Karfan
Download on the App Store

Karfan episodes

  • Leyfið ljósunum að skína í Los Angeles
    Rúmar tvær vikur eru liðnar síðan að opnað var fyrir leikmannamarkað NBA deildarinnar. Nokkuð mikið hefur gerst síðan, þar sem meðal annarra nokkrir allra bestu leikmanna deildarinnar hafa skipt um lið fyrir komandi tímabil.Í þættinum er farið yfir nokkur stærstu nöfnin, sem og pælt í hvaða áhrif þetta muni hafa á deildirnar á næsta tímabili.Umsjón: Davíð Eldur, Ólafur Þór og Sigurður OrriDagskrá:02:30 - LeBron og Lakers18:00 - Kawhi og DeMar skiptin27:50 - Chris Paul semur við Rockets35:40 - Boogie til Warriors41:00 - Isaiah Thomas til Nuggets43:50 - Orlando Magic hornið48:00 - Milwaukee Bucks og Chicago Bulls52:00 - Philadelphia 76ers55:00 - Washington Wizards1:03:40 - Oklahoma City hræringar og annað sem hefur gerst1:09:30 - Hvaða liðum verður spennandi að fylgjast með?

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 17 min
  • Hannes um landsliðin, Dominos deildirnar, erlenda leikmenn og fleira
    Í annað skiptið í sumar náði Karfan.is að tryggja sér viðtal við formann KKÍ til að spjalla um allt körfuboltatengt. Hannes Jónsson settist niður með Karfan.is og ræddi landsliðin og nýafstaðin töp A-landsliðs karla og hvaða merkingu það hafi að þeir séu dottnir úr undankeppni HM. Bosman-reglan bar á góma og Hannes útskýrði hvað gerðist til að reglugerðarbreytingin fór í gegn. 1. deild kvenna verður með 8 lið að keppa á næsta tímabili og við ræddum um eflingu körfuboltans kvenna megin og hvað sé framundan. Neðri deildirnar karla megin voru ræddar stuttlega sem og Dominos Körfuboltakvöld og fjöldi útsendinga. Að lokum sagði Hannes frá því hvernig var að kíkja til New York á nýliðavalið hjá NBA og að vera með Tryggva Snæ Hlinasyni þar og við rétt minnumst á U20 karla sem eru farnir út að keppa.Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:30 - A-landslið karla eftir fall úr undankeppni HM06:10 - Bosman-reglan rædd og hvernig önnur lönd gera þetta15:00 - Næsta tímabil og 1. deild kvenna18:30 - Efling körfuboltans kvenna megin og U20 kvenna22:30 - Neðri deildir karla24:55 - Dominos Körfuboltakvöld og fjölgun útsendinga27:30 - Nýliðaval NBA og ferð Hannesar þangað33:20 - Örsnöggt um U20 karla

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    37 min
  • Arnar Guðjóns í spjalli - Tekur við Stjörnunni og kveður landsliðið

    Borgfirðingurinn Arnar Guðjónsson settist niður með Podcasti karfan.is á dögunum og ræddi um heima og geima. Arnar sem hefur komið víða við á sínum ferli, allt frá Höfn í Hornafirði til Aarhus í Danmörku hefur frá ýmsu að segja.

    Arnar er nýráðinn þjálfari Stjörnunnar í Garðabæ og er fyrrum aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla. Hann er gestur þáttarins að þessu sinni.

    Umsjón: Ólafur Þór og Davíð Eldur

    Efnisyfirlit:

    1:00 - Körfuboltinn byrjar á Kleppjárnsreykjum

    6:10 - Spilaði eitt ár í efstu deild sem leikmaður

    7:40 - Flutningar til Danmerkur

    12:50 - Arnar tekur við Svendborg

    21:00 - Viðskilnaðurinn við A-landsliðið

    24:15 - Eurobasket ævintýrin

    29:00 - Eurobasket 2017, vonbrigði?

    31:50 - Undankeppni HM hingað til og leikirnir framundan

    44:00 - Arnar tekur við Stjörnunni

    49:30 - Skoðun Arnars á fjölgun erlendra leikmanna

    51:30 - Hverju má búast við af Stjörnunni í vetur?

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    56 min
  • Neyðarþáttur - Tryggvi í NBA deildina?

    Í kvöld fer fram NBA nýliðavalið 2018 en í þetta skiptið er það sérlega spennandi fyrir okkur íslendinga. Ástæðan er sú að Bárðdælingurinn Tryggvi Snær Hlinason er talinn líklegur til að vera á meðal leikmanna sem valdir verða í eitthvert lið.

    Þessi neyðarútgáfa af Podcasti karfan.is er því helguð NBA nýliðavalinu og umræðan mest á Tryggva Hlinasyni.

    Gestur þáttarins er Arnar Guðjónsson núverandi þjálfari Stjörnunnar og fyrrum aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla.

    Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur

    Efnisyfirlit:

    2:00 - Hvernig gaur er Tryggvi Hlinason?

    7:00 - Framfarir Tryggva

    16:30 - Verður Tryggvi draftaður?

    20:30 - Framtíðin eftir draft

    30:00 - Pop-viðtal Arnars

    33:20 - Fyrstu valréttirnir í Draftinu - Doncic eða Ayton?

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    47 min
  • Yngvi Páll: Körfuboltabúðir Vestra, starfið á Ísafirði og aðlögunarhæfni þjálfara
    Blaðamaður Karfan.is var fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og tók nokkur stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem voru þar. Yngvi Páll Gunnlaugsson, yfirþjálfari Vestra og einn af skipuleggjendum körfuboltabúðanna, kom í viðtal daginn eftir að búðunum lauk til að ræða þær. Við ræddum hvernig hann sæi næsta tímabil fyrir sér og hvernig gengi að fá leikmenn vestur á Ísafjörð. Starfið hjá Vestra varð umræðuefni og væntanleg afreksbraut fyrir íþróttamenn í Menntaskóla Ísafjarðar. Yngvi talar um hvernig þjálfarar bæti sig í starfinu og hvað skipulag og traust skipti miklu máli. Að lokum minnir hann á að þetta eigi að vera það skemmtilegasta sem við gerum og að körfuboltinn geti gefið okkur svo ótrúlega mikið.Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:30 – Yngvi Páll gerir upp körfuboltabúðir Vestra 2018.03:30 – Staðsetning körfuboltabúðanna, kostur eða galli?04:50 – Hvernig gengur að fá leikmenn vestur á Ísafjörð? 07:00 – Starfið hjá Vestra næstu árin.10:15 – Þjálfarateymið í körfuboltabúðum Vestra í ár.12:00 – Aðlögunarhæfni þjálfara og metnaður þeirra fyrir starfinu.14:15 – Hvernig þjálfarar geta lært af hver öðrum.16:15 – Þjálfarar sem höfðu áhrif á Yngva.18:00 – Hvað leitar Yngvi eftir í leikmönnum sínum?21:05 – Fyrirmyndir Yngva í körfuboltanum á árum áður.23:30 – Að vita hvað þú sért að fá út úr drillum og að vinna skipulega.25:20 – Lokaskilaboðin: "Það er ótrúlegt hvað körfuboltinn hefur gefið manni mikið."

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    29 min
  • Hannes Jónsson: Körfubolti er orðin heilsárs-íþrótt
    Blaðamaður Karfan.is var fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og tók nokkur stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem voru þar. Að þessu sinni fékkst formaður KKÍ, Hannes S. Jónsson, til að mæta í stutt viðtal. Við ræddum Vestra körfuboltabúðirnar og sumarstarf KKÍ ásamt yngri landsliðaverkefni (og verkefni A-landsliðanna) í sumar. Að lokum ræddum við vöxt körfubolta á Íslandi og hvert körfuboltinn er að fara. Hvað myndi Hannes gera ef að KKÍ hefði fleira starfsfólk? Hvað er að frétta af þjálfara- og dómarastéttinni og hvernig styður KKÍ við þau? Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:30 – Körfuboltabúðir Vestra og formaður KKÍ.04:30 – Tvær stærstu körfuboltabúðir Íslands sömu vikuna.07:00 – Sumarstarf KKÍ: afreksbúðir og úrvalsbúðir KKÍ. 09:45 – Yngri landsliðin og verkefni þeirra í sumar.12:10 – Mótahaldið næsta vetur, nokkrar breytingar.15:30 – Er hellingur að gera á skrifstofu KKÍ allt árið?17:40 – Hvert stefnir körfuboltinn á Íslandi?19:55 – KKÍ samanborið við önnur körfuknattleikssambönd úti í heimi.23:40 – Hvað yrði næsta framfaraskref hjá KKÍ ef að tækifærið byðist?25:30 – Dómaramál rædd.29:55 – Lokaskilaboð Hannesar út í sumarið fyrir efnilega leikmenn og þjálfara.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    33 min
  • Fer LeBron James til Rockets eða Lakers?
    NBA tímabilið kláraðist á dögunum með sigri Golden State Warriors. Úrslitaserían var frekar ósanngjörn þar sem að Cavaliers lágu 4-0 fyrir meisturunum. Í þessum síðasta þætti tímabilsins er farið yfir úrslitakeppnina og við hverju megi búast af leikmannamarkaðinum í sumar.Þátturinn er einnig á iTunesUmsjón: Davíð Eldur & Sigurður OrriTryggvi Snær á leið í deildina (00:30)Casey til Pistons (10:30)Lokaúrslit og leikmannamarkaðurinn (15:30)

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    44 min
  • Elvar Már um háskólaboltann, landsliðið og þjálfun
    ​Blaðamaður Karfan.is er fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og er að taka stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem eru þar. Enn annar þjálfunarþáttur af Podcasti Karfan.is er því kominn í loftið. Elvar Már Friðriksson var leynigestur í búðunum í ár og Karfan.is var svo lánsamt að ná eldsnöggu viðtali við hann. Elvar ætti að vera flestum körfuboltaunnendum góðkunnur eftir landsliðsævintýrið á EM 2017. Hann segir frá uppvaxtarárunum í Njarðvík og hvenær hann ákvað að verða atvinnumaður. Elvar er ekki hár til loftsins og minnist þess að þurfa að æfa stíft til að vera tilbúinn þegar tækifærið hans kæmi. Hann lýsir mótlætinu sem fylgdi því að vera minni en flestir og hvað það skipti máli að vera andlega sterkur. Einar Árni hafði mikil áhrif á Elvar Má og hann fer fögrum orðum um sinn gamla þjálfara sem er nú snúinn aftur í Njarðvík. Elvar fylgist með flestu leikmönnum og hann telur að hægt sé að læra eitthvað af öllum. Hann talar áfram um andlega þáttinn í þjálfun og hvert körfuboltinn sé að fara í framtíðinni.Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:30 – Elvar Már og uppvaxtarárin í Njarðvík og yngri landsliðunum.04:25 – Háskólaboltinn í USA: LIU og Barry University.06:30 – Landsliðsverkefnin 2015 og 2017 og vinskapurinn í liðinu. 09:45 – Áhrifamesti þjálfarinn/kennarinn sem fæstir vita af.12:10 – Elvar ræðir mikilvægi þess að fylgjast með leikmönnum og læra af þeim.13:30 – Besta bókin sem Elvar las til að styrkja andlega þáttinn hjá sér.16:25 – Sendingamenn sem Elvar telur góða.18:25 – Hvert er körfuboltinn að fara og hvað segir Elvar í tengslum við það?19:40 – Uppáhaldsdrillur Elvars.20:50 – Lokaskilaboðin: "Æfið líka andlegu hliðina."

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    23 min
  • Jóhannes Kristbjörnsson um þjálfun, hugarfar og Njarðvík
    Blaðamaður Karfan.is er fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og er að taka stutt og laggóð viðtöl við þjálfara sem eru þar að taka þátt. Enn annar þjálfunarþáttur af Podcasti Karfan.is er því kominn í loftið. Þar er rætt við Jóhannes Albert Kristbjörnsson, Njarðvíking og reynslubolta, bæði sem leikmaður og þjálfari. Jói talar um eftirminnilega tapleiki og hvaða lærdóm megi draga af þeim. Einbeiting leikmanna sem og þjálfara ber á góma og við ræðum leikmenn sem hafa einstaka einbeitingu. Áhrifamiklir þjálfarar eru umtalsefni og hvernig við kunnum stundum ekki að meta þá fyrr en seinna meir. Sköpunargáfa er eitthvað sem að Jói leitar oft eftir og hann bendir á skapandi leikmenn og hvernig hann telji að leikmenn geti verið meira skapandi. Metnaður, styrkur og fótavinna eru rædd stuttlega og að lokum skila Jói síðan eftir skilaboð til leikmanna og þjálfara fyrir sumarið.Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:30 – Njarðvíkingurinn Jói og lærdómurinn af tapleikjum.04:00 – Einbeiting og að þjálfa upp betra hugarfar.09:45 – Áhrifamesti þjálfarinn/kennarinn sem fæstir vita af.12:30 – Ást Jóa á sókn og sköpunargáfunni á bak við hana.14:05 – Skapandi leikmenn og mikilvægi góðrar boltatækni.16:00 – Algengustu tímaþjófarnir á æfingum erum við sjálf.18:00 – Seinasta bókin sem Jói las; pössum upp á styrktarþjálfun19:50 – Finnið ástæðu til að mæta á æfingu, ekki öfugt.21:10 – Fótavinna skiptir máli, þessi leikur snýst stundum um nokkra sentímetra.24:00 – Ekki dunda ykkur í sumar, mætið einbeitt á æfingar.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    26 min
  • Kristjana um þjálfun, Keflavík og eljuna
    Nýr þjálfunar þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar er rætt við Kristjönu Eir Jónsdóttur, þjálfara yngri flokka Keflavíkur, aðstoðarþjálfara U-16 stúlkna og aðalþjálfara U-14 stúlkna. Elja er til umræðu og hvernig leikmenn geti þjálfað það upp í sér sem og hvernig það skilar sér inni á vellinum. Þjálfarar Keflavíkur og sigurvilji Keflvíkinga ber á góma og við ræðum hvaða hlutverki tölfræði ætti að gegna hjá leikmönnum og þjálfurum. Kristjana talar um hvernig ætti að verja æfingatíma og hvað vantar í körfubolta á Íslandi. Að lokum ræðum við það að hætta að svekkja sig og hvað leikmenn og þjálfarar ættu að gera yfir sumarið.Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:30 – Kristjana ræðir Keflavík og liðin þar02:35 – Hvað er elja og hvers vegna skiptir hún máli?05:35 – Kristjana útskýrir eljuna í Keflavík (og frákastarýrð).07:45 – Áhrifamesti þjálfarinn sem fæstir vita af.10:40 – Hlutverk tölfræði fyrir leikmenn og þjálfara.12:40 – Góðir varnarmenn leyna á sér. Hvað má ganga langt?16:00 – Hvernig skal verja tímanum á æfingum og uppáhaldsvarnardrillur Kristjönu.20:30 – Hvað vantar í körfuboltann á Íslandi?23:10 – Hættið að svekkja ykkur á því sem þið fáið ekki breytt.24:20 – Áherslur Kristjönu á æfingum og mikilvægi styrktarþjálfunar27:25 – Lokaskilaboð Kristjönu út í sumarið.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    29 min

About Karfan

From the publisher's feed

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

More shows like Karfan

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Endalínan by Podcaststöðin

Endalínan

9 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Boltinn Lýgur Ekki by SiggiOrri

Boltinn Lýgur Ekki

1 Listeners