Þessa dagana eru eflaust margir sem eru að fjárfesta í almanaki eða dagbók fyrir árið sem er að hefjast, 2021. Í Lestinni í dag kynnum við okkur sögu dagbókarinnar hér á landi með Davíð Ólafssyni, sagnfræðingi. Við ræðum meðal annars hvernig þessi nýja tækni hafði áhrif á hugsun Íslendinga um tímann. Margir hafa mikla unun af því að ræða og rífast um fótbolta. Undanfarið hefur þó minna verið rætt um boltafimi og meira um orðfæri þegar kemur að úrúgvæska leikmanninum Edinson Cavani sem hlaut þriggja leikja bann fyrir að nota orðið “Negrito“ á instagram. Við veltum fyrir okkur menningarsamhengi tungumála og fáum Tómas Þór Þórðarson íþróttafréttamann til að segja okkur söguna af Cavani, sem á sér reyndar óvenju nærtækt fordæmi. Þórður Ingi Jónsson sökkvir sér ofan í sögu raftónlistarinnar og kynnir sér kvenkyns frumkvöðla hennar, en að undanförnu hefur víða átt sér stað feminísk endurskoðun á tónlistarsögunni. Hann kynnir sér heimildarmynd um málið, Sisters with transistors,