Tónlistarkonan Celine Dion kynnti nýlega kynhlutlausa barnafatalínu. Herferðin þaut eins og eldur í sinu um internetið. Fatalínan verður skoðuð nánar í þætti dagsins. Rætt verður við Jóhönnu Guðrúnu, söngkonu og sérlegan Celine Dion aðdáanda. Einnig verður í þætti dagsins rætt við Arnbjörgu Maríu Danielsen, listrænan stjórnanda viðburðar sem fram fer á laugardag, 1. desember, í tilefni af hundrað ára afmæli fullveldisins. Viðburðurinn ber yfirskriftina Íslendingasögur en um er að ræða nýstárlega sýningu í tali og tónum sem byggð er á sögum Íslendinga fyrr og nú. Arngunnur segir nánar frá viðburðinum í Lestinni í dag. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um nýjustu kvikmynd leikstjórans Steve McQueen, Ekkjur, sem fjallar um eiginkonur glæpamanna sem láta lífið í misheppnuðu ráni og skilja eftir stóra skuld. Einnig tekur hún fyrir kvikmyndina Erfingjana sem gerist í Paragvæ og fjallar um líf yfirstéttarinnar þar í landi og roskið lesbíupar sem einnig þarf að horfast í augu við skuldir. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur pistil um að sjá það sem koma skal, eða lesa framtíðina úr fortíðinni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson