Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Niðurtalningin - Höfðinginn fer yfir stöðuna hjá Íslandsmeisturunum
    Þá er komið að síðasta þættinum í niðurtalningunni fyrir Bestu deild karla þetta árið. Við endum á liðinu sem er spáð sjálfum Íslandsmeistaratitlinum.
    Breiðablik er ríkjandi meistari og því er spáð af sérfræðingum Fótbolta.net að þeir muni verja titilinn.
    Kristján Óli Sigurðsson, betur þekktur sem Höfðinginn, kom við á skrifstofu .net í dag og fór yfir stöðuna hjá sínum mönnum.
    Þá var einnig hringt í Viktor Karl Einarsson, miðjumann Blika, og hann spurður út í síðasta tímabil og sumarið sem er framundan.
    46 min
  • Niðurtalningin - Síðasta tímabil er gleymt og grafið
    Besta deildin byrjar að rúlla eftir helgi og í dag klárast niðurtalningin fyrir mótið. Valsmönnum er spáð öðru sæti deildarinnar eftir mikið vonbrigðartímabil í fyrra.
    Nýtt upphaf er hjá liðinu undir stjórn Arnars Grétarssonar og Sigurðar Heiðars Höskuldssonar.
    Benedikt Bóas Hinriksson og Jóhann Alfreð Kristinsson mættu á skrifstofu Fótbolta.net á föstudeginum langa og fóru yfir margt og mikið sem tengist Val. Þeir eru bjartsýnir fyrir komandi tímabili og hafa mikla trú á liðinu.
    Þá var hringt í Sigurð Egil Lárusson, leikmann liðsins, í seinni hluta hlaðvarpsins. Hann er að fara að spila nýja stöðu í sumar og er spenntur fyrir því.
    1 hr 7 min
  • Niðurtalningin - Er það besta sem hefur komið fyrir Víking mjög lengi
    Besta deildin byrjar að rúlla næsta mánudag og það styttist í annan endann á upphitun okkar fyrir mótið. Víkingum er spáð þriðja sæti deildarinnar.
    Tómas Guðmundsson, fyrrum leikmaður liðsins, kíkti við á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir málin í Fossvoginum. Hann lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021 þegar Víkingar urðu tvöfaldir meistarar.
    Þá var Viktor Örlygur Andrason, miðjumaður Víkinga, á línunni þar sem hann fór aðeins yfir síðasta tímabil og undirbúningsvinnuna í vetur.
    35 min
  • Fjármálaspjall - Sævar Pétursson
    Framkvæmdastjóri KA birti tíst í lok síðasta mánaðar þar sem segir:
    „Innan við tvær vikur í Bestu deildina. Rekstur félaganna verður erfiðari og erfiðari með hverju ári. Niðurstaða 10/12 félaga sem mæta til leiks í sumar er rúmar 230 milljónir í mínus 2022 ef við tökum út fyrir sviga arf sem er ótengdur rekstri. Deildin okkar er ekki sjálfbær."
    Fréttaritari Fótbolta.net var í heimsókn á Akureyri og þótti tilvalið að ræða við Sævar Pétursson almennt um rekstur félaga, með fókus á knattspyrnudeildir þeirra. Spjallið er að mestu miðað út frá KA og Bestu deild karla.
    Hver veit nema þetta spjall veki upp frekari umræðu og púlsinn tekinn á fleiri aðilum sem koma að rekstri knattspyrnudeilda.
    35 min
  • Heimavöllurinn: Hættir á toppnum eftir 21 tímabil
    Landsliðsmarkvörðurinn Sandra Sigurðardóttir tilkynnti fyrir rétt um mánuði að hanskar og skór væru komnir á hilluna. Sandra mætir á Heimavöllinn og fer yfir ferilinn sem spannar 21 tímabil í efstu deild en hún hættir sem langleikjahæsti leikmaður efstu deildar, tvöfaldur meistari og einn besti leikmaður landsliðsins á síðasta ári.
    1 hr 22 min
  • Niðurtalningin - Stefnt á Íslandsmeistaratitilinn
    Niðurtalningin heldur áfram og nú er komið að fjórða sætinu. KA menn enda þar ef spáin rætist.
    Til þess að ræða um KA mætti Egill Sigfúson eðlilega í Þorpið og fór yfir það helsta; Evrópuleikir í sumar, síðasta tímabil, nýju leikmennina og hvar hann sér KA enda í sumar.
    Í seinni hlutanum er rætt við Svein Margeir Hauksson, miðjumann KA, um undirbúningstímabilið, síðasta tímabil, landsliðið, komandi tímabil, Dalvík og ýmislegt annað.
    50 min
  • Niðurtalningin - Allt fyrir neðan fyrsta sæti er vonbrigði
    Besta deildin byrjar að rúlla næsta mánudag og upphitun okkar er í fullum gangi. KR er spáð fimmta sæti deildarinnar í spá Fótbolta.net fyrir mótið.
    Atli Jónasson, fyrrum markvörður KR, var gestur á skrifstofu .net í dag og fór yfir stöðuna hjá félaginu. Árangurinn var ekki góður
    hjá karlaliði KR í körfuboltanum í vetur og því eru miklar vonir bundnar við fótboltann í sumar.
    Þá var Aron Þórður Albertsson, leikmaður KR, á línunni eftir æfingaleik liðsins við Fram í kvöld. Það var síðasti undirbúningsleikur KR fyrir mót.
    35 min
  • Upphitun Innkastsins - Arnar Grétarsson
    Síðasti þátturinn í þríleik Innkastsins fyrir Bestu deildina. Nú er Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, gestur.
    Arnar tók við Val í vetur og ræðir um fyrstu mánuði sína í starfi og hvernig hefur gengið að rétta úr kútnum á Hlíðarenda eftir vonbrigðin á síðasta tímabili.
    Umsjónarmaður: Elvar Geir Magnússon.
    57 min
  • Niðurtalningin - Framtíðin björt en titilbarátta óraunhæf núna
    Besta deildin byrjar að rúlla þar næsta mánudag og upphitun okkar er komin á fullt. Stjörnunni er spáð sjötta sæti deildarinnar í spá Fótbolta.net.
    Til þess að ræða Stjörnuna þá heyrði Guðmundur Aðalsteinn í fjölmiðlamanninum Þorkeli Mána Péturssyni en hann er Stjörnumaður mikill. Máni er hrifinn af því verkefni sem er í gangi í Garðabænum þessa stundina.
    Þá var einnig hringt í Jóhann 01, Jóhann Árna Gunnarsson. Hann gekk í raðir Stjörnunnar frá Fjölni fyrir síðasta tímabil og er á leið inn í sína aðra leiktíð með félaginu.
    40 min
  • Enski boltinn - Rígheldur í miðann þrátt fyrir gylliboð
    Það eru endurfundir í Enska boltanum þessa vikunar þar sem Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz ræða um leiki helgarinnar og rifja upp gamla tíma.
    Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson er með þeim og er meðal annars rætt um brottrekstra gærdagsins en Leicester og Chelsea tóku fram stígvélið.
    Daníel er stuðningsmaður Arsenal og á miða á lokaleik tímabilsins, þar sem bikarinn gæti farið á loft.
    56 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners