Gleymdar perlur áttunnar

Gleymdar perlur áttunnar

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Gleymdar perlur áttunnar episodes

  • Hreimur Örn Heimisson - Land og Synir
    Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.
    Gestur: Hreimur Örn Heimisson söngvari hljómsveitarinnar Land og Synir
    Hér heyrum við um tónlistarlega misþroska sveitadreng, son svínabóndans og ferðalag hans um níuna.
    Það er óhætt að segja að það hafi verið hressandi ferðalag.
    Allt frá upphafi áratugarins þegar Hreimur hefur engan áhuga á tónlist yfir í heimsyfirráð... næstum því.
    Hreimur var lengi að taka á móti helstu stefnum og straumum í tónlistinni og segist eiga eftir að uppgötva helling af góðu efni.
    Við heyrum af gosdrykkjaframleiðanda stríðinu, meikinu í Bandaríkunum, 911 og hvernig hann sópaði næstu Sálinni hans Jóns míns inn í bandið sitt Land og syni.
    Nokkrar gleymdar dægurperlur níunnar og sögur poppstjörnu, frá svínabúinu á toppinn og svo lengra... næstum því.
    Skemmtilegt í bæði eyru
    2 hr 24 min
  • Hannes Friðbjarnarson
    Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.
    Það er hinn lauflétti trommuleikari úr Kópavoginum, Hannes Friðbjarnarson sem er gestur Níunnar í þetta skiptið.
    Hannes velur nokkrar gleymdar perlur frá þessum skemmtilega áratug og einhverjar koma mögulega á óvart.
    Hannes var tónlistarlega alin upp af þremur eldri systrum þar sem Duran og vinir þeirra koma mikið við sögu en hans rebel var hljómsveit í leðurpjötlum, háum stígvélum og mesta "make up" tónlistarsögunar.
    hann kemur inn á hvernig einhverjar sveitir kynntu inn svitan og drulluga hárið í rokkið, þegar rokksveinar heimsins hættu að líta út eins og leikarar í Dynasty.
    Við heyrum líka sögur af meikdraumum Hannesar og hans hljómsveitar, Dead Sea Apple, í New York og stuttu en eld heitu sambandi hans við Liv Tyler.
    Þá fáum við að heyra hvernig hljómsveitin hans kom að stærstu tónlistarhátíð Íslandssögunnar, saga sem fæstir hafa heyrt.
    Þá ræða gestur og umsjónarmaður hvernig það sé að vera eldri maður í nútíma samfélagi, á dögum samfélagsmiðla og tónlistarveitna.
    Góð stund fyrir bæði eyru
    1 hr 47 min
  • Bergsteinn Sigurðsson
    Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.
    Gestur: Bergsteinn Sigurðsson
    Í 18 þætti af Gleymdum Perlum Níunnar fáum við menningarvitann Bergstein í heimsókn.
    Eðlilega má gera ráð fyrir menningarlegu gáfumannapoppi á hans lista.
    Bergsteinn hóf níuna á Patreksfirði og bjó hann þar fyrstu ár áratugarins, hann er alinn upp á hármetal sem var að hverfa þegar núan heilsar.
    Á unglingsárum dettur í hann körfuboltaáhugi enda 6. besti senter sunnanverðra vestfjarða og vaknaði í leiðinni áhugi hans á hip hop tónlist.
    Allt þetta breytist þegar pilturinn flytur suður til þess að fara í skóla, brittpopp og rúllukragapeysur taka við keflinu af röppurum með dassi af trip hoppi og gáfumannapoppi.
    Bergsteinn og hans gleymdu perlur níunnar
    2 hr 11 min
  • Sveinbjörn Bjarki Jónsson
    Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.
    Gestur: Sveinbjörn Bjarki Jónsson
    Í þetta skiptið fáum við mögulega mannlega gleymda perlu níunnar, maður sem var viðriðinn margt af því frumlega og flotta danspoppi sem Ísland bauð upp á þessum áratug.
    Þetta er enn eitt Hólabrekkuskólabarnið sem heimsækir þessar perlu seríur.
    Hann var vel vopnum búinn þegar áratugurinn gengur í garð, eldri bræður að fikta með tölvugræjur og var hann klár í þetta dansvor sem var þá nýhafið.
    Nú er bara að reima skóna, dansskóna og fylla eyrun af hressandi dans-níu
    2 hr 24 min
  • Andri Freyr Viðarsson
    Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.
    Gestur: Andri Freyr Viðarsson.
    Eftir netta Perlupásu snúum við aftur með geggjaðan þátt, Andri karate er mættur í Gleymdar Perlur Níunnar!
    Þetta er rokkaðasti þátturinn til þessa og hér er boðið upp á þykkustu indie sósuna.
    Andri lætur allt flakka, glæpaferillinn í Skífu og Senubúðunum, heimsókn frægu indie stjörnunar heim til drengsins þar sem horft var á þýskt þungarokk og endalausar safaríkar sögur.
    Það er oft talað um að fólk eigi ekki að gera upp á milli barna sinna en þessi þáttur verður mögulega ekki toppaður, það þarf allavega mikið til.
    Þetta er skilduhlustun fyrir rokk og indie fólkið en fyrir aðra..... skildu hlustun (það er hægt að spóla bara yfir lögin ef þau heilla ekki).
    Þátturinn tók heila viku í upptöku þar sem þáttarstjóri og gestur skutust í hljóðver milli verka þegar tími gafst... þetta er líka lang lengsti þátturinn.
    Ef þetta er ekki belgískt gæða eyrnakonfekt í bæði eyru þá er það ekki til.
    Ég segi bara, góða skemmtun
    Doddi
    3 hr 26 min
  • Símon Guðmundsson - Fjandsamlega myndalegi
    11 október 2018
    Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
    Gestur: Símon Guðmundsson.
    Símon mætti með nokkrar glimrandi dægur og dansperlur í þáttinn.
    Ungi Queen aðdáandinn fann Guði sína í Party Zone og veröldin Breytti um svip. Burt með Queen, inn með hús og diskó.
    Athugið! Þessi þáttur gæti vakið upp gömul dansspor, farið því varlega.
    2 hr
  • Steinar Fjeldsted - Quarashi
    8. október 2018
    Umsjón: Þórður Helgi þórðarson
    Gestur Steinar Fjeldsted
    Stænar mætti í níuna með 10 eðal perlur og sagði sögur af sér og sínum.
    Hardcoresveitin Plan B, hvaða trix hann notaði í sömplun þegar tæknin bauð ekki upp á það sem hann vildi, 15 ára í Rosenberg, Rave í Reykjavík, Mexico gengin í Arizona og partýin í gettóunum þar, stofnaði Quarashi til að bjarga íslenskri tónlist, umboðsmaður Tinu Turner, Morten Harket (A-ha) á bongo með Quarashi, hjólabrettin og fullt af öðrum sögum.
    Steinar var í stuði.....
    1 hr 58 min
  • Margrét Erla Maack
    Þórður Helgi Þórðarson ræðir við Margréti Erlu Maack fjöllistakonu.
    Margrét Erla rifjaði upp nokkrar góðar perlur níunnar en rifjaði líka upp nokkrar verri....
    Í þessum þætti reynum við að finna perlur tíunda áratugar síðustu aldar.
    Lögin sem voru vinsæl en hafa horfið af spilunarlistum útvarpsstöðva og annara miðla.
    Nokkrir íslenskir tónlistaráhugamenn rifja skemmtilegar minningar, sögur og perlur sem erum þeim kærar og eiga
    heima á hvaða níu spilunarlista heimsins.
    1 hr 41 min
  • Páll Óskar Hjálmtýsson 90´s
    Umsjón: Þórður Helgi Þórðason
    Gestur: Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari.
    Ein af stærstu stjörnum Íslands í níunni, Páll Óskar, settist niður með Dodda, ræddi sín mál og lagalistann sem hann tók með sér.
    Þetta er samkvæmisþáttur eins og margir gerðu ráð fyrir, það er boðið upp í dans
    Uppgötvun kl 4 að nóttu, Rocky Horror part 1 og 2, dragið, Eurovusion, meikið, sigrarnir og töpin eru meðal þess sem Palli ræddi í sínum þætti af gleymdum Perlum Níunnar
    Gott fyrir mjaðmir, fætur og í bæði eyru
    2 hr 4 min
  • Eldar Ástþórsson
    Umsjón: Þórður Helgi Þórðason
    Gestur: Eldar Ástþórsson, athafnarmaður
    Eldar mætti með nokkrar trommur og nokkra bassa með sér eins og lög gera ráð fyrir.
    Einnig var hans lagalisti uppfullur af allskonar remixum, stuð þáttur frá fyrstu mínútu.
    Eldar talaði um árin í Kópavoginum þar sem fólk skildi ekki alveg skopparana tvo, Eldar og Arnþór (Adda ofar) en það átti eftir að breytast.
    Eldar klagar leyndarmálum plötusnúðanna í Kópavogsskóla og einnig leyndarmálinu um plötuna sem hann hlustaði á heima sem stöðu hans vegna í hardcore samfélaginu mátti ekki tala um opinberlega.
    Ást hans á Party Zone kemur ekki fram í þessu spjalli, Björk og 200 krónurnar, Ronaldo, B-hliðin, glæpamaðurinn Goldie, Ajax og fullt af skemmtilegum hlutum en um fram allt, gott stuð.
    Já hann svíkur ekki samkvæmisfólkið hann Eldar í þessum þætti af Gleymdum Perlum Níunnar.
    Best er að hlusta þegar þú hleypur 20 kílómetrana
    1 hr 53 min