Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Gústi Gylfa um ellefu ár af Bose mótinu - Stórleikur framundan
    Það eru núna ellefu ár síðan Bose-mótið var stofnað en mótið hefur verið fastur liður af undirbúningstímabilinu hér á Íslandi síðan.
    Fótboltaþjálfarinn Ágúst Gylfason á stóran þátt í mótinu en hann kom á skrifstofu Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi um stofnun mótsins og þróun þess.
    Framundan er stórleikur þar sem erkifjendurnir Breiðablik og Víkingur eigast við í úrslitaleik. Leikurinn fer fram annað kvöld á Kópavogsvelli.
    Í seinni hluta þáttarins ræddi Gústi um viðskilnaðinn við Stjörnuna og sína framtíð. Umsjónarmaður þáttarins er Sæbjörn Steinke.
    39 min
  • Á réttri leið eftir frækinn sigur í Danmörku
    Ísland vann frækinn sigur gegn Danmörku í lokaleik sínum á árinu í gær. Þetta var síðasti leikur Íslands í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar en stelpurnar tóku níu stig í sex leikjum.
    Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Magnús Hauk Harðarson, þjálfara Fjölnis, og Óskar Smára Haraldsson, þjálfara Fram, í heimsókn í dag til að gera upp leik gær dagsins.
    Einnig var farið yfir árið í heild sinni og framhaldið. Er liðið á réttri leið eftir miklar breytingar?
    1 hr
  • Tiltalið: Ásgeir Börkur Ásgeirsson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er goðsögn Fylkis sem lagði skónna á hilluna að loknu tímabilinu 2023, Ásgeir Börkur Ásgeirsson. Við renndum yfir farinn veg og litum yfir ferils eins mesta harðhausar Íslenskrar knattspyrnu.
    2 hr 35 min
  • Enski boltinn - Endo-kallinn og skemmtileg heimska
    Það var boðið upp á ruglaða skemmtun í ensku úrvalsdeildinni um helgina, frábæra fótboltaleiki.
    Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Arnar Laufdal og Baldvin Már Borgarsson, erkifjendur úr 3. deild karla, í heimsókn í dag til þess að ræða um leiki helgarinnar.
    Farið var yfir ótrúlegan dóm í leik Manchester City og Tottenham, hugmyndafræði Ange og Kompany, magnaða endurkomu Liverpool, ömurlegt United og margt fleira.
    1 hr 8 min
  • Útvarpsþátturinn - Grindavík, Haukur Páll og samsæriskenningar
    Fjölbreytt fótboltaumfjöllun í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 2. desember.
    Rætt er um fréttir vikunnar. Þorsteinn Halldórsson lét íþróttamálaráðherra heyra það og Blikar töpuðu á grátlegan hátt gegn Maccabi.
    Haukur Guðberg Einarsson formaður Grindavíkur ræðir um stöðu mála hjá fótboltanum á þessum miklu hamfara- og óvissutímum.
    Gestur þáttarins er Haukur Páll Sigurðsson sem ræðir um nýtt hlutverk sitt hjá Val.
    Þá er fjallað um enska boltann en Guðjón Heiðar Valgarðsson einn af umsjónarmönnum Álhattarins ræðir um samsæriskenningar varðandi Manchester City.
    1 hr 47 min
  • Enski boltinn - Vonin veik hjá Rauðu djöflunum
    Manchester United er ekki í góðum málum í Meistaradeildinni þrátt fyrir að vera í slökum riðli. Einn leikur er eftir og það eru innan við tíu prósent líkur á því að United fari áfram.
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke eru umsjónarmenn Enska boltans en í þættinum í dag er aðallega rætt um Man Utd og Meistaradeildina.
    Man Utd gerði 3-3 jafntefli gegn Galatasaray í mögnuðum leik á miðvikudag en úrslitin gefa United litla von í framhaldinu.
    Tryggvi Páll Tryggvason, stuðningsmaður Man Utd, var á línunni og ræddi um vonbrigðin í Meistaradeildinni. Hann fór einnig yfir tímabilið í heild sinni hjá United.
    Þá er aðeins rætt um Evrópudeildina og Sambandsdeildina ásamt því að hitað er upp fyrir komandi umferð í ensku úrvalsdeildinni.
    1 hr
  • Ungstirnin - Argentínskur efniviður
    Matias Soule (2003) hefur verið að gera frábæra hluti með nýliðum Frosinone í Serie A á Ítalíu en þessum argentínska kantmanni hefur verið líkt við samlanda sinn Angel Di Maria. Soule er í eigu Juventus og er að færast nær því að spila fyrir ítalska landsliðið.
    Claudio Echeverri (2006) er eftirsóttur af stærstu liðum heims en þessi sóknarþengjandi miðjumaður sem spilar fyrir River Plate hefur verið að gera allt vitlaust á HM U17 sem er núna í gangi í Asíu en hann t.d. skoraði þrennu í 3-0 sigri Argentínu gegn erkifjendum sínum frá Brasilíu.
    Benoný Breki á leið erlendis, sextán leikmenn undir tvítugt spiluðu með meistaraflokki Stjörnunnar um helgina, Francesco Camarda næsta stórstjarna Ítala, markið fræga hjá Garnacho, og svo margt margt fleira í þætti dagsins.
    1 hr 32 min
  • Enski boltinn - Ungverjinn upplifði mikinn hita, mikla reiði og sturlað mark
    Þrettánda umferðin í ensku úrvalsdeildinni lýkur í kvöld en tekið var forskot á gleðina og umferðin gerð upp í dag.
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke eru umsjónarmenn þáttarins.
    Manchester United vann útisigur á Everton og var Fótbolti.net með útsendara á vellinum.
    Mate Dalmay var á línunni og fór yfir stemninguna á Goodison Park.
    Í gær fór einnig fram stórskemmtilegur leikur á heimavelli Tottenham.
    Arsenal er eftir umferðina í efsta sæti deildarinnar, City og Liverpool gerðu jafntefli í stórleiknum og aftur olli Chelsea stuðningsmönnum sínum vonbrigðum.
    59 min
  • Bjarni Mark: Hitafundir og mikil reiði
    Um helgina var Start dæmt úr leik í umspilinu um að komast upp í efstu deild í Noregi.
    Bjarni Mark Duffield er leikmaður Start og ræddi hann við Fótbolta.net í dag.
    Bjarni fór yfir ástæðuna fyrir því af hverju Start var dæmt úr leik.
    Heimavöllur liðsins var frosinn og tekin var ákvörðun að kveikja ekki á hitanum undir vellinum til að spara pening. Völlurinn var ekki leikhæfur og liðið dæmt úr leik.
    Hann segir að hljóðið í mönnum hjá félaginu sé ekki gott, talar um mikla reiði og mikinn pirring.
    18 min
  • Útvarpsþátturinn - Heimir Hallgríms gestur
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 25. nóvember.
    Umsjón: Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas.
    Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir fótboltafréttir vikunnar, meðal annars rætt um landsliðið, fréttir úr Bestu deildinni og formannsslag KSÍ.
    Í þeim seinni kemur Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Jamaíku í heimsókn en hann fékk enn eina rósina í sitt hnappagat í vikunni þegar hann kom liðinu í undanúrslit Concacaf Þjóðadeildarinnar og í úrslitakeppni Copa America.
    1 hr 47 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners