Gullkastið

Gullkastið

Download on the App Store

Gullkastið episodes

  • Gullkastið – Salah og Van Dijk að semja?

    Annað tap tímabilsins í deildinni um síðustu helgi og löng vika fram að næsta leik fyrir vikið. Góðar fréttir af Salah og Van Dijk

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    53 min
  • Gullkastið – Liverpool Borg Er Rauð

    Liverpool borg er og hefur alltaf verið rauð, sigur á David Moyes og Everton var aðalatriði í leik sem tók vel á þolrifin og þökk sé því hvernig hann var dæmdur. Tólf stig þarf úr átta síðustu leikjunum til að klára titilinn.

    Hlóðum í nýtt Ögurverk lið og spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Fulham um helgina og leikjaprógrammið í þessum mánuði. Allir leikir Liverpool sem eftir lifa tímabilsins verða á sunnudegi.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    59 min
  • Gullkastið – Hvað gerir Liverpool á leikmannamarkaðnum?

    Allar helstu fréttir vikunnar benda til að Trent sé við það að skrifa undir hjá Real Madríd og fari þangað á frjálsri sölu. Afskaplega leiðinlegur viðskilnaður hjá uppöldum leikmanni og lykilmanni í algjöru toppliði.

    Óháð framtíð Trent er ljóst að Liverpool þarf að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í sumar og tókum við púlsinn á því hvaða leikmenn eru líklegir til að fara og hvað er í boði í staðin í hverri stöðu.

    Ögurverk liðið er á sínum stað og þrenna að þessu sinni.

    Deildin fer svo aftur af stað í næstu viku og spilar Liverpool við Everton á miðvikudaginn og Fulham um helgina.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 23 min
  • Gullkastið - Allur fókus á deildina

    Arne Slot valdi hreint afleita viku til að tapa tveimur leikjum í röð í fyrsta skipti á ferlinum. Liverpool lauk leik í 16-liða úrslitum þrátt fyrir að hafa toppað deildarfyrirkomulagið í Meistaradeildinn og tapaði svo með afar þreyttum og ósannfærandi hætti gegn Newcastle Wembley, versta frammistaða Liverpool þar síðan 1988.

    Alls ekki gott og ágætt að fá bæði landsleikjahlé og bikarhelgi í kjölfarið á því. Nú fer allur fókus á þessa níu leiki sem eru eftir af þessu tímabili. Sigur í fimm þeirra og það er hægt að jafna sig á þessari viku.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 3 min
  • Gullkastið - PSG og Anfield South

    Bilið breikkaði um tvö stig í viðbót í deildinni og staðan orðin vægast sagt góð. Seinni leikurinn gegn PSG er næst á dagskrá og Wembley um helgina. Liverpool spilar bara stórleiki.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    1 hr 2 min
  • Gullkastið – Farið Að Sjást í Endamarkið

    Forskotið á toppnum er komið í 13 stig og heldur betur farið að sjást í endamarkið. Þrátt fyrir bókstaflega allan katalóginn af afsökunum frá Arsenal mönnum hafa þeir í raun aldrei komist almennilega í titilbaráttuna og eru með stigasöfnun sem jafnan er meira á pari við liðin í baráttu um Meistaradeildarsæti. Liverpool á Southampton næst á Anfield og er sá leikur á undan leik Arsenal gegn United úti um helgina.

    Deildin verður hinsvegar í aukahlutverki í þessum mánuði fyrir utan leikinn gegn botnliðinu, PSG einvígið byrjar á miðvikudaginn í París og í næstu viku koma þeir á Anfield áður en Liverpool spilar svo til úrslita í deildarbikarnum.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 4 min
  • Gullkastið - Sex stiga helgi

    Síðasta helgi var líklega besta helgi tímabilsins fyrir Liverpool þegar Man City var loksins lagt á Etihad í deildarleik og það í kjölfarið á tapi Arsenal á Emirates vellinum. Ekki alltaf sem úrslitin á þessum olíuvöllum falla svona með okkur. Það var dregið í Meistaradeildinni, hörku vendingar í deildinni, Everton og Man Utd eru m.a. bara þremur stigum á eftir Liverpool, sko samanlagt. Næst er það svo hið heita/kalda Newcastle lið, generalprufa fyrir úrslitaleikinn í deildarbikarnum.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    1 hr 3 min
  • Gullkastið - Sjónvarpið fékk að heyra það!

    Liverpool er í mjög þungu prógrammi þessa dagana og það sást vel í báðum leikjum vikunnar sem tóku á taugarnar. Framundan eru tveir risastórir útileikir gegn Villa og Man City. Ögurverk liðið er á sínum stað og fagmaðurinn í boði Deloitte

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull / Deloitte / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done

    Afsláttarkóði í febrúar á WoktoWalk.is – 25% afsláttur með afsláttarkóðanum Liverpoolerubestir

    1 hr 4 min
  • Gullkastið – Síðasta ferðin yfir Stanley Park

    Liverpool fer í síðasta skipti þennan tæplega kílómeter sem er frá Anfield yfir á Goodison núna á miðvikudaginn í alvöru mikilvægum nágrannaslag. Tap þarna síðast og það er ekki í boði aftur. Um helgina eru það svo Úlfarnir sem mæta á Anfield og því tveir deildarleikir í þessari viku.

    Síðasta vika var bikarleikavika, Liverpool er komið í úrslit í öðrum bikarnum en tapaði gegn versta liði Championship deildarinnar í hinum.

    Ögurverk liðið er á sínum stað og fagmaðurinn í boði Deloitte

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Einar Örn sem kynnti m.a. nýja veitingahúsakeðju sína, Wok to Walk og hlóð í 25% afsláttur fyrir okkur á Kop.is í febrúar. Afsláttarkóði á WoktoWalk.is er auðvitað Liverpoolerubestir

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull / Deloitte / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done

    48 min
  • Gullkastið – Leikmannaglugganum lokað

    Það er síðasti dagur leikmannagluggans í dag eða mánudagur eins og við stuðningsmenn Liverpool köllum hann. Rosalega tíðindalítill mánuður hjá okkar mönnum sem er kannski skiljanlegt miðað við gengi liðsins og meiðslalista.

    Flottur útisigur á Bournemouth um helgina sem varð ennþá mikilvægari eftir að Arsenal pakkaði vonlausu City liði saman. Næsta vika fer svo í báðar bikarkeppnirnar, fyrst undanúrslit í deildarbikarnum gegn Tottenham.

    Bjóðum auk þess Deloitte hjartanlega velkomna í hóp samstarfsaðila Kop.is og völdum fyrsta Fagmann vikunnar í boði Deloitte.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Einar Örn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Egils Gull / Deloitte / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done

    1 hr 2 min

About Gullkastið

From the publisher's feed

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

More shows like Gullkastið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

433.is by 433.is

433.is

6 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

1 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners