Handkastið

Handkastið

By HandkastiðSports
Download on the App Store

All Handkastið episodes

  • Handkastið - Bleik jól í Hafnarfirði, gul jól á Akureyri og Eyjamenn á fljúgandi siglingu
    Gestur þáttarins að þessu sinni var eftirherman ógurlega, Davíð Már Kristinsson.
    Í þættinum fórum við yfir 12. umferðina í Olís-deild karla þar sem tveir grannaslagir fóru fram.
    Í Hafnarfirði enduðu leikar með jafntefli eftir flautumark frá Adami Baumruk og fyrir norðan verða gul jól eftir eins marks sigur KA-manna.
    Að lokum völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar.
    1 hr 27 min
  • Handkastið - Uppgjör fyrri hluta Olís-deildar karla og Seðillinn kom í spjall
    Í þættinum að þessu sinni fóru Sérfræðingurinn og Ponzan yfir fyrri hluta Olís-deildar karla sem hálfnuð er, ásamt góðvini þáttarins, Árna Stefáni Guðjónssyni.
    Farið var yfir hvert lið vel og vandlega. Farið var yfir gengi liðanna og spáð var í spilin fyrir seinni hlutann. Einnig var valið úrvalslið fyrri umferðarinnar.
    Í lok þáttarins kom Siggi Seðill, markvörður Stjörnunnar í létt spjall og fengu hlustendur að spyrja hann spjörunum út.
    12. umferðin í Olís-deildinni hefst á laugardaginn og lýkur á mánudagskvöldið. Stuðlarnir eru komnir inná Coolbet og farið var yfir bestu stuðlana á landinu.
    2 hr 4 min

  • Handkastið - Benóný í beinni frá Kenía, lið vanmetinna leikmanna og rosalegt skúbb frá Eyjum!
    Í þætti Handkastsins að þessu sinni var farið yfir leik Gróttu og Selfoss í lokaleik 10. umferðar Olís-deild karla. Benóný Friðriksson var á línunni frá Kenía og talaði tæpitungulaust um stöðu ÍBV-liðsins. Símasambandið frá Afríku hefði mátt vera betra en allt komst þó til skila.
    Valið var lið vanmetinna leikmanna í Olís-deildinni og farið var yfir stuðlanna fyrir næstu umferð sem verður svakaleg.
    Eftir að tökum lauk þá fengum við sent rosalegt skúbb frá Eyjum og því var ekkert annað í stöðunni en að henda sér aftur í New Balance stúdíó-ið hjá krökkunum í Áttunni.
    Auk þess völdum við leikmenn nóvembermánaðar í Olís-deildum karla og kvenna sem fá glaðning frá Coolbet.
    1 hr 18 min

  • Handkastið - No Ási no party, Seðillinn vann fyrir seðlunum, jarðarför og eru ekki allir kúl?
    Gestur þáttarins hjá Handkastinu að þessu sinni var hinn óútreiknanlegi aðstoðarþjálfari Aftureldingar, Ásgeir "Sly" Jónsson.
    Í þættinum var farið yfir fyrstu fimm leikina í 10. umferð Olís-deildar karla þar sem baráttan á öllum vígstöðum harðnar og harðnar með hverjum deginum.
    Einnig var farið yfir Evrópuleik Selfyssinga sem fram fór um helgina.
    Ásalausir FH-ingar máttu þola tap fyrir norðan gegn Akureyri og jarðarför Eyjamanna hélt áfram í Hafnarfirðinum. Vængbrotnir Mosfellingar töpuðu gegn Fram sem eiga erfitt prógram fram að jólum. Valsarar með Daníel Frey í ham sóttu tvö torsótt stig í KA-heimilið og markvarðarteymi Stjörnumanna fór illa með Breiðhyltinga.
    Að lokum var Coolbet leikmaður umferðarinnar valinn en það val var ekki erfitt að þessu sinni.
    1 hr 40 min

  • Handkastið - Gjaldþrot í Eyjum, Hver er Einar Birgir? RúnarsKáraHornið, Tom velur draumalið
    Gestur þáttarins að þessu sinni var þáttastjórnandi Seinni Bylgjunnar á Stöð2Sport, Tómas Þór Þórðarson.
    Í þættinum var farið yfir tvo síðustu leiki 9. umferðar í Olís-deild karla, Evrópuleik Selfyssinga sem fram fer á laugardaginn. Einnig fórum yfir stöðuna í Olís-deild kvenna sem er komin í jólafrí.
    RúnarsKáraHornið var á sínum stað og þá valdi Tom draumalið leikmanna sem gætu farið út í atvinnumennsku eftir tímabilið.
    Stuðlarnir fyrir næstu umferð í Olís-deild karla eru komnir inn á Coolbet og fórum við yfir stuðlabergið. Að lokum völdum við einnig Coolbet leikmann umferðarinnar.
    1 hr 46 min