Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Gunnar í skýjunum með magnað gengi
    Gummi og Steinke halda utan um stjórnartaumana í Enski boltinn hlaðvarpinu að venju en með þeim í dag er sannkallaður heiðursgestur, Gunnar Sigurðarson.
    Rætt er aðallega við Gunnar, sem er gallharður Ipswich maður, um hans heittelskaða félag.
    Ipswich hefur verið að gera frábæra hluti í Championship-deildinni og er liðið sem stendur í öðru sæti með gott forskot á liðin fyrir neðan.
    Ipswich komst upp úr C-deildinni á síðasta tímabili en Kieran McKenna, fyrrum aðstoðarmaður Jose Mourinho og Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United, hefur verið að vinna frábært starf hjá félaginu.
    1 hr 9 min
  • Mikael Nikulásson: Ætlum að keyra þetta í gang
    Mikael Nikulásson framlengdi samning sinn við KFA á dögunum og stýrir því liðinu í annað tímabil næsta sumar.
    Mikael, eða Mike eins og hann er oftast kallaður, gerði flotta hluti með KFA síðasta sumar en liðið var taplaust lengi vel. Liðið rétt missti þó af því á endanum að komast upp í Lengjudeildina.
    Þessi skemmtilegi þjálfari ræddi við Fótbolta.net í dag um þá ákvörðun að framlengja við KFA, síðasta sumar og framhaldið hjá félaginu.
    Hann lofar því að KFA mæti með hörkulið á næstu leiktíð en það er góð stemning fyrir fótboltanum á Austurlandi.
    21 min
  • Innkastið - Ómar Ingi um landsliðið og HK
    Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, ræddi við þá Sæbjörn Steinke og Guðmund Aðalstein í fyrri hluta þáttarins um stöðu landsliðsins og leikinn gegn Slóvakíu í gær.
    Farið var yfir frammistöðu liðsins sem var ekki nógu góð en Ómar nefndi þó tvo leikmenn sem hann var ánægður með. Einnig var aðeins snert á U21 landsliðinu.
    Í seinni hluta þáttarins ræddi hann svo um HK; tímabilið 2023, leikmannamál og ýmislegt annað.
    1 hr 24 min
  • Tiltalið: Halldór Árnason
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfari Bestu deildarliðs Breiðabliks, Halldór Árnason. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.Þessi þáttur er í boði Bjórland. Kynntu þér hágæða Íslenskt handverksöl á bjorland.is og ekki gleyma afláttarkóðanum "Tiltalid". 
    2 hr 9 min
  • Enski boltinn - Einhver veikasti leikur síðari ára
    Leikur Chelsea og Manchester City er einhver skemmtilegasti leikur sem hefur verið spilaður í ensku úrvalsdeildinni á síðustu árum. Það var hrein unun að fylgjast með leiknum.
    Kári Snorrason, stuðningsmaður Chelsea, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag en hann ræddi mikið við Gumma og Steinke um stórleikinn í gær.
    Hann ræddi einnig um stöðuna hjá Chelsea og svo var farið yfir aðra leiki helgarinnar.
    59 min
  • Útvarpsþátturinn - Biggi ÍTF og Arnar Grétars
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 11. nóvember.
    Í fyrri hluta þáttarins í dag er Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF gestur. Rætt er um hvað íslenski boltinn getur lært af þeim danska og hvað var jákvætt og hvað neikvætt í mótafyrirkomulagi Bestu deildarinnar á liðnu sumri.
    Í seinni hlutanum kemur Arnar Grétarsson þjálfari Vals í heimsókn. Fótboltasumarið á Hlíðarenda er gert upp og horft fram á veginn.
    1 hr 51 min
  • Enski boltinn - Kaos, hatur og fáránleg yfirlýsing
    Tveir af áhugaverðari leikjum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni til þessa fóru fram í elleftu umferðinni sem var leikin núna um helgina.
    Tottenham tapaði 1-4 gegn Chelsea í mögnuðum fótboltaleik í gærkvöldi og þá vann Newcastle 1-0 sigur gegn Arsenal. Síðarnefnda liðið sendi frá sér yfirlýsingu eftir leik út af ósætti með dómgæsluna. Er Mikel Arteta mesti vælukjói enska boltans?
    Gummi og Steinke fara yfir þessa umferð en á línunni er sjálf litla flugvélin, Ingimar Helgi Finnsson.
    1 hr 5 min
  • Ungstirnin - Við lifum í heimi Jude Bellingham
    Assan Ouedraogo (2006) er mjög eftirsóttur af Liverpool skv Sky Sports en Barcelona, Real Madrid eru nokkur lið sem eru á eftir þessum efnilega miðjumanni sem spilar fyrir Schalke.
    Savio (2004) er tekknískur Brassi sem hefur verið í lykilhlutverki á kantinum hjá toppliði Girona á Spáni sem er undir smásjá hjá Barcelona líkt og Ouedraogo.
    Hversu rugl góður er Jude Bellingham, er hann betri en Musiala? Zaire-Emery að spila eins og fullorðinn maður hjá PSG og hversu nett er það að Sædís Rún fór til Englandsmeistara Chelsea á reynslu?
    Íslendingalið Elfsborg klikkaði fyrsta séns á sænska meistaratitlinum, stútfullt Skandinavíuhorn, Jeremy Doku á eldi, Kristian Hlyns orðinn byrjunarliðsmaður í stærsta liði Hollands og margt margt fleira.
    1 hr 14 min
  • Útvarpsþátturinn - Fréttir vikunnar, Lyngby og Kristján Atli gerir upp enska boltann
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. nóvember.
    Umsjón: Tómas Þór og Benedikt Bóas.
    - Fótboltafréttir vikunnar. Meiri umræða um ráðningu KR á Gregg Ryder og sjö lið í Bestu-deildinni hafa ekki gengið frá ráðningu aðstoðarþjálfara.
    - Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net í símaspjalli frá Kaupmannahöfn á leið á leik hjá Lyngby.
    - Kristján Atli Ragnarsson mætti svo og gerði upp fyrsta fjórðung í enska boltanum.
    1 hr 47 min
  • Úlfur hefur ekki áhyggjur: Þarf ekki alltaf að sækja einhvern nýjan
    Á síðustu dögum hefur verið greint frá því að fjórir reynslumiklir leikmenn væru horfnir á brott úr leikmannahópi Fjölnis. Það eru þeir Hans Viktor Guðmundsson, Guðmundur Þór Júlíusson, Bjarni Gunnarsson og Dofri Snorrason.
    Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, ræddi brotthvarf leikmannanna í viðtali í dag. Mikil reynsla er farinn úr hópnum en Úlfur hefur ekki áhyggjur.
    Úlfur ræddi einnig um tímabil Fjölnis, tímann sem þjálfari hjá Fjölni, Extra völlinn og eftirminnilegt viðtal þar sem hann talaði um Aftureldingu.
    22 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners