
Sign up to save your podcasts
Or


Þetta þarf ekki alltaf að vera sannfærandi svo lengi sem sigurgangan heldur áfram. Tókum á helstu fréttum vikunnar og því sem er framundan. - Salzburg, meira en bara heimaborg Mozart - MK Dons, loksins alvöru deildarbikarleikur fyrir krakkana. - Sanngjarn ljótur sigur í Sheffield - Rodgers mætir í fyrsta skipti aftur á Anfield - Fékk Tottenham sjö mörk á sig í London? - Arsenal og United samanlagt með jafn mörg stig og Liverpool - Everton í nær sex liða botnbaráttu en topp sex. - Veikleikamerki á City?
@einarmatthias @maggimark14 @ssteinn
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur:SSteinn og Maggi Þórarins (Beardsley)
Sigurinn á Chelsea var sá besti það sem af er þessu tímabili og fær andstæðingurinn í þeim leik ekki mikið minna svigrúm í þætti vikunnar. Tókum einnig umræðu um helstu keppinauta Chelsea í vetur og veltum fyrir okkur hvort þetta sé flokkað sem topp sex mikið lengur?
Mk Dons og Sheffield eru verkefni vikunnar og að lokum spáðum við aðeins í FIFA verðlaunaafhendinguna sem var í gærkvöldi, þar átti Liverpool gott kvöld.
Kynnum einnig til leiks nýjan heimavöll Kop.is - Sport og Grill Smáralind
Vont tap í Napoli eftir góðan sigur á Newcastle þar sem fleiri en stuðningsmenn Liverpool fóru að átta sig á gæðum Bobby Firmino
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Fréttir af ferðalögum kop.is í vetur, við rýnum í landsleikjahléið og skoðum heimsókn lærisveina Steve Bruce um næstu helgi auk þess að fjalla um þá staðreynd að Evrópumeistarar mæta til leiks.
Einar Matthías er í fríi í kvöld og Maggi fær að stjórna Steina! Auk þeirra kemur í þáttinn formaður Liverpool-klúbbsins á Íslandi, Hallgrímur Indriðason.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Sannfærandi sigur á Turf Moor sýnir líklega best þróun Liverpool liðsins undanfarin ár. Mesta "Tony Pulis Stoke" lið deildarinnar átti ekkert í líkamlega sterka leikmenn Liverpool sem eru á sama tíma mun betri á öllum stigum fótboltans. Van Dijk og Alisson fóru á meginlandið fyrir leik til að ná í verðlaun sem bestu varnarmenn álfunnar á síðasta tímabili og Van Dijk ætti að vera næsta öruggur með Ballon d´Or. Úrslit í öðrum leikjum voru aftur með ágætum og segja kannski hvernig þetta tímabil er að þróast og leikmannaglugginn lokaði í Evrópu. Komum inn á þetta o.fl. í þætti vikunnar.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Boring borning Arsenal mætti til að verja stigið á Anfield og tókst það auðvitað ekkert. Burnley bíður næstu helgi og ekki er það nú skemmtilegra lið. Hættir Klopp 2022, er Nike að taka við af New Balance, hverja viljum við fá í Meistaradeildinni á föstudaginn, hvað gerðist í öðrum leikjum helgarinnar? Þetta og fleira í þéttum þætti vikunnar.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Þetta var viðburðarík vika hjá OfurEvrópuMeisturum Liverpool og það er stórleikur um helgina. Hjóluðum í það og svöruðum nokkrum spurningum "úr sal" í restina.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Hentum okkur í þátt strax eftir fyrsta leik, frábær sigur á Norwich, vangaveltur um leikmannagluggann og spánna fyrir mót. Hlaðið í þátt strax eftir fyrsta leik gegn Norwich.
Tómas Þór Þórðarson verður aðalmaðurinn í umfjöllun um enska boltann í vetur, hann mætti til okkar í spjall um vistaskipti sín til Símans og hvernig þau ætla sér að haga umfjöllun um boltann.
Seinni hluti þáttarins var meira hefðbundið Liverpool tengt spjall
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Veltum fyrir okkur hverjir hafa verið að nýta tækifærið það sem af er æfingatímabilinu, stöðunni á hópnum og öðrum fréttum frá Ameríku sem og annarsstaðar í fótboltaheiminum. Nú er heldur betur farið að styttast í mót.
From the publisher's feed

466 Listeners

140 Listeners

6 Listeners

22 Listeners

26 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

19 Listeners

14 Listeners

1 Listeners

26 Listeners

14 Listeners