Handkastið

Handkastið

By HandkastiðSports
Download on the App Store

All Handkastið episodes

  • Handkastið - Gjaldþrot í Eyjum, Hver er Einar Birgir? RúnarsKáraHornið, Tom velur draumalið
    Gestur þáttarins að þessu sinni var þáttastjórnandi Seinni Bylgjunnar á Stöð2Sport, Tómas Þór Þórðarson.
    Í þættinum var farið yfir tvo síðustu leiki 9. umferðar í Olís-deild karla, Evrópuleik Selfyssinga sem fram fer á laugardaginn. Einnig fórum yfir stöðuna í Olís-deild kvenna sem er komin í jólafrí.
    RúnarsKáraHornið var á sínum stað og þá valdi Tom draumalið leikmanna sem gætu farið út í atvinnumennsku eftir tímabilið.
    Stuðlarnir fyrir næstu umferð í Olís-deild karla eru komnir inn á Coolbet og fórum við yfir stuðlabergið. Að lokum völdum við einnig Coolbet leikmann umferðarinnar.
    1 hr 46 min
  • Handkastið - VAR var þrisVAR, skúbb frá Akureyri, besta vítaskytta landsins og Benni fellir Gróttu
    Gestur þáttarins í Handkastinu að þessu sinni var hinn þrautreyndi fjölmiðlamaður og gleðigjafi Benedikt Grétarsson.
    Í þættinum fórum við yfir fyrstu fjóra leikina í 9. umferð Olís-deildar karla, spáðum í spilin fyrir Evrópuleik Selfyssinga næstkomandi laugardag og næstu tvo leiki í Olís-deild karla.
    Auk þess ræddum við áhrifin sem það hefur haft á Olís-deildina að Stöð2Sport hafi fengið sýningarréttinn.
    - VAR í aðalhlutverki í ótrúlegum leik í Origohöllinni
    - Klikkaði besta vítaskytta landsins á ögurstundu?
    - Umdeilt leikhlé Bjarna Fritz í öruggum sigri gegn Gróttunni
    - Gróttan ekki heillað Benna sem spáir þeim falli
    - Létt og laggott hjá Stjörnunni í hálftómum kofa
    - Haukar með góðan útisigur gegn löskuðum kjúklingabændum
    - Erfitt verkefni sem bíður Selfyssinga á heimavelli
    - Benni svaraði nokkrum hraðaspurningum í lokin
    1 hr 18 min

  • Handkastið - Markmiðablað fyrir Selfoss stelpur, síðasti séns Ella Rich? Lið FreeAgent leikmanna
    Það var fámennt en góðmennt í sautjánda þætti Handkastsins í kvöld. Þeir bakkabræður, Ponzan og Sérfræðingur voru tveir í NewBalance stúdíó-inu.
    Farið var yfir 9. umferðina í Olís-deild kvenna þar sem stórleikur umferðarinnar fór fram í Origo-höllinni í kvöld. Spáð var í spilin og farið var yfir stuðlabergið fyrir næstu umferð í Olís-deild karla sem fram fer um helgina.
    Að lokum bjó Handkastið til draumalið leikmanna sem eru án félags á Íslandi. Lið sem þeir bakkabræður myndu treysta til að vinna Grillið.
    - Framkisur sýndu klærnar og klóruðu stelpurnar hans Gústa Jó.
    - Maria Ines Da Silva Pereira stimplaði sig inn í vinnuna í fyrsta skipti í vetur
    - Efnilegasti þjálfari landsins tapaði gegn læriföður sínum
    - HK-Digranesaðar gegn heitasta liði landsins
    - Spáð í spilin fyrir Olís-deild karla
    - Draumalið FreeAgent leikmanna í boði Coolbet
    1 hr 9 min

  • Handkastið - Selfyssingar ekki ósigrandi, Rjúpna-Þrándur, Góu Hraun í Krikanum og RúnarsKára-hornið
    Gestur þáttarins að þessu sinni var hinn eitur hressi grunnskólakennari í Öldutúnsskóla Árni Stefán Guðjónsson.
    Farið var yfir 8. umferðina í Olís-deild karla og spáð var í spilin fyrir næstu umferðir í deildinni en fimm umferðir eru fram að jólafríi. Auk þess völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar.
    - Elvars lausir Selfyssingar lentu á Danna Inga veggnum
    - Andlausir Eyjamenn halda áfram að valda vonbrigðum
    - Sveiflukenndur leikur þegar Afturelding vann KA
    - Valsmenn léttir í lund gegn Akureyri
    - Arnar Freyr og Rjúpna - Þrándur skutu Framara í kaf
    - Stórleikur Sverris Scooter dugði ekki til gegn Stjörnunni
    - RúnarsKára hornið
    - Coolbet leikmaður umferðarinnar
    1 hr 38 min

  • Handkastið - Patti Jó um litríkan feril, skrautlegar sögur og hæðir og lægðir með landsliðinu
    Gestur þáttarins að þessu sinni í Handkastinu var Patrekur Jóhannesson núverandi þjálfari Selfoss og austurríska landsliðsins.
    Rætt var um athyglisverðan feril Patreks sem hófst í Garðabænum, stutt viðkoma í Hafnarfirðinum áður en hann flutti til Akureyrar þar sem ferilinn fór almennilega á flug.
    Patti á að baki 241 landsleik og lék í fjölda ára í atvinnumennsku bæði í Þýskalandi og á Spáni með mörgum af bestu handboltamönnum í heimi.
    - Skapstór og hvatvísi á uppvaxtarárunum
    - Árin á Íslandi fyrir atvinnumennsku
    - Góð sjö ár í TUSEM Essen þar sem hann faldi sig í skógi í útihlaupi
    - Stutt dvöl hjá Bidasoa
    - Meiðslahrjáð tímabil í Minden
    - Heimkoman í Garðabæinn
    - Þjálfaraferilinn hófst í Stjörnunni
    - Tímarnir með landsliðinu
    - Vonbrigðin á HM ´95 á Íslandi
    - Frábær mót á HM ´97 og EM ´02
    - Hversu langt ná Haukur Þrastar og Elvar Örn?
    - Hver er besti leikmaður sem Patti hefur spilað með á ferlinum?
    - Hvernig markmaður var Styrmir Sigurðsson?
    2 hr 10 min

  • Handkastið - Jólasveinar með flautu, hundur í settinu og Óli (ó)sýnilegi
    Gestur þáttarins að þessu sinni var Baldvin hinn Fróði Hauksson þjálfari akademíunnar í Kópavogi.
    Í þættinum fórum við yfir 7. umferðina í Olís-deild karla, ræddum aðeins um Grillið og tvær meiðslasögur duttu inn í lokin.
    Umferðin var söguleg í meira lagi því fjórir leikir af sex enduðu með jafntefli og mikil umræða skapaðist á samfélagsmiðlum yfir dómgæslunni. Þjóðin er greinilega að fylgjast með þjóðarsportinu.
    Auk þess völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar.
    - Langur dagur í Mosó
    - Dómararnir stálu senunni í Pizzabænum
    - Sömu dómarar við störf í Eyjum þar sem Agnar Smári og Róbert Aron eignuðu sér sinn gamla heimavöll
    - Læðan læddist og ungu strákarnir stóðu sig vel í Austurblokkinni
    - Tarik "the clutch" Kasumovic
    - Stál í stál á Nesinu
    - Framarar teknir í Stjörnuna
    - Fjölnir að pakka saman óspennandi Grill66-deildinni
    - Meiðslasögur úr 220
    - Coolbet leikmaður umferðarinnar í boði Coolbet
    1 hr 27 min