Gullkastið

Gullkastið

Download on the App Store

Gullkastið episodes

  • Gullkastið – Harmleikur í Portúgal

    Fráfall Diogo Jota og André bróður hans er auðvitað ofsalegt áfall fyrir alla tengda Liverpool og knattspyrnuheiminn í heild. Þessi vika átti að vera spennandi þar sem nýir leikmenn mæta til æfinga í fyrsta skipti ásamt öllum hópnum en byrjaði á jarðarför Diogo Jota í Portúgal. Erfitt í raun að ná utan um þennan harmleik. Hvaða áhrif hefur þetta á Liverpool og hvernig bregst félagið við?

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 4 min
  • Gullkastið – Leikmannasölur framundan?

    Kerkez er kominn til Liverpool og því búið að staðfesta alla sem voru líklegastir til að koma núna strax í júní. Þá eru leikmannasölur líklega næstar á dagskrá og líklegt að þar verði ekki minna að gera hjá okkar mönnum. Skoðum líka stöðuna á leikmannamarkaðnum hjá hinum stórliðunum.

    Minnum svo á að Verdi Travel er komið með ferðir á Anfield í sölu fyrir næsta tímabil

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 4 min
  • Gullkastið - Wirtz Vikan

    Frá því að FSG keypti Liverpool hefur leikmannaglugginn aldrei farið eins spennandi af stað og núna. Það er búið að staðfesta kaup á Frimpong frá Leverkusen, eins er svo gott sem búið að staðfesta kaupin á besta vini hans og dýrasta leikmanni í sögu Liverpool, Florian Wirtz. Besta leikmanni þýsku deildarinnar undanfarin tvö tímabil. Ungverjinn Milos Kerkez hefur svo hamast við það sjálfur að staðfesta komu sína til Liverpool þó félagið hafi ekkert staðest með það ennþá.

    Miðað við slúðrið er þetta bara byrjunin og einnig er orðað helminginn af hópnum í burtu. Það var því af nægu að taka í leikmannaslúðurs Gullkasti.

    Leikjalistinn fyrir næsta tímabil kom einnig út í gær þannig að næsta tímabil er í augsýn.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 9 min
  • Gullkastið – Leikmannaglugginn að opna

    Tímabilið 2024-25 er búið og bara gat ekki farið mikið betur fyrir Liverpool, létt uppgör á því. Sigurhátíð um helgina og almenn gleði þar til eitt fífl setti stóran svartan skugga á hátíðarhöldin. Leikmannaglugginn opnar eftir helgi og Liverpool virðist heldur betur ætla að vera með og gera stórar breytingar á hópnum fyrir næsta tímabil.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 9 min
  • Gullkastið – Schadenfreude

    Þvílíka snilldar tímabilið sem þetta er að verða, Liverpool eru Englandsmeistarar og lyfta bikarnum á loft um helgina á meðan lið eins og Arsenal, Man City og Man Utd fara öll titlalaus í gegnum mótið. Leikmannaglugginn virðist heldur betur ætla að verða fjörugri í sumar en hann var síðasta sumar og mjög spennandi nöfn orðuð við Liverpool, jafnvel strax í næstu viku.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 11 min
  • Gullkastið – Slúðrið komið á fullt en tímabilið þarf að klára

    Seint mætti Gullkastið þessa vikuna, sem er til marks um ákveðinn slaka í hugum okkar, enda Englandsmeistarar. Við fórum yfir töluvert af safaríku slúðri sem fjallað hefur um okkar menn undanfarið, veltum fyrir okkur fílupúkanum Arteta og hans stöðu hjá Arsenal. Skoðuðum stöðuna í Meistaradeildarbaráttunni, völdum framherja í Ögurverksliðið og skoðuðum síðasta útileik vetrarins í EPL, viljum klára tímabilið með reisn auðvitað.

    Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 2 min
  • Gullkastið – Hvað Næst?

    Arne Slot gaf hópnum aðeins séns um helgina töluverðum timburmannaleik gegn Chelsea og frammistaðan var ekki til að hrópa húrra fyrir. Skipti ekki öllu enda Liverpool nú þegar búið að vinna titilinn og stemningin á pöllunum í takti við það. Trent nýtti tækifærið til að staðfesta loksins brottför sína eftir tímabilið eftir að hafa forðast blaðamenn (og þannig stuðningsmenn Liverpool) mest allt þetta tímabil. Næsti leikur og heiðursvörður er gegn Arsenal í deildinni en þeir eiga risaverkefni í Meistaradeildinni í millitíðinni. Skoðum Ögurverk liðið og eitt og annað í þætti vikunnar.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi

    1 hr 20 min
  • GULLKASTIÐ – LIVERPOOL ENGLANDSMEISTARAR

    Það er komið (Staðfest) á Englandsmeistaratitilinn og tilfinningin er vægast sagt frábær. Meistarar á Anfield og samt eru fjórar umferðir eftir. Liverpool hafa einfaldlega verið langbestir í vetur sama hvað hávær hópur stuðningsmanna annarra liða hefur grenjað. Loksins fá leikmenn og stuðningsmenn að fagna almennilega saman og líklega er veislan bara rétt að byrja. Stöðutaflan í deildinni er eins og listaverk sem rétt væri að ramma inn og hengja upp á vegg.

    Njótum kæru vinir og til hamingju með titilinn. Þessi er eins sætur og þeir verða.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, Einar Örn og Sveinn Waage

    52 min
  • Gullkastið – Eitt Stig!

    Liverpool er með 89 stig eftir sigur gegn Leicester um helgina, Arsenal getur max náði 79 stigum á þessu tímabili vinni þeir alla leikina sem þeir eiga eftir og markatalan er 10 mörkum Liverpool í vil með leik til góða. Án þess að segja (Staðfest) er óhætt að fullyrða að staðan hefur sjaldan eða aldrei verið betri.

    Jafntefli Arsenal gegn Palace gerir það að verkum að Liverpool geta klárað fótbolta.net (Staðfest) svigann núna á sunnudaginn í heimaleik á Anfield gegn helstu erkifjendum Arsenal í Tottenham. Það er auðvitað ekkert í hendi en maður getur rétt ímyndað sér partýið sem verið er að smíða, það eru þrjátíu og fimm fokkings ár síðan stuðningsmenn Liverpool gátu fagnað Englandsmeistaratitli án þess að á þeim fögnuði væru nokkrar bremsur og guð minn góður hvað það verður málið þegar þetta er formlega komið.

    Kampavínið í kæli og Egils Gull í ísskápinn, þetta gæti gerst um helgina.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 10 min
  • Gullkastið – Endamarkið Nálgast

    Það er ennþá styttra í fyrirheitna landið eftir leiki vikunnar. Liverpool náði í þrjú stig á Anfield á meðan Arsenal tapaði stigum. Sex stig duga því til að vinna deildina þannig að tölfræðilega gæti einmitt það gerst núna um helgina. Liverpool mætir Leicester en Arsenal fær Ipswich í heimsókn þannig að við höldum ekkert niðri í okkur andanum. Veljum í Ögurverk liðið og skoðum stöðuna í deildinni almennt og spáum í leiknum á Páskadag

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 11 min

About Gullkastið

From the publisher's feed

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

More shows like Gullkastið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

433.is by 433.is

433.is

6 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

1 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners