá ýmsum vinklum. Bára er bæði sjúkra- og knattspyrnuþjálfari og Katrín starfar sem styrktarþjálfari samhliða doktorsnámi í íþróttafræðum við HR.
    Þátturinn er sem fyrr í boði vina okkar hjá Orku Náttúrunnar og Dominos og við kunnum þeim bestu þakkir fyrir að styðja við umfjöllun um knattspyrnu kvenna.
    1 hr 9 min
  • Enski boltinn - Liverpool niðurlægt og Katar eða Ratcliffe?
    Manchester United og Liverpool voru aðallega til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag.
    Liverpool tapaði 2-5 fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni í gær. Ótrúlegur leikur en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu í Atla Má Steinarsson, fjölmiðlamann, til að ræða leikinn og tímabilið hjá Liverpool.
    Þá hringdu þeir einnig í Tryggva Pál Tryggvason, fréttamann á Stöð 2 og Vísi, til að fara yfir tímabilið hjá Manchester United, möguleg eigendaskipti og leikinn gegn Barcelona á morgun.
    Hvort vill Tryggvi fá Katar eða Sir Jim Ratcliffe í eigendastólinn?
    1 hr 31 min
  • Júlli Magg: Snerist frá þeirri hugsun á lokametrunum
    Júlíus Magnússon samdi við norska félagið Fredrikstad í lok síðasta mánaðar. Júlíus var fyrirliði Víkings á síðasta tímabili og var í algjöru lykilhlutverki í liðinu sem endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar og vann bikarmeistaratitil.
    Hann er 24 ára djúpur miðjumaður sem lék með Víkingi í fjögur tímabil eftir að hafa komið heim frá hollenska félaginu Heerenveen þar sem hann lék með unglingaliðum og varaliði.
    Hann ræðir um félagaskiptin, ákvörðunina, norska félagið, landsliðið og Víking í viðtalinu.
    17 min
  • Ægismenn fá allt aðra áskorun - Upp um deild í febrúar
    Að félag komist upp um deild á Íslandi í febrúar er fáheyrður atburður, en það gerðist síðasta laugardag þegar KSÍ staðfesti að Kórdrengir yrðu ekki með í sumar.
    Ægir, sem lenti í þriðja sæti 2. deildar á síðasta tímabili, mun spila í Lengjudeildinni en þetta hafði líka áhrif í öðrum deildum. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni þar sem Ægir spilar í næst efstu deild en félagið náði sínum besta árangri í sögunni síðasta sumar.
    Núna þurfa Ægismenn að undirbúa sig fyrir allt aðra áskorun en þeir voru að undirbúa sig fyrir.
    Baldvin Már Borgarsson, aðstoðarþjálfari Ægis, mætti í gott spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag þar sem hann fór yfir fréttirnar og tímabilið sem er framundan.
    52 min
  • Enski boltinn - Möguleg meistaraheppni
    Tíðindamikil helgi í ensku úrvalsdeildinni er gerð upp í hlaðvarpsþættinum enski boltinn. Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Tómas Þór í þættinum að þessu sinni.
    Allt sem Ten Hag snertir virðist breytast í gull, Tottenham komið í Meistaradeildarsæti, Arsenal er aftur skellihlæjandi á toppnum, City fór illa með færin og Newcastle fór illa að ráði sínu gegn Liverpool.
    59 min
  • Enski boltinn - Ekki bara tveir hestar, heldur þrír
    Það er frábær fótboltavika að baki þar sem hæst stóð stórleikur Arsenal og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.
    Titilbaráttan er galopin en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fengu Jón Kaldal, stuðningsmann Arsenal, til að fara yfir stórleikinn.
    Jón er á þeirri skoðun að titilbaráttan sé ekki tveggja hesta kapphlaup, heldur sé um þrjá hesta að ræða.
    Í þættinum var jafnframt farið yfir leiki vikunnar í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni.
    1 hr 7 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners