Jörðin skelfur ennþá undir fótum okkar vegna þeirra ótrúlegu hræringa sem kenndar hafa verið við MeToo. Byltingar sem hefur haft gríðarleg áhrif á hugmyndir, orðræðu og hegðunarreglur í kynferðislegum samskiptum fólks. Nú nýlega hafa komið upp tvö merkileg mál í Bandaríkjunum þar sem tvær konur, feministar og þátttakendur í MeToo-hreyfingunni hafa verið sakaðar, í sitt hvoru lagi, um kynferðislega áreitni af yngri karlmönnum. Í Lestinni í dag ræðir Nanna Hlín Halldórsdóttir, heimspekingur, hvernig þessu flóknu og margslungnu mál varpa ljósi á eitrað valdamisræmi í hinum ýmsu vinnukerfum
Áður en Lestin fór í sumarfrí ferðaðist hún til Wyoming og fjallaði um Kanye-sumarið mikla, en upptökustjórinn Kanye West var áberandi í vor með glæfralegum yfirlýsingum um stjórnmál, auk þess að gefa út fimm plötur með sjálfum sér og öðrum listamönnum þar sem hann var potturinn og pannan í upptökum og lagasmíðum, en plöturnar komu með viku millibili í júnímánuði. Í dag fjallar Davíð Roach Gunnarsson um tvær síðustu plöturnar í þessum fimmleik, Nasir með rapparanum Nas, og K.T.S.E. með söngkonunni Teyönu Taylor.
Lestin minnist þess einnig að í sumar voru 120 ár liðin frá fæðingu spænska skáldsins Federico Garca Lorca, sem var eitt fremsta ljóðskáld Evrópu á síðustu öld, gestur þáttarins verður Örnólfur Árnason.
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson