Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Harald Jónsson myndlistarmann en á laugardag verður opnuð á Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á verkum hans. Sýningin nefnist Róf og spannar þrjátíu ára feril Haraldar.
Í byrjun árs ferðaðist Halldór Ragnarsson, myndlistarmaður, um eyjar Suður-Karíbahafsins í tvo mánuði. Hann dvaldist á fáförnum eyjum og ljósmyndaði þar fólk og staði og útkoman kemur nút út í ljósmyndabók sem nefnist Leit að lífi. Bókin inniheldur einnig brot úr ferðadagbók Halldórs, hugleiðingar sem varpa ljósi á hið innra tilvistarlega ferðalag listamannsins. Halldór tekur sér far með Lestinni og ræðir um ferðalög, ljósmyndir og leitina að lífi. Á fimmtudögum í októbermánuði flytur Eydís Blöndal, ljóðskáld, pistla um kvennastörf, hlustendur heyra annan pistil hennar í þættinum í dag. Og Davíð Roach Gunnarsson fjallar um nýútkomna plötu með bandaríska tónlistarmanninum Kurt Vile.
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson