Í nótt braut Hildur Guðnadóttir blað í sögu Golden Globe verðlaunanna þegar hún hlaut verðlaunin fyrir tónlistina í kvikmyndinni Joker. Við fjöllum um verðlaunin og þýðingu þeirra, fyrir Hildi og aðra, og rennum yfir atburði næturinnar.
Nú í upphafi árs fjárfesta margir í almanaki fyrir árið 2020. Í árþúsundi hafa menn notað ýmis konar dagatöl og tímamælingatæki til að ná utan um tímann. Elsta íslenska almanakið sem enn er gefið út er almanak háskóla íslands - það hefur komið út í meira en eina og hálfa öld. Við ræðum við Þorsteinn Sæmundsson hefur unnið við útgáfu almanaksins um áratugaskeið í Lestinni í dag.
Áslaug Torfadóttir rýnir í Watchmen, nýja sjónvarpsþætti sem byggja á frægri myndasögu Alans Moore frá árinu 1987. Þættirnir gerast þremur áratugum síðar í sama sagnaheimi og myndasagan sem tókst á við kjarnorkuótta kaldastríðsáranna og afbyggði hina hefðbundnu ofurhetjumynd.