
Sign up to save your podcasts
Or


Liverpool endaði á toppi deildarinnar í Meistaradeildinni þrátt fyrir tap gegn PSV í lokaumferðinni og ljóst hvaða fjórum liðum okkar menn geta mætt í 16-liða úrslitum. Flottur sigur á Ipswich í deildinni og toppsætið ennþá okkar. Það er mjög margt svipað núna og fyrir ári síðan í deildinni en með undantekningum þó sem vonandi eru okkar mönnum í vil, skoðuðum það aðeins. Leikmannamarkaðurinn er opin til mánaðarmóta og töluvert slúður þar þessa dagana, lítið tengt Liverpool reyndar. Nýtt Ögurverk lið og stór helgi framundan í enska boltanum.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Liverpool fór inn í þessa mjög svo þungu viku með 6 stiga forskot á toppi deildarinnar og endaði tveimur leikjum seinna á nákvæmlega sama stað. Leikurinn gegn Everton á Goodison er svo ennþá inni. Ljómandi góð niðurstaða í ljósi þess að útlitið var bara alls ekkert sérstakt eftir 180 mínútur af fótbolta í útileikjum gegn bæði Nottingham Forest og Brentford.
Vindum okkur í nýtt Ögurverk lið og spáum í spilin fyrir leikinn annað kvöld gegn Hákoni og félögum í Lille frá Frakklandi, sjá upphitun Ívars Reynis hér
Um helgina er svo Kop.is ferð í samstarfi við Verdi Travel með góðan hóp á Liverpool – Ipswich, það verður eitthvað!
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done
Það eru stór próf framundan í þessari viku, fyrst er það útileikur gegn sjóðandi heitu liði Nottingham Forest, eina liðið sem vann Liverpool í deildinni á þessu tímabili. Brentford á útivelli bíður svo um helgina
Liverpool fór áfram í FA Cup síðustu helgi og fær Plymoth úti í næstu umferð.
Ögurverk liðið er á sínum stað og sem og fagmaður vikunnar í boði Húsasmiðjunnar.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done
Það hefur alls ekki verið sama flug á Liverpool núna eftir áramót og var yfir hátíðarnar, slæmt 2-2 tap á Anfield gegn okkar gömlu erkifjendum og svo tap í fyrri hálfleik deildarbikarsins gegn Tottenham, þeir þurftu reyndar að vanda óhemju mikla hjálp frá dómarateyminu sem eyðilagði þann viðburð. Engin heimsendir en viðvörunarbjöllur á Anfield og stór leikur næst í deildinni.
Það er nóg að frétta úr enska boltanum stjóraskipti hjá liðum sem hafa verið í brasi, leikmannamarkaðurinn er opinn og fleiri stórlið en Liverpool að byrja árið illa.
Ögurverk liðið er á sínum stað og sem og fagmaður vikunnar í boði Húsasmiðjunnar.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done
Liverpool er búið að spila fjóra leiki um jól og áramót, sigur í einum þeirra gegn Southampton í deildarbikar og slátrun í hinum þremur. Fjórtán mörk í þremur deildarleikjum og þar af ellefu í London. Geggjaður endur á árinu og við hæfi að henda í smá uppgjör. Leikmannaglugginn opnar á miðvikdaginn og Liverpool fær Man Utd í heimsókn á sunnudaginn.
Ögurverk liðið er á sínum stað og sem og fagmaður vikunnar í boði Húsasmiðjunnar.
Við félagarnir á Kop.is viljum annars nota tækifærið og þakka lesendum, hlustendum og ferðafélögum síðunnar kærlega fyrir árið 2024. Þetta var miklu betra ár en við kannski þorðum að vona í ljósi þess að það byrjaði á því að Klopp tilkynnti að hann ætlaði að hætta eftir tímabilið og næsta ár sannarlega spennandi.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done
Liverpool lenti í ótrúlegu mótlæti gegn Fulham og tapaði á endanum ósanngjarnt tveimur stigum í leik þar sem stóru atvikin féllu svo sannarlega ekki með okkar mönnum, ekkert þeirra. Engu að síður sæmilegt stig m.v. að liðið var marki undir þegar Robertson var sendur í bað og því manni færri í 74.mínútur plús 16.mínútur í uppbótartíma. Samtals 90 mínútur og það voru svo sannarlega ekki 10 leikmenn Liverpool sem voru að reyna tefja og halda stiginu á lokamínútunum.
Ögurverk liðið er á sínum stað og sem og fagmaður vikunnar í boði Húsasmiðjunnar.
Næstu verkefni eru stjóralausir Southampton menn í deildarbikarnum þar sem Slot mun klárlega nota hópinn töluvert því að um helgina bíður Tottenham úti, leikur liðanna á síðasta tímabili er í sögubókunum sem sá ósanngjarnasti ever í úrvalsdeildinni enda dómgæslan bókstaflega glæpsamleg. Vonandi er ekki annað fíaskó framundan svona strax í framhaldi af þessu bulli sem við horfuðum uppá gegn Fulham. Lágmark að þau mörk sem okkar menn skora telji allavega og aðeins jafnvægi í rauðu spjöldunum myndi einnig hjálpa!
Happatreyjur.isMinnum áfram á Happatreyjur.is eru auðvitað jólagjöfin í ár, lesendur Kop.is geta notað afsláttakóðan KOP10
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Hlaðvarpsþættir Kop.is hófu göngu sína 25.maí árið 2011 og hafa síðan þá verið stór partur af starfsemi síðunnar. Þátturinn í þessari viku er númer 500 og er Gullkastið elsta starfandi hlaðvarp landsins og reyndar þó víðar væri leitað. Til að fagna þessum tímamótum fengum við tvær kempur með okkur í þáttinn í þessari viku sem vart þarf að kynna frekar, meistara Bjössa Hreiðars og Hödda Magg.
Liverpool leik helgarinnar var reyndar frestað en staðan á toppnum vænkaðist eiginlega engu að síður, hressandi yfirferð yfir það helsta í þessari viku og það sem er framundan.
Ögurverk liðið er á sínum stað og það var lítil samkeppni fagmann vikunnar í boði Húsasmiðjunnar að þessu sinni.
Minnum áfram á Happatreyjur.is eru auðvitað jólagjöfin í ár, lesendur Kop.is geta notað afsláttakóðan KOP10
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi, Bjössi Hreiðars og Höddi Magg.
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done
Þvílík vika, Real Madríd var pakkað saman í miðri viku og Man City jafnvel ennþá meira sannfærandi um helgina. Liverpool er afgerandi á toppnum allsstaðar fyrir vikið. Framundan eru tveir erfiðir útileikir, Newcastle á St. Jamses áður en Liverpool heldur í síðasta skipti yfir Stanley Park til að spila í Guttagarði. Ljómandi að losna við þá úr hverfinu.
Ögurverk liðið er á sínum stað, það var töluverð barátta um fagmann vikunnar í boði Húsasmiðjunnar
Happatreyjur.is – GjafaleikurMinnum áfram á Happatreyjur.is eru auðvitað jólagjöfin í ár, endilega kynnið ykkur málið á happatreyjur.is. Lesendur Kop.is geta notað afsláttakóðan afsláttakóða KOP10
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done
Það var hvorki sannfærandi en sérstaklega fallegt þessa helgina en Liverpool er komið með átta stiga forskot á toppnum eftir aðeins 12 umferðir, það er sérstaklega fallegt og sannfærandi. Framundan er rosalegt leikjaprógramm sem byrjar á Real Madríd með Man City í eftirrétt! Bætum miðvörðum við Ögurverks liðið og óskum eftir djúpum miðjumanni við næst í þetta lið Brostinna vona. Spáum svo auðvitað í því helsta frá síðustu helgi.
Happatreyjur.is – GjafaleikurEinnig var dregið út og tilkynnt sigurvegarann í Happatreyjur.is leiknum og þökkum við frábæra þáttöku. Happatreyjur eru auðvitað jólagjöfin, endilega kynnið ykkur málið á happatreyjur.is. Lesendur Kop.is geta notað afsláttakóðan afsláttakóða KOP10
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done
Síðasta landsleikjapása ársins er á enda og deildarleikur gegn Southampton framundan úti á sunnudaginn. Eftir það taka við öllu stærri verkefni með Real Madríd og Man City á dagskrá. Skoðum hvernig landið liggur eftir landsleiki, spáum í leikjum helgarinnar. Ögurverk liðið er að sjálfstöðu á sínum stað.
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn
Happatreyjur.is – GjafaleikurFyrir ykkur sem eruð í vandræðum með jólagjöfina í ár þá er húna á happatreyjur.is sem við ræðum betur í þættinum. Lesendur Kop.is geta notað afsláttakóðan afsláttakóða KOP10
Eins ætlum við að hlaða í gjafaleik, Allir sem hafa áhuga á að komast í pottinn setja inn sér komment undir þessari færslu og segja að viðkomandi langi í treyju. Við drögum svo út einhvern einn heppinn sem fær senda til sín treyju.
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done
From the publisher's feed

466 Listeners

140 Listeners

6 Listeners

22 Listeners

26 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

19 Listeners

15 Listeners

1 Listeners

26 Listeners

14 Listeners