Parið Tom og Anna hefur flust til Berlínar á öðrum áratug 21. aldarinnar til að lifa hinni fullkomnu tilveru. Þau starfa í skapandi greinum, búa innan um fallega hluti í fallegri íbúð, og deila myndum af lífi sínu á samfélagsmiðlum. Þau eru aðalpersónur skáldsögunnar Le perfezioni eftir ítalska rithöfundurinn Vincenzo Latronico sem kom út árið 2022. Íslensk þýðing á bókinni kemur út hjá bókaforlaginu Benedikt í haust, en enska útgáfan verður til umræðu í bókaklúbbi Lestarinnar þessa vikuna. Gestur klúbbsins er Björn Halldórsson rithöfundur.
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fer fram í Mexikó, BNA og Kanada hófst í síðustu viku. Halldór Armand Ásgeirsson mun gera mótinu skil fyrir hönd Lestarinnar næstu vikur. Í sínum fyrsta pistli veltir hann fyrir sér merkingu rauðu spjaldanna þriggja sem fóru á loft í opnunarleik mótsins.
Og við höldum 16. júní hátíðlegan, en dagurinn er tileinkaður skáldsögunni Ulysses eftir írska rithöfundinn James Joyce sem gerist öll þennan dag. Eiríkur Örn Norðdahl útskýrir aðdráttarafl bókarinnar.