Hátalarinn

Hátalarinn

By RÚVArts
Download on the App Store

Hátalarinn episodes

  • Svanasöngur Hátalarans
    Í síðasta Hátalaranum heyrast brot úr nokkrum fyrri þáttum. Í upphafi hljóma nokkur dæmi um tónlistina sem opnað hefur þáttinn, en síðan er brugðið upp viðtalsbrotum af handahófi. Albert Finnbogason, Víkingur Heiðar, Curver Thoroddsen, Kristín Björk Kristjánsdóttir , Árni Óskarsson, Jón Marinó Jónsson, Stína Ágústsdóttir og Mugison koma þar við sögu.
    Takk fyrir að hlusta.
    50 min
  • Blásýra og Jói á hakanum
    Sigurður Flosason segir frá nýrri plötu sinnia - Blásýra, sem var að koma út með lögum og textum eftir Sigurð í flutningi nokkurra okkar fremstu söngvara. Einnig talar Arnljótur Sigurðsson við Gunnar Grímsson um hljómsveitina Jóa á Hakanum og aðferðir til að fanga augnablikið í tónlist.
    50 min
  • Sverrir Guðjónsson
    Sverrir Guðjónsson söngvari og raddlistamaður er gestur þáttarins. Hann segir frá ferlinum, söngferlinum sem hófst þegar hann var barn og hvernig hann fann kontratenórröddina. Einnig spjallar hann við Pétur um nýja plötu sína - Rökkursöngva sem var að koma út á tvöfaldri vínýlplötu. Tónlistin í þættinum er eftir Emil Thoroddsen, Jón Leifs, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, Áskel Másson, Karólínu Eiríksdóttur og Oliver Kentish.
    50 min
  • Agnar Már Magnússon
    Agnar Már Magnússon píanóleikari er gestur þáttarins og segir frá nýrri plötu sinni sem geymir íslensk þjóðlög í nýjum útsetningum Agnars fyrir píanótríó og brasssveit. Hann segir frá aðferðum sínum við að setja saman plötuna Mór, sem er sjálfstætt framhald plötunnar Láð sem kom út rárið 2007.
    Einnig eru leikin nóvemberlög nokkurra frönskumælandi söngvaskálda og höfunda í þættinum.
    50 min
  • Nóvemberlög og Hjörtur Ingvi Jóhannsson
    Hörtur Ingvi Jóhannsson píanóleikari er í óða önn að safna saman eigin tónsmíðum fyrir píanó, sem saman ná yfir allar tóntegundirnar. Einnig hljóma í þættinum nokkur nóvemberlög úr ýmsum áttum. Í lok þáttar syngur Jelena Ciric nýtt lag af plötu sinni Shelters One sem kemur út nk föstudag.
    50 min
  • Ný tónlist, Arnljótur og Keith Jarrett
    Í þættinum er leikin nýútkomin tónlist úr ýmsum áttum. Píanóleikarinn Daniil Trifonov spilar tónlist eftir Sergei Prokofiev en systurnar Katia og Marielle Labeque spila tónlist eftir Philip Glass. Einnig hljóma baráttusöngvar úr safni Ninu Simone, Stevie Wonder og Pete Seeger.
    Arnljótur Sigurðsson segir frá svissneska dúettinum Yello og fjallar um fyrirbærið “furðupopp“, en í lok þáttar er hugað að list píanistans Keith Jarrett sem nýlega greindi frá þvi að líkast til væri ferli hans lokið.
    50 min
  • Móses Hightower
    Gestir þáttarins eru þeir Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Elíassen og Steingrímur Teague, en þeir mynda kjarnann í hljómsveitinni Móses Hightower, sem var að senda frá sér nýja plötu sem þegar er farin að vekja mikla athygli, enda ekki síður velheppnuð lög og textar á henni en fyrri plötum hljómsveitarinnar.
    Tilurð tónlistarinnar er umfjöllunarefni þáttarins sem og annað sem ber á góma þegar tónlistarfólk er heimsótt á vettvang sköpunarinnar.
    Einnig hljóma í þættinum nýjar tónlistarútgáfur með bandaríska söngvaskáldinu Sam Amidon og þýska baritóninum Florian Boesch.
    50 min
  • Bára Gísladóttir...og haustið
    Kontrabassaleikarinn og tónsmiðurinn Bára Gísladóttir var að gefa út plötuna Hiber, þar sem hún spilar sjálf nýja tónlist sína fyrir bassa. Bára er gestur Hátalarans og spjallar um tónlistina vítt og breitt - hvað um hana verður og hvaðan hún kemur.
    Einnig er hugað að haustlitum í músík með Johnny Hartman, Elísabetu Erlingsdóttur, Matta Kallio, Jóni Nordal og hljómsveitinni Eik.
    50 min
  • Tónlistarperlufesti og Arnljótur Sigurðsson
    Arnljótur Sigurðsson er gestur þáttarins og bregður á fóninn nokkrum tóndæmum sem tengjast ljóst og leynt auglýsingum í fjölmiðlum og/eða vínartónlist.
    Einnig er fléttuð saman tónlistarleg perlufesti með listafólki frá Færeyjum, Frakklandi, Pólandi og Bandaríkjunum.
    50 min
  • Ásgeir Ásgeirsson
    Gestur þáttarins er Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari sem hefur nýlokið tíu ára verkefni þar sem hann tileinkar sér tónlist fjarlægra slóða- frá Búlgaríu til Tyrklands og Grikklands og alla leið til Íran. Hann hefur á þessari vegferð kynnst tónlistarfólki frá þessum löndum, fólki sem hefur lagt hönd á plóginn og tekið þátt í hljóðritunum á þremur plötum sem komið hafa út síðastliðin þrjú ár og eru nú fáanlegar einar sér eða saman og jafnvel í pakka með nótna og kennslubók um tónlistina sem verður til þegar íslenska þjóðlagið fer á svona flakk.
    52 min

About Hátalarinn

From the publisher's feed

Umsjón: Pétur Grétarsson.