Já, í símaskránni má finna þrjá einstaklinga sem gefa upp starfsheitið „kolefnisfargari.“ Þetta er starfsfólk hjá CarbFix verkefni Orkuveitu Reykjavíkur, tilraunaverkefni sem vinnur að því að festa í bergi koldíoxíð sem annars færi út í andrúmsloftið. Við heimsækjum Hellisheiðarvirkjun og forvitnumst um Carbfix aðferðina hjá Söndru Ósk Snæbjörnsdóttur, kolefnisfargara.
Miklir eldar geysa í Ástralíu. Skógar brenna, hús og jafnvel votlendi. Fuglar forða sér á flugi, kengúrur skoppa í burt á ógnarhraða en eina vörn hægfara kóalabjarna er að klifra hærra upp í gúmmítrén, sem síðan brenna. Fyrirsagnir um að eldurinn sé að útrýma kóalabjörnum eru þó ýktar. Það er eftir allt svo margt annað sem er að útrýma kóalabjörnum, svo sem lægra næringargildi í fæðu þeirra og klamydía. Við tökum fyrir hinar mörgu krísur kóalabjarna í Lestinni í dag.
Og Anna Gyða Sigurgísladóttir heldur áfram leit sinni að andagiftinni. Viðmælandi hennar í dag er Elísabet Elma Líndal, nemandi í kvikmyndaskóla í Prague. Hún grípur sig stundum við að stara á fólk.