Hlaðvarp Almenna, lífeyrismál á mannamáli

Hlaðvarp Almenna, lífeyrismál á mannamáli

By Almenni lífeyrissjóðurinnArts
Download on the App Store

Hlaðvarp Almenna, lífeyrismál á mannamáli episodes

  • Tölum um peninga

    Hafi ekki þegar verið hringt í þig eða þú fengið heimsókn þar sem verið er að reyna selja þér séreignarsparnað, þá er líklegt að það gerist á næstunni. Í þessu hlaðvarpi er farið yfir hvað er hér á ferðinni. 

    41 min
  • #8 Seðlar - borðspil um fjármál

    Kannski eru leikir og spil heppileg leið til að efla fjármálalæsi og fræða fólk um fjármál og lífeyrismál á skemmtilegan hátt. Í þættinum kynnumst við verkfræðinemunum Tristani Þórðarsyni og Veigari Elí Grétarssyni sem eru að þróa borðspil um fjármál sem þeir kalla Seðla.

    14 min
  • #7 Ungt fólk vill læra um lífeyrismál

    Rannsókn á þekkingu og viðhorfi ungs fólks á lífeyrismálum leiðir í ljós að ungt fólk vilji læra um lífeyrismál. Ásdís Rún Ragnarsdóttir gerði rannsóknina í meistaranámi í mannauðsstjórnun og segir frá niðurstöðum hennar í 7. þætti af Hlaðvarpi Almenna í samtali við Halldór Bachmann, kynningarstjóra sjóðsins. 

    39 min
  • #6 Skipting lífeyrisréttinda milli hjóna

    Hjónum og sambúðarfólki stendur til boða að jafna lífeyrisréttindi sín. Úrræðið skiptir sérstaklega miklu máli þegar mikill munur hefur verið á tekjum á milli hjóna eða sambúðarfólks á starfsævinni, til dæmis ef annað hjóna er heimavinnandi en hitt aflar tekna á vinnumarkaði. 

    Í þessum þætti af Hlaðvarpi Almenna ræða Þórhildur Stefánsdóttir ráðgjafi hjá Almenna og Halldór Bachmann kynningarstjóri Almenna við Þórey S. Þórðardóttur, framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða um málið.

    Meðal annars verður leitast við að svara því hvort skipting lífeyrisréttinda henti öllum hjónum eða sambúðarfólki, hvernig ferlið gengur fyrir sig og hvort ljúka þurfi skiptingu fyrir ákveðinn aldur.

    17 min
  • #5 Örorka og úrræði

    Hvaða úrræði lífeyrssjóðir og Virk gagnvart örorku og hvernig má nýta þau úrræði til að komast aftur af stað út í atvinnulífið? Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Virk starfsendurhæfingar er gestur Þórhildar Stefánsdóttur, ráðgjafa Almenna og Halldórs Bachmann, kynningarstjóra Almenna.

    0:00
    01:49  Réttindi í lífeyrissjóðum skiptist í tvennt
    04:34  Hlutverk Virk starfsendurhæfingarsjóðs
    05:20  Hvernig gengur þjónusta Virk fyrir sig?
    06:15  Hvaða þjónusta er í boði hjá Virk?
     07:20  Sérsniðin endurhæfingaráætlun
    12:25 Búist við meira álagi í kjölfar Covid 


    29 min
  • #4 Sjálfbærni í fjárfestingum

    Sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð í fjárfestingum er að komast af hugmyndastigi yfir á framkvæmdastig. Í þessum þætti af Hlaðvarpi Almenna er farið á dýptina um stöðuna, þróunina og áskoranirnar í þessum málum. Fram koma þau Þröstur Olaf Sigurjónsson prófessor við viðskiptafræðideild HÍ og Copenhagen Business School og Lára Jóhannsdóttir, prófessors í umhverfis- og auðlindafræði við viðskiptafræðideild HÍ. Helga Indriðadóttir, sjóðsstjóri hjá Almenna og stjórnarmaður í Iceland SIF og Halldór Bachmann, kynningarstjóri Almenna taka þátt í umræðunni. 

    1 hr 10 min
  • #3 Algengar spurningar

    Hvaða spurningar eru oftast að berast til Almenna lífeyrissjóðsins þessa dagana, hafa þær breyst á síðustu áratugum og myndu aðrar spurningar nýtast sjóðfélögum betur?  Brynja Margrét Kjærnested og Þórhildur Stefánsdóttir, reyndustu ráðgjafar sjóðsins leitast við að svara þessum spurningum og miðla af áratuga langri reynslu sinni og þekkingu.

    26 min
  • #2 Fjárfestingarstefna, prjónauppskriftir og reiknað endurgjald

    Aðalefni þáttarins er fjárfestingarstefna Almenna fyrir árið 2021. Kristjana Sigurðardóttir, fjárfestingarstjóri Almenna greinir frá helstu breytingum á fjárfestingarstefnu og skýrir góða ávöxtun síðasta árs. Í lífeyrisleyndardómnum útskýrir Þóra Margrét Birgisdóttir, kennari og fyrirtækjaeigandi í Stykkishólmi, hvernig umræða um lífeyrismál hljómar fyrir henni. Í Almennu lífeyrisorðabókinni er tekið fyrir fyrirbærið reiknað endurgjald.

    0:00 Inngangur
    00:30 Eva Ósk Eggertsdóttir
    01:33 Kristjana Sigurðardóttir, um ávöxtun 2020
    08:38 Breytingar á fjárfestingarstefnu
    14:25 Tæknin og miðöldrun
    16:20 Prjónauppskriftir og lífeyrismál, Þóra Margrét Birgisdóttir
    24:12 Hvað er reiknað endurgjald?

    27 min
  • #1 Fyrsta fasteign

    Lífeyrismál á mannamáli
    Fjallað um fyrstu fasteign og leiðir til að auðvelda kaupin, Lífeyrisleyndardómurinn: Aðsend spurning frá Árna Helgasyni um það sem þarf að hafa í huga ef maður myndi vilja skipta um lífeyrissjóð.  Almenna lífeyrisorðabókin, hugtak um lífeyrismál eða fjármál útskýrt. Hvað er aldurstengd réttindaávinnsla? Úff, hljómar flókið en svarað á mannamáli.

    28 min

About Hlaðvarp Almenna, lífeyrismál á mannamáli

From the publisher's feed

Hlaðvarp um lífeyrismál og hvaðeina sem þeim við kemur. Leitast er við að útskýra hlutina á mannamáli.