Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Download on the App Store

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms episodes

  • 🎙️ Þunglyndislyf á meðgöngu - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki

    Ný íslensk rannsókn, sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins, sýnir að nýburar mæðra sem taka SSRI- eða SNRI-þunglyndislyf á meðgöngu eru meira en tvöfalt líklegri til að þurfa aðstoð eða aðkomu Vökudeildar eftir fæðingu. Um 30% barnanna þurftu slíka aðstoð eða eftirlit, samanborið við um 13% barna í samanburðarhópi.

    Í þessum þætti af Heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu Vilhjálms ræðum við við Þórð Þórarin Þórðarson, nýburalækni á Landspítalanum, sem hafði umsjón með rannsókninni. Við förum yfir niðurstöðurnar, möguleg áhrif lyfjanna á fóstur og nýbura og mikilvægi þess að verðandi mæður fái greinargóðar upplýsingar um lyfjameðferð á meðgöngu.

    Í þættinum ræðum við meðal annars:

    Nýju íslensku rannsóknina – hvað kom í ljós þegar skoðuð voru áhrif SSRI- og SNRI-lyfja á nýbura?

    Öndunarerfiðleika eftir fæðingu – hvers vegna þurfa fleiri börn mæðra sem taka þessi lyf öndunarstuðning eða aðstoð Vökudeildar?

    Seinkaða aðlögun nýbura – slappleika, óróleika, aukna vöðvaspennu og erfiðleika við að nærast.

    Niðurstöðurnar – um 30% barna í lyfjahópnum þurftu aðstoð eða aðkomu Vökudeildar, samanborið við um 13% í samanburðarhópnum.

    Serótónín og fósturþroska – hvaða hlutverki gegnir serótónín í þroska heilans og hvað vitum við um möguleg langtímaáhrif lyfjanna?

    Grun um sýkingar – hvers vegna eru þessi börn oftar rannsökuð vegna mögulegra sýkinga?

    Sektarkennd mæðra – Þórður rifjar upp reynslu sína af mæðrum sem höfðu ekki verið upplýstar um hugsanleg áhrif lyfjanna og ásökuðu sjálfar sig þegar börnin þurftu aðstoð.

    Upplýst samþykki – fá konur nægar upplýsingar um ávinning og áhættu lyfjameðferðar á meðgöngu?

    Lyfjaskammta og áhættu – skiptir máli hvaða lyf eru notuð og í hversu stórum skömmtum?

    Önnur meðferðarúrræði – er nægilegt aðgengi að sálfræðimeðferð og öðrum úrræðum fyrir konur sem glíma við kvíða og þunglyndi?

    Mikla notkun þunglyndislyfja á Íslandi – hvers vegna er lyfjanotkun hér á landi svo mikil og þurfum við að endurskoða áherslur heilbrigðiskerfisins?

    Heilsu móður og barns – hvernig finnum við jafnvægið milli þess að meðhöndla geðræn veikindi móðurinnar og draga úr hugsanlegri áhættu fyrir barnið?

    Þórður leggur áherslu á að konur hætti ekki lyfjatöku án samráðs við lækni. Markmiðið sé að tryggja betri upplýsingagjöf, einstaklingsmiðaða meðferð og raunverulegt val um meðferðarúrræði.

    Mikilvægur þáttur fyrir verðandi foreldra, heilbrigðisstarfsfólk og alla sem vilja fræðast um áhrif lyfja á meðgöngu.

    1 hr 10 min
  • Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum

    ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

    🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is

    🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is
    🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is
    🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is 

    🎙️ Að hámarka heilsuna – tvíburabræðurnir Elvar og Hilmar Leonardssynir fara sínar eigin leiðir

    Tvíburabræðurnir Elvar og Hilmar Leonardssynir völdu sér ólíkar leiðir í upphafi. Annar fór í læknisfræði og hinn í sjúkraþjálfun. Fljótlega áttuðu þeir sig þó á því að þeir sáu ekki framtíð sína innan hins hefðbundna heilbrigðiskerfis. Þeir vildu nálgast heilsuna á annan hátt, leggja meiri áherslu á forvarnir og hjálpa fólki að hámarka eigin heilsu í stað þess að einblína á að meðhöndla sjúkdóma.

    Báðir bættu þeir því við sig námi í heilbrigðisverkfræði og hafa nú stofnað eigið ráðgjafarfyrirtæki á sviði heilsu.

    Í þessum fróðlega og skemmtilega þætti af Heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu Vilhjálms ræðum við meðal annars:

    🧬 Kólesteról 

    💉 GLP-1 

    🍬 Insúlín 

    🥑 Kolvetni, fita og prótein 

    🏃 Íþróttir, mataræði og hámarksárangur

    Bræðurnir deila með okkur sínu ferðalagi, þekkingu, áhugaverðum sjónarhornum og hugmyndum um hvernig við getum tekið meiri ábyrgð á eigin heilsu.

    📲 Fylgist með þeim á Instagram: @north.health.twins

    2 hr 23 min
  • Höfum við einblínt um of á hitaeiningar? Hvað gerist í raun inni í líkamanum? | Insúlín, hvatberar og fitubrennsla | Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir

    ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

    🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is

    🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is
    🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is
    🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is 

     

    🧬 Dr. Kristján Þór Gunnarsson – Höfum við einblínt um of á hitaeiningar en gleymt því sem raunverulega gerist inni í líkamanum?

    Í þessum einstaklega áhugaverða þætti kemur Dr. Kristján Þór Gunnarsson, heimilislæknir aftur til okkar og að þessu sinni köfum við enn dýpra í heim efnaskiptanna, insúlínviðnám, hvatbera og lífsstílstengda sjúkdóma. Við veltum fyrir okkur hvers vegna næring snýst um svo miklu meira en hitaeiningar og hvernig fæðan sem við borðum hefur áhrif á hormónastarfsemi, orkuframleiðslu og heilsu frumnanna.

    Kristján leiðir okkur í gegnum heillandi ferðalag frá efnafræðilegum grunni hitaeininga og alla leið inn í orkustöðvar frumnanna. Hann útskýrir hvernig efnaskiptavandamál þróast, hvað gerist þegar líkaminn verður ónæmari fyrir insúlíni og hvernig markvissar lífsstílsbreytingar geta bætt efnaskiptaheilsu og jafnvel snúið við ákveðnum efnaskiptatruflunum.

    🎙️ Meðal þess sem við ræðum í þættinum:
    • 🔥 Hitaeiningar eða hormónastýring? Hvers vegna er líkaminn ekki einfaldur brennsluofn og af hverju skiptir máli hvaðan hitaeiningarnar koma? Hvernig sendir maturinn hormónakerfinu ólík skilaboð?

    • 🔑 Insúlín og fitubrennsla: Hvernig hefur insúlín áhrif á fitugeymslu og fitubrennslu? Hvers vegna skiptir máli að insúlín lækki svo líkaminn geti betur nýtt eigin fitubirgðir?

    • 🥩 Næring er meira en orka: Hvernig bregst líkaminn við mismunandi næringarefnum og hvers vegna skipta próteinþörf, sedda og hormónaviðbrögð máli?

    • 🩺 Langvinnir lífsstílstengdir sjúkdómar: Hvernig tengist insúlínviðnám sykursýki af tegund 2, fitulifur, hjarta- og æðasjúkdómum og fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS)?

    • 🩸 Hvað segja blóðprufurnar okkur? Hvers vegna getur verið gagnlegt að skoða hlutfall þríglýseríða og HDL-kólesteróls, ApoB og fastandi insúlín í stað þess að horfa eingöngu á heildarkólesteról?

    • 🥣 Er hafragrautur alltaf hollur morgunmatur? Hvenær hentar kolvetnaríkur morgunverður og hvenær getur hann valdið óæskilegri blóðsykurshækkun, sérstaklega hjá fólki með insúlínviðnám?

    • ⚡ Hvatberarnir – orkustöðvar frumnanna: Hvaðan koma hvatberarnir, hvernig þróaðist einstakt sambýli þeirra við frumurnar og hvernig framleiða þeir orku (ATP) úr næringarefnum með hjálp súrefnis?

    • 🧪 Ófullkominn bruni og oxunarálag: Hvernig geta ofgnótt næringarefna og truflanir í orkuefnaskiptum aukið myndun hvarfgjarnra súrefnissameinda (ROS), oxunarálag og langvarandi lágstigsbólgu?

    • ⏳ Fasta og hvíld frá fæðuinntöku: Hvers vegna getur verið gagnlegt að hætta að borða snemma á kvöldin og lengja næturföstuna? Hvaða áhrif hefur fasta á insúlín, hvatbera og viðhaldsferli frumnanna?

    • ☀️ Dagsbirta og dægursveifla: Hvernig tengjast sólarljós, innrautt ljós og blátt ljós dægursveiflu líkamans, insúlínnæmi og starfsemi hvatberanna?

    • 🏃 Hvaða hreyfing er best fyrir hvatberana? Hvernig hafa þolþjálfun á meðalákefð (Zone 2) og stuttar æfingalotur á mikilli ákefð áhrif á fjölda og virkni hvatbera?

    • 😴 Svefn, streita og kviðfita: Hvernig geta langvarandi streita, kortisól og ónógur svefn haft áhrif á insúlínnæmi, fitusöfnun og efnaskiptaheilsu?

    • ❤️ Félagsleg tengsl og frumuheilsa: Hvernig geta einmanaleiki, streita og skortur á félagslegum tengslum haft áhrif á heilsu okkar, jafnvel niður á frumustig?

      🌿 Fróðlegt og umhugsunarvert samtal fyrir alla sem vilja skilja betur hvernig líkaminn starfar og hvaða áhrif mataræði, hreyfing, svefn, birta og daglegar venjur hafa á efnaskiptaheilsuna.

      1 hr 34 min
    • Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

      🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf?

      🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi?
      🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur unnið með þúsundum sjúklinga séð í eigin starfi?

      Gestur okkar í Heilsuhlaðvarpinu er Dr. Bonni Goldstein, bandarískur barnalæknir og einn þekktasti sérfræðingur heims á sviði kannabínóíðalækninga.

      👩‍⚕️ Bonni kemur úr mjög hefðbundnum læknisfræðilegum bakgrunni. Hún lærði barnalækningar, starfaði á Children’s Hospital Los Angeles, var þar Chief Resident og vann síðar á bráðamóttöku barna.

      En vegferð hennar tók óvænta stefnu þegar hún varð vitni að því hvernig alvarlega veikur vinur hennar fékk mikinn ávinning af kannabis. Það varð til þess að hún fór sjálf að kafa ofan í rannsóknirnar – og uppgötvaði heilan heim sem hún hafði fengið litla fræðslu um í læknanámi.

      🌱 Frá árinu 2008 hefur Bonni unnið með þúsundum sjúklinga, bæði börnum og fullorðnum, sem glíma meðal annars við flogaveiki, einhverfu, krabbamein, langvinna verki og ýmsa flókna sjúkdóma og kvilla.

      🎙️ Í þættinum ræðum við meðal annars:

      🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið og hvers vegna skiptir það máli fyrir starfsemi líkamans?

      🌿 Hvernig hafa THC, CBD og önnur kannabínóíð áhrif á líkamann?

      🔬 Hvað segja rannsóknirnar í raun um kannabis til lækninga?

      👶 Hvað hefur Bonni séð í starfi sínu með börnum með erfiða og flókna sjúkdóma eins og krabbameina, margs konar taugasjúkdóma og taugaþroskaraskanna eins og einhverfu?

      💊 Getur kannabis í einhverjum tilfellum hjálpað fólki að minnka notkun annarra lyfja?

      ⚠️ Hvaða áhætta og aukaverkanir fylgja kannabisnotkun í lækningaskyni?

      🩺 Og hvað með sjúklingana sem hefðbundin læknisfræði hefur ekki náð að hjálpa nægilega – eigum við að vera opnari fyrir öðrum meðferðarúrræðum þegar hefðbundnar leiðir hafa ekki skilað árangri?

      📚 Bonni er höfundur bókanna Cannabis Revealed og Cannabis Is Medicine, þar sem hún útskýrir vísindin á bak við kannabis sem læknisfræðilegt meðferðarúrræði og endókannabínóíðkerfið á aðgengilegan hátt.

      🎧 Þetta er gríðarlega áhugavert samtal um læknisfræði, vísindi, fordóma og möguleika.

      ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

      🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is

      🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is
      🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is
      🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is 

       

       

       

      2 hr 23 min
    • Heiti potturinn - Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

      💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴

      Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum. Árið 2024 var notkunin hér á landi sú næstmesta meðal þeirra 34 OECD-ríkja sem skiluðu samanburðarhæfum gögnum og á síðasta ári notuðu tæplega 25.000 Íslendingar Z-svefnlyf á borð við Imovane og Stilnoct eða önnur slævandi lyf. Notkunin eykst verulega með aldri og yfir þriðjungur fólks 80 ára og eldra notaði slík lyf.

      Í þessum þætti fáum við til okkar Drífu Sigfúsdóttur, sem tók virkan þátt í fræðsluverkefninu Sofðu vel á vegum Landssambands eldri borgara. Verkefnið var unnið að frumkvæði og undir forystu Önnu Birnu Almarsdóttur, prófessors við Kaupmannahafnarháskóla, í samstarfi við LEB og aðila úr heilbrigðiskerfinu. Markmiðið var að fræða fólk um svefnlyf, mögulega áhættu þeirra og aðrar leiðir til að takast á við svefnvanda.

      Drífa hefur sérstaka ástæðu fyrir því að brenna fyrir þessu málefni. Móðir hennar tók svefnlyf árum saman og Drífa telur að slæving og byltur hafi átt þátt í þeirri atburðarás sem endaði með því að móðir hennar þurfti að nota hjólastól. Drífa segir að fjölskyldan hafi aldrei verið upplýst um að lyfin gætu haft slík áhrif. Sú reynsla varð henni mikil hvatning til að fræða aðra.

      🎙️ Við förum vítt og breitt yfir svefnlyfjanotkun Íslendinga:

      💊 Hvað gera svefnlyf í raun fyrir svefninn?

      😴 Hvað gerist þegar þau eru tekin mánuðum eða jafnvel árum saman?

      🧠 Við ræðum minni og vitræna getu og rannsóknir sem hafa sýnt möguleg tengsl langtímanotkunar ákveðinna svefnlyfja við heilabilun. 

      🚶‍♀️ Við ræðum gríðarlega alvarlegar aukaverkanir sem geta haft sérstaklega alvarlegar afleiðingar fyrir eldra fólk.

      ⚠️ Hvað með þol og ávanamyndun? Hvað gerist þegar lyf sem upphaflega voru hugsuð sem skammtímalausn verða hluti af kvöldrútínunni árum saman?

      💤 Er svefn undir áhrifum svefnlyfja það sama og náttúrulegur svefn?

      💊 Og erum við í raun að draga úr svefnlyfjanotkun – eða er hluti hennar einfaldlega að færast yfir í önnur slævandi lyf?

      Við ræðum líka hvernig hægt er að draga úr eða hætta notkun svefnlyfja á öruggan hátt, hvaða önnur úrræði eru til við langvinnum svefnvanda og hvers vegna mikilvægt er að gera slíkar breytingar í samráði við heilbrigðisstarfsfólk.

      🌙 Árangurinn af Sofðu vel vekur athygli. Í könnun meðal 2.172 eldri borgara kom fram að meðal þeirra sem höfðu kynnt sér fræðsluna og notað svefnlyf áður en átakið hófst sögðust 46,4% hafa minnkað notkunina eða hætt alveg.

      👉 Þáttur fyrir alla sem taka svefnlyf, eiga foreldra eða aðstandendur sem gera það – eða vilja einfaldlega vita meira um hvað gerist þegar svefnvandinn er meðhöndlaður með lyfjum til lengri tíma.

      ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

      🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is

      🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is
      🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is
      🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is 

       

      1 hr 12 min
    • Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

      ✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum?

      Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur, lækni með sérmenntun í lýðheilsu- og taugavísindum, og annan eiganda HÚÐIN Skin clinic - og förum yfir nánast allt sem viðkemur heilbrigði húðarinnar – og sérstaklega kollageninu. 🧬✨

      Húðin snýst nefnilega um miklu meira en útlitið. Hún er stórt og virkt líffæri, mikilvægur varnarmúr líkamans, tekur þátt í vökvabúskap og hitastjórnun og á í nánu samtali við taugakerfið. En hvað þarf húðin til að geta sinnt öllum þessum mikilvægu hlutverkum?

      🧬 „Kollagen er timbrið í byggingu líkamans,“ segir Lára. Við förum yfir hvað kollagen er, hvers vegna það er svona mikilvægt fyrir húðina og hvaða hlutverki það gegnir víðar í líkamanum – meðal annars í bandvef, beinum og æðum.

      Hvað gerist svo þegar kollagenframleiðslan minnkar með aldrinum? Getum við hægt á því ferli – eða jafnvel stutt líkamann í að framleiða meira kollagen?

      🥩🐟 Við ræðum næringuna sem húðin og kollagenframleiðslan þurfa – prótein og amínósýrur á borð við glýsín, prólín og lýsín, en einnig mikilvægi C-vítamíns, sinks og járns. Hvað með beinasoð, fiskroð og kjúklingaskinn? Og hvað segja gögnin um kollagenpeptíð og kollagen sem fæðubótarefni?

      🐟 Við förum einnig í  omega-3 og ræðum hvaða áhrif fita og önnur næringarefni geta haft á húðina.

      ☀️ Og svo er það sólin. Við ræðum morgunbirtuna, lífsklukkuna og mikilvægi birtunnar fyrir líkamann, en líka UV-geislun, húðöldrun, sólbruna og sólarvarnir. Hvernig finnum við skynsamlegt jafnvægi?

      🏃‍♀️😴 Hreyfing, svefn og streita koma einnig við sögu. Getur góður svefn og regluleg hreyfing stutt við kollagen og heilbrigða öldrun húðarinnar? Og hvaða áhrif hafa reykingar, áfengi og langvarandi streita?

      Við komum líka inn á húðflóruna, plast og efni í umhverfinu okkar, sánuna og svitamyndun – og veltum fyrir okkur hvað raunverulega skiptir máli þegar við viljum hugsa vel um húðina til framtíðar.

      🌿 Fróðlegt og hagnýtt samtal um stærsta líffæri líkamans – húðina – og hvað við getum sjálf gert til að styðja við heilbrigði hennar, innan frá og utan.

      ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

      🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is

      🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is
      🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is
      🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is 

       

      1 hr 25 min
    • Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

      Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir

      Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda í Fascial Maneuvers aðferð Human Garage og stofnanda Lotus Þjálfunar.

      💥 Ingunn þekkir langvarandi verki ekki aðeins af faglegri reynslu heldur af eigin raun. Eftir bílslys glímdi hún árum saman við alvarlega króníska taugaverki og þrenndartaugaverki – trigeminal neuralgia – sem hafa jafnvel verið kallaðir „suicide disease“ vegna þess hversu gríðarlega sársaukafullir þeir geta verið.

      Sársaukinn varð hluti af daglegu lífi hennar og leitin að leið út úr honum leiddi hana inn á fjölmargar ólíkar brautir.

      Í dag segir Ingunn frá því að hún sé verkjalaus.

      🌿 Hvað breyttist?

      Í þættinum förum við djúpt í hennar eigin vegferð og þá þekkingu sem hún hefur safnað á leiðinni – en meginviðfangsefnið er eitt mest spennandi kerfi líkamans: fasían, eða bandvefurinn.

      Við ræðum meðal annars:

      ✨ Hvað fasían eiginlega er og hvers vegna hún skiptir svona miklu máli

      🧠 Tengsl fasíunnar og taugakerfisins
      💥 Hvernig áföll, streita og langvarandi spenna geta komið fram í líkamanum
      🌀 Fascial Maneuvers og nálgun Human Garage
      🙌 Ingunn sýnir okkur og segir frá nokkrum einföldum aðferðum sem hún notar til að vinna með og losa um spennu í fasíunni
      🤸‍♀️ Hreyfingu, öndun og mikilvægi þess að vinna með líkamann sem eina heild
      ❤️ Hennar eigin leið út úr langvarandi verkjum
      🎶 Tónheilun, hljóð, titring og áhrif djúprar slökunar á taugakerfið
      ✨ Náttúruleg andlitslyfting – hvernig vinna með og losun spennu í fasíunni getur haft áhrif á útlitið
      🌱 Og hvað við sjálf getum gert til að skapa líkamanum betri skilyrði til að ná jafnvægi

      Þetta er einstaklega áhugavert samtal um verki, fasíu, taugakerfið, áföll og möguleika líkamans til breytinga – en líka saga konu sem neitaði að sætta sig við að lifa áfram við stöðuga verki.

      🎧 Þáttur sem getur sérstaklega átt erindi við alla sem glíma við langvarandi verki, spennu eða streitu – eða vilja einfaldlega skilja líkamann sinn betur.

      ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

      🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is

      🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is
      🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - biobu.is
      🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is 

      🏋️ Hreyfing – heilsurækt þar sem hreyfing, vellíðan og heilsa fara saman - hreyfing.is

      1 hr 26 min
    • Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

      🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun

      Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales University í Bandaríkjunum og stofnanda Canna Curious Wellness.

      Magnús hefur um árabil rannsakað neytendahegðun, nýsköpun og kannabismarkaðinn og tekið þátt í að þróa háskólanám tengt kannabis og frumkvöðlafræði. Hann hefur því fylgst náið með þeirri gríðarlegu breytingu sem orðið hefur í Bandaríkjunum þar sem kannabis hefur víða færst úr neðanjarðarheimi yfir í löglegan og ört vaxandi markað.

      🌱 En hvað hefur þessi reynsla kennt okkur?

      Við ræðum við Magnús um kannabis frá mörgum hliðum – THC, CBD, CBG, terpena og önnur virk efni plöntunnar. 

      Við tölum líka um notkun kannabis í tengslum við svefn, verki, streitu, slökun og lífsgæði, og hvers vegna fólk yfir fimmtugu er orðið sérstaklega áhugaverður hópur í þessari þróun. Hvar liggja raunveruleg tækifæri – og hvar þarf að stíga varlega til jarðar?

      🍷 Getur kannabis hjálpað fólki að draga úr neyslu áfengis?

      🌿 Hver er munurinn á CBD, THC og öðrum kannabínóíðum?
      ⚖️ Hvernig hefur tekist við lögleiðingu í Bandaríkjunum?
      🇮🇸 Og hvað gæti Ísland lært af reynslu þeirra ríkja sem hafa þegar farið þessa leið?

      🎙️ Forvitnilegt, opið og fræðandi samtal við Íslending sem hefur setið í fremstu röð og fylgst með einni mestu breytingu sem orðið hefur á viðhorfum, löggjöf og neytendahegðun í kringum kannabis á síðustu árum.

      ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

      🏋️ Hreyfing – heilsurækt þar sem hreyfing, vellíðan og heilsa fara saman - hreyfing.is

      🛒 Nettó – uppskerudagar - frábær tilboð á nýju íslensku grænmeti og fleiru - netto.is
      🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - biobu.is
      🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is
      🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is 

      1 hr 9 min
    • Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

      🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál?

      Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu. Hörður er söngvaskáld, leikari, leikstjóri, leikskáld og mannréttindabaráttumaður og hefur í meira en hálfa öld látið rödd sína heyrast – bæði á sviði og í samfélagsumræðunni. 

      Hörður fæddist árið 1945 og varð 81 árs á þessu ári – en þegar maður hittir hann er erfitt að trúa þeirri tölu. Hann er léttur í spori, orkumikill og lítur út fyrir að vera áratugum yngri. 🌱✨

      Upphaflega ætluðum við að ræða við Hörð um eitt sérstakt atriði sem hann hefur tekið upp: að ganga aftur á bak. 🚶‍♂️↩️ Hann segir okkur hvers vegna hann byrjaði á því, hvaða breytingum hann fann fyrir og hvernig þetta hefur orðið hluti af því sem hann gerir til að halda líkamanum gangandi.

      En spjallið fór fljótt miklu víðar. ❤️

      Við tölum um heilsu, hreyfingu, öldrun, lífið og tilveruna, hvernig við getum haldið áfram að rækta forvitni og lífskraft eftir því sem árin færast yfir og hvað Hörður sjálfur gerir dagsdaglega til að viðhalda bæði líkamlegri og andlegri heilsu.

      🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms

      Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar:

      💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! Ef þú hefur ekki komið til þeirra áður eða þarft aðstoð við að koma þér af stað getur þú bókað frían tíma með ráðgjafa hér!

      🐄 Bíóbú – BioBú er fjölskyldufyrirtæki í fremstu röð í framleiðslu á lífrænum mjólkurvörum. Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara. biobu.is

      🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛 

      🛒 Nettó – Uppskerudagar! Frábær tliboð á íslensku grænmeti og öðrum góðum vörum fyrir heimilið þitt. - kíktu á tilboðin á netto.is. 

      🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is.

       

      1 hr 17 min
    • Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir

      🌿 Eigum við að hafa meira val og meira frelsi þegar kemur að okkar eigin heilsu?

      Í þessum þætti eigum við opið og afar áhugavert samtal við Þórarinn Ævarsson og Þórunni „Tótu“ Þórs Jónsdóttur, stofnanda og drifkraftinn á bak við alþjóðlegu ráðstefnuna Health for the Future, sem fram fer í IÐNÓ dagana 18.–20. september.

      Við fórum víðan völl en rauði þráðurinn var einfaldur: Hvernig getum við skapað heilbrigðiskerfi þar sem fólk hefur fleiri raunverulega valkosti í sinni vegferð að betri heilsu?

      💊 Hversu margir Íslendingar eru í dag á sterkum og jafnvel ávanabindandi lyfjum árum saman – og hversu auðvelt er að byrja að taka þau en erfitt að komast aftur af þeim?

      🧩 Hvað verður um fólkið sem dettur á milli kerfa, fer á milli lækna og meðferða en finnur samt ekki lausn sinna mála?

      🌱 Við ræðum reynslu fólks af kannabisi til lækninga og þær sögur þar sem einstaklingar segjast hafa náð miklum bata, dregið verulega úr hefðbundinni lyfjameðferð eða jafnvel hætt lyfjum sem þeir höfðu tekið árum saman og glímt við miklar aukaverkanir af.

      🧠 Við förum einnig inn á vaxandi rannsóknir og umræðu um hugbreytandi efni í meðferð, möguleikana sem þar kunna að felast og hvers vegna mikilvægt er að geta rætt þessi mál af yfirvegun, byggt á vísindum, reynslu og öryggi – í stað þess að loka umræðunni fyrirfram.

      Við spyrjum meðal annars: Er heilbrigðiskerfið nægilega opið fyrir nýjum leiðum þegar hefðbundnar meðferðir duga ekki? Hver á að ráða hvaða meðferð einstaklingur má skoða? Og hvernig aukum við val án þess að slaka á kröfum um öryggi og fagmennsku?

      Þórarinn og Tóta segja jafnframt frá sinni eigin reynslu af veikindum og heilbrigðiskerfinu, reynslu sem hefur mótað sýn þeirra á þessi mál og löngunina til að opna umræðuna.

      Health for the Future leiðir saman lækna, vísindafólk, sjúklinga, frumkvöðla og fólk með ólíka reynslu til að ræða hvernig framtíð heilbrigðisþjónustunnar getur orðið opnari, fjölbreyttari og mannlegri.

      🎧 Hugvekjandi og hreinskilið samtal um heilbrigðiskerfið eins og það er í dag – og hvernig það gæti litið út í framtíðinni ef við þorum að opna fleiri dyr.

      ✨ Við hvetjum alla sem láta sig þessi mál varða til að koma á Health for the Future og vera hluti af breytingunni.

      🎟️ Afsláttarkóði: ICELAND33

      Notið kóðann þegar þið kaupið miða á ráðstefnuna.

      👉 Miðar: tickets.healthforthefuture.is

      Komum saman, tökum þátt í samtalinu og verum hluti af þeirri breytingu sem við viljum sjá í heilbrigðiskerfinu. 🌿

      -------

      🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms

      Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar:

      💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is

      🐄 Bíóbú – Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara.

      🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án óþarfa aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛

      🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á netto.is. 

      🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is.

      1 hr 49 min

    About Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

    From the publisher's feed

    Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur…

    More shows like Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

    Í ljósi sögunnar by RÚV

    Í ljósi sögunnar

    468 Listeners

    Heilsuvarpid by Ragga Nagli

    Heilsuvarpid

    7 Listeners

    Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

    Morðcastið

    131 Listeners

    Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

    Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

    91 Listeners

    Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

    Teboðið

    29 Listeners

    Morðskúrinn by mordskurinn

    Morðskúrinn

    22 Listeners

    Þjóðmál by Þjóðmál

    Þjóðmál

    29 Listeners

    Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

    Chess After Dark

    20 Listeners

    Spjallið by Spjallið Podcast

    Spjallið

    14 Listeners

    Eftirmál by Tal

    Eftirmál

    36 Listeners

    Undirmannaðar by Undirmannaðar

    Undirmannaðar

    6 Listeners

    Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

    Með lífið í lúkunum

    8 Listeners

    UltraForm Hlaðvarp by Sigurjón Sturluson

    UltraForm Hlaðvarp

    0 Listeners

    Komið gott by Komið gott

    Komið gott

    27 Listeners

    Hlaðfréttir by Pera Production

    Hlaðfréttir

    12 Listeners