Gullkastið

Gullkastið

Download on the App Store

Gullkastið episodes

  • Podcast – Öll hin liðin verða í erfiðleikum
    Van Dijk er kominn með hausinn til Liverpool, Coutinho er ekkert að fara og hin liðin eru ekkert sérstök þegar maður skoðar þau nánar. Strákarnir voru í miklu stuði í síðasta þætti fyrir nýtt tímabil. Mögulega ekki alveg svona bjartsýnir samt. Van Dijk og Coutinho fengu smá tíma í byrjun þáttar en mestur tími fór […]
    1 hr 7 min
  • Podcast – Liverpool sannfærandi rétt fyrir mót
    Þó lítið sé að frétta af leikmannamarkaðnum hjá Liverpool er liðið í fínu standi og rústaði FC Bayern á þeirra heimavelli nokkuð sannfærandi rétt fyrir þátt. Menn voru því nokkuð léttir í yfirferð sinni yfir liðið og svona helstu fréttir tengdar Liverpool undanfarnar vikur. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, Kristján Atli og SSteinn. MP3: Þáttur […]
    1 hr 1 min
  • Podcast – Flott byrjun á glugganum
    Leikmannamarkaðurinn er að nálgast yfirsnúning um þessar mundir enda liðin farin að mæta aftur til starfa. Leikmannakaup Liverpool voru auðvitað á dagskrá í dag auk þess sem við fórum lauslega fyrir það sem hin liðin hafa verið að gera. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Kristján Atli og SSteinn. MP3: Þáttur 156
    1 hr 1 min
  • Podcast – Afsökunarbeiðnir og slúður
    Í þessum þætti fóru strákarnir yfir það sem hefur gerst það sem af er sumri, þá sérstaklega Van Dijk-klúðrið mikla, eltingarleikinn við Mohamed Salah og aðra sem hafa verið lauslega orðaðir við Liverpool. Það er silly season og hér var blaðrað án nokkurra heimilda. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Kristján Atli, Maggi og Óli Haukur. MP3: […]
    1 hr 7 min
  • Podcast: Gylfi losar okkur við Everton næstu árin
    Í þessum þætti gerðu strákarnir upp tímabilið hjá hinum liðum Úrvalsdeildarinnar, ræddu fyrstu kaup sumarsins í Dominic Solanke frá Chelsea og spáðu í framtíðarhorfur Úrvalsdeildarliðanna. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Kristján Atli. MP3: Þáttur 154
    1 hr 12 min
  • Podcast: Meistaradeild
    Fjórða sæti varð niðurstaðan eftir langan og oft á tíðum erfðan vetur og við stuðningsmenn Liverpool erum í fullum rétti að fagna Meistaradeildarsæti vel eftir allt of langa bið. Þetta breytir öllu fyrir sumarið og næsta tímabil og ljóst að við horfum bjartsýnir til framtíðar í þætti kvöldins og fórum um nokkuð víðan völl. Stjórnandi: […]
    1 hr 6 min
  • Podcast: Hefðum tekið þessu fyrir tímabilið
    Meistaradeildarsæti er í höndum Liverpool fyrir lokaumferðina eftir frábæran sigur á West Ham. Við spáðum í spilin fyrir framhaldið ásamt því að kryfja síðasta leik í þætti vikunnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi. MP3: Þáttur 152
    1 hr
  • Podcast: Leiðinlegir leikir
    Það er óhætt að segja að þetta hafi verið mikið basl hjá okkar mönnum eftir áramót og á því varð lítil breyting í leikjunum gegn Watford og Southampton. Spilamennska Liverpool hefur ekki verið svipur á sjón miðað við hvernig málin voru fyrir áramót og nánast allir mótherjar Liverpool leggja upp með að pakka í vörn, […]
    59 min
  • Podcast: Kaldur, blautur gúmmíhanski í smettið
    „Ég get ekki hætt að hugsa um þennan helvítis Crystal Palace leik“ sagði Klopp á síðasta tímabili og það breyttist heldur betur ekkert á þessu tímabili. Tapið núna var jafnvel ennþá verra og meira pirrandi. Við félagarnir náðum þó alveg að halda ró okkar í umræðu um þennan bölvaða leik og fórum svolítið um víðan […]
    1 hr 4 min
  • Podcast #149
    Ath.: Af tæknilegum ástæðum kom þessi þáttur ekki inn á þriðjudagskvöld eins og venja er. Við biðjumst velvirðingar á því. Í þætti kvöldsins ræddu okkar menn sigurinn á West Brom, leikaðferð Klopp í síðustu tveimur leikjum, varnarmenn og hituðu upp fyrir leikinn gegn Crystal Palace. Stjórnandi: Kristján Atli Viðmælendur: SSteinn, Einar Matthías og Maggi MP3: […]
    49 min

About Gullkastið

From the publisher's feed

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is um Liverpool og enska boltann. Þátturinn hóf göngu sína í maí árið 2011