Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - El Jóhann hitar upp fyrir Þorláksmessuveislu
    Twitter-kóngurinn El Jóhann er gestur Enska boltans hlaðvarpsins á þessum ágæta föstudegi.
    Hann hitar upp fyrir Þorláksmessuveisluna sem er í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Það eru áhugaverðir leikir á dagskrá og endar dagurinn með stórleik Liverpool og Arsenal.
    Arsenal er á toppnum sem stendur en El Jóhann er mikill Arsenal-maður. Hann spáir þeim auðvitað sigri í leiknum en í þættinum stillti hann upp sameiginlega byrjunarliði þessara tveggja liða.
    Gleðilega hátíð kæru hlustendur!
    33 min
  • Viðar Ari - Ævintýraþrá og ótrúleg saga
    Viðar Ari Jónsson gekk í raðir norska félagsins HamKam í lok sumargluggans eftir að hafa spilað í mánuð með FH.
    Hann kom í FH eftir að hafa leikið með Honved í Ungverjalandi. Viðar ræðir hvernig hann endaði í Búdapest eftir frábært tímabil með Sandefjord í Noregi 2021.
    Í aðdraganda skiptanna var hann mjög nálægt því að semja við ísraelsku meistarana og Viðar segir frá því hvernig þau skipti duttu upp fyrir sig.
    Í viðtalinu ræðir hann um mótlætið í Honved og langa leið inn á völlinn hjá HamKam.
    28 min
  • Enski boltinn - Fljótur að yfirgefa hópspjallið
    Jafntefli var niðurstaðan á Anfield í gær þegar Liverpool og Manchester United áttust við.
    Það var mikið að ræða eftir leikinn en Gummi og Steinke fengu Orra Frey Rúnarsson í heimsókn í Thule-stúdíóið til að fara yfir leikinn og allt sem gerðist í kringum hann.
    United-menn fagna stiginu á meðan Liverpool-stuðningsmenn eru pirraðir.
    Það var svo nóg annað að ræða eftir helgina en jólin eru besti tími ársins í enska boltanum.
    1 hr 13 min
  • Útvarpsþátturinn - Besta þarfagreiningin
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 16. desember.
    Farið er í þarfagreiningu fyrir lið Bestu deildarinnar og skoðað hvar þau þurfa helst að styrkja sig fyrir tímabilið á næsta ári.
    Í leiðinni er farið yfir fréttir og slúður úr deildinni, rætt um skellinn sem Breiðablik fékk í Póllandi og janúarverkefni landsliðsins.
    Elvar Geir og Tómas Þór og Valur Gunnars. Málsmetandi aðili þáttarins er Sæbjörn Steinke.
    1 hr 32 min
  • Enski boltinn - Tryllt læti í Köben og United kveður
    Riðlakeppni Meistaradeildarinnar kláraðist í gærkvöldi og má svo sannarlega tala um ótrúlega niðurstöðu.
    FC Kaupmannahöfn frá Danmörku komst áfram úr riðli sem innihélt Bayern München og Manchester United, en síðarnefnda liðið endaði á botni riðilsins.
    Í þessari sérstöku aukaútgáfu Enski boltinn hlaðvarpinu í dag var hringt til Danmerkur og rætt við íþróttafréttamanninn Runólf Trausta Þórhallsson.
    Spjallað er við hann um magnaðan árangur FCK, unglingaliðið sem er einnig er að ná frábærum árangri og svo auðvitað um Manchester United. Á United einhvern möguleika gegn Liverpool núna um helgina?
    Þá er auðvitað minnst á niðurstöðu í öðrum riðlum og dráttinn sem er framundan. Það er spilað í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni í kvöld, og þá verður enski boltinn á sínum stað um helgina.
    45 min
  • Tiltalið: Fanndís Friðriksdóttir
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Íslandsmeistara Vals og fyrrum landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    1 hr 41 min
  • Enski boltinn - Meistarasigur og tvö stórlið í brasi
    Enska úrvalsdeildin heldur áfram að skemmta Íslendingum en þó mismikið eftir því hvaða liði fólk heldur með.
    Það var stórskemmtilegt að fylgjast með umferðinni um helgina en til þess að kryfja hana þá kom Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Síminn Sport, í heimsókn í Thule-stúdíóið í dag.
    Gummi og Steinke eru á sínum stað að venju en farið er yfir alla leiki helgarinnar í enska boltanum.
    1 hr 19 min
  • Ungstirnin - Frelsari Svíþjóðar og skærasta ungstirni Afríku
    Í þessum 50. þætti Ungstirnanna fara þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein yfir víðan völl.
    Ibrahim Diarra (2006) ein skærasta stjarna Afríku. Hann skoraði 5 mörk og gerði 4 stoðsendingar á HM U-17 ára þegar að lið Malí lenti í 3.sæti og segir sagan að hann sé þegar búinn að skrifa undir samning hjá Barcelona.
    Lucas Bergvall (2006) er efnilegasti leikmaður Svíþjóðar um þessar mundir og einn sá efnilegasti í allri Evrópu. Lið eins og Manchester United, Barcelona, Inter Milan og RB Leipzig eru að fylgjast með kappanum.
    Endrick er búinn að sýna heiminum afhverju hann var keyptur til Real Madrid á 60 milljónir evra.
    Við erum að fá að kynnast svo mörgum stjörnum að verða til á HM U-17 ára eins og t.d. Ibrahim Diarra, Agustin Ruberto, Claudio Echeverri og Paris Brunner.
    Hvaða stórlið ætlar að kaupa Marcos Leonardo frá Santos eftir að þeir féllu úr brasilísku úrvalsdeildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins?
    1 hr 15 min
  • Útvarpsþátturinn - Góðir gestir á aðventunni
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 9. desember.
    Í fyrri hluta þáttarins mætir Axel Óskar Andrésson í hljóðver. Fjallað hefur verið um að þessi öflugi varnarmaður Örebro sé að hugsa um að færa sig um set.
    Þá mætir Aron Elís Þrándarson en hann kom heim til Víkings á liðnu sumri eftir atvinnumennsku og lét heldur betur að sér kveða áður en Víkingar lyftu bikurum tímabilsins.
    1 hr 33 min
  • Enski boltinn - Up the Villa!
    Aston Villa hefur gert frábæra hluti á þessari leiktíð og er í baráttu um Meistaradeildarsæti, jafnvel um enska meistaratitilinn.
    Villa er sem stendur fjórum stigum frá toppnum þegar liðið mætir toppliði ensku deildarinnar, Arsenal, á heimavellii núna um helgina.
    Jón Haukur Baldvinsson, stuðningsmaður Aston Villa, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu þennan föstudaginn en hann fer yfir velgengni Villa á þessari leiktíð og áhuga sinn á félaginu.
    Gummi og Steinke eru svo að venju í þættinum en farið er yfir leiki vikunnar í enska boltanum þar sem Villa vann meðal annars magnaðan sigur á Manchester City.
    54 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners