Lestin yfirgefur brautarpallinn 17:03, og fer hratt í dag. Við sögu í þætti dagsins koma meðal annars Charles Dickens og Þórdís Bachmann, Paul Virilo og Björn Þór Vilhjálmsson, hljómsveitin Massive Attack og Davíð Roach Gunnarsson, tónlistarkonan SiGRÚN, danska skáldið Yahya Hassan, skáld og glæpir, Halldór Armand Ásgeirsson og andófið í bóklestrinum, Erla Björnsdóttir og svefn, Margrét Erla Maack og kabarett, og Marta Sigríður Pétursdóttir og Alþjóðlega kvikmyndahátíðin RIFF í Reykjavík.
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson