Í þættinum er leitað fanga hjá nýjum og gömlum flytjendum fjölbreyttrar afrískrar tónlistar norðan og sunnan Sahara og allt til Tanzaníu í austri.
Mory Kante, Manu Dibango, Hugh Masakela og fleiri gengnir tónlistarmenn álfunnar koma við sögu. Einnig heyrist í nýju listafólki eins og söngkonunum Souad Massi, Aziza Brahi og Siti Muharam, svo einhverjir séu nefndir úr gríðarstórum hópi listafólks heillar heimsálfu.