Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Badgad Brothers, Bríet Bjarnhéðinsdóttir & skór Jóns Sigurðssonar, Evi
    Í Lestinni í dag kíkjum við á nýja indí-poppsenu sem hefur verið að gerjast í reykvísku tónlistargrasrótinni undanfarna mánuði. Gunnar Theódór Eggertsson rýnir í nýja íslenska kvikmynd, Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson. Vorhefti Skírnis - tímarits Hins íslenka bókmenntafélags er komið út. Efni heftisins er fjölbreytt, meðal annars hugvekja Erlu Huldu Halldórsdóttur um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur og skó Jóns Sigurðssonar. Þar veltir hún fyrir sér hvort kona gæti, eða hefði getað, orðið þjóðhetja. Erla Hulda Halldórsdóttir verður gestur Lestarinnar í dag. Að vanda rýnir Áslaug Torfadóttir síðan í nýja sjónvarpsþætti í mánudagspistli sínum.
    57 min
  • GPS, A Gentle Creature, Singapore Sling, Annihilation
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að leiðsögutækjum, kvikmyndum og tónlist. GPS leiðsögutæki eru farin að spila stórt hlutverk í lífi okkar í dag, þau hjálpa okkur að þekkja staðsetningu okkar í heiminum, finna leiðir, rata aftur heim. Rannsóknir hafa sýnt að manneskjan þarf þá í minni mæli að nota meðfæddan leiðsögubúnað heilans. Getur verið að GPS tæknin muni hafa áhrif á heila mannsins í framtíðinni? Lestin rýnir í sögu þessa merkilega tæknifyrirbæris og ræðir við sérfræðinga um áhrif þess á heilann. Lestin rennir svo við hjá Halldóri Eldjárn, forritara og tónlistarmanni, sem leggur nú lokahönd á tónverkið GPS Reykjavík ásamt Úlfi Eldjárn. Verkið verður frumflutt á Listahátíð í Reykjavík í júní. En tónlistin í verkinu er tengd við ákveðin GPS-hnit í miðbænum og breytist eftir því hvar hlustendur eru staddir og hvert þeir rölta. Gunnar Theódór Eggertsson rýnir í kvikmyndirnar A Gentle Creature og Annihilation. Rokksveitin Singapore Sling hefur í hátt í tvo áratugi gefið frá sér tónlist sem gleypir ljós og fagnar úrkynjun, örvæntingu og dauða. Sveitin leikur á sínum fyrstu tónleikum í langan tíma á Húrra um helgina og Davíð Roach Gunnarsson rýnir í höfundarverk þeirra í vegferð dagsins.
    57 min
  • Pólsk grasrótarmenning, Kanarí, epli & Brooklyn 99
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að grasrótarmenningu, eplum, twitter fári og vinsælum ferðmannastöðum. „Ungt fólk í Póllandi er mjög meðvitað um rými listarinnar sem mikilvægan vettvang til að spyrna gegn ríkjandi viðhorfum, þau nota listina ekki síður en fjölmiðla eða hefðbundin stjórnmál.“ Þetta segir pólski listamaðurinn og listrýnirinn Hubert Gromny sem er búsettur hér á landi, og hélt í vikunni fyrirlestur um pólska grasrótarmenningu á Loft Hostel. Við ræðum við Hubert um pólska grasrót og list-aktívisma. Þær Magnea Björk Valdimarsdóttir og Marta Sigríður Pétursdóttir frumsýndu heimildarmynd sína Kanarí á Skjaldborg síðustu helgi. Í myndinni skoða þær íslenskt samfélag á spænsku eynni Kanarí og hvernig það hefur þróast á síðustu áratugum. Velt er upp spurningum eins og: Hvað þýðir það eiginlega að vera túristi? Við heyrum nánar um myndina hér á eftir. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um samband altaka, einstaka og tiltaka. Nýlega lauk fimmtu þáttaröð af gamanþáttunum Brooklyn 99 og allt leit út fyrir að hún yrði sú síðasta. En ótrúleg atburðarás varð til þess að þeim hefur verið bjargað, við mikinn fögnuð aðdáenda. Áslaug Torfadóttir skoðaði málið í þætti dagsins.
    57 min
  • Skjaldborg, Söngur Kanemu, Guernica
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að kvikmyndum og myndlist. Halldór Armand Ásgeirsson fjallar í pistli sínum um nýja bóka sem fjallar um Guernica eftir Picasso. Við förum síðan til Patreksfjarðar en um helgina fór þar fram Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildarmynda. Við fræðumst um Skjaldborgarbíó í þætti dagsins, og fræðumts nánar um myndina Söngur Kanemu eftir Önnu Þóru Sigþórsdóttur en hún vann bæði áhorfenda- og dómnefndarverðlaun Skjaldborgar í ár.
    57 min
  • Hraðlest & Ísrael - 12 stig
    Eiga Íslendingar að sniðganga Júróvisjón á næsta ári? Í pistli dagsins rýnir Atli Bollason í skilaboð ísraelsku söngkonunnar Nettu, sem fór með sigur af hólmi í Júróvisjón síðustu helgi, í ljósi ofbeldisins á Gaza undanfarnar vikur. Leiðarlýsing hraðlestarinar í dag hljóðar nokkurn veginn svona: Stjarnfræðilegur satanismi, Þögnin, nýblaðamennska og Tom Wolfe, Réttararkitektúr, vangaveltur um pítsur, utangarðslistakonan Maude Lewis, Þjóðlegur hryllingur, Gianni Versace, Vargur og Yanni eða Laurel.
    57 min
  • Tom Wolfe, Kaupa dót, Yanni eða Laurel, Chrome Sparks, Murder Mag
    Súrt íslenskt grín, nýblaðamennska, Yanni eða Laurel, morðtímarit og ný raftónlist - einhvern veginn svona hljóðar leiðarlýsing dagsins. „Besta vopn blaðamannsins er það sem ég kalla upplýsingaráráttu. Fólk vill nefnilega ólmt segja þér frá einhverju sem þú veist ekki - Þannig öðlast það eins konar yfirburðarstöðu“. Þetta sagði bandaríski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Tom Wolfe, en upplýsingarárátta er meðal fjölda hugtaka sem hann fann upp á á ferlinum. Hann er einn þeirra sem tilheyrðu og skrifuðu undir merkjum nýblaðamennsku eða New Journalist. Wolfe, lést fyrr í vikunni, 88 ára að aldri - við minnumst hans hér í Lestinni í dag. Heimildamaður okkar verður Jóhannes Ólafsson, dagskrárgerðarmaður á RÚV. Kaupa dót eru stuttir grínþættir sem eru aðgengilegir á Facebook. Þetta er að öllum líkindum súrasta íslenska grínið á internetinu í dag. Maðurinn á bak við þættina, Tumi Björnsson, fær far með Lestinni í dag. Annað tölublað morðtímaritsins, eða Murder Magazine, kom út á dögunum. Þemað að þessu sinni er: Erótík og kerfi. Við fræðumst nánar um blaðið hér á eftir. Annar listrænna stjórnenda þess, Bergrún Anna Hallsteinsdóttir, segir frá. Í vikunni hafa netverjar deilt um hvort nafnið, Yanni eða Laurel, heyrist í stuttri hljóðklippu sem farið hefur manna á milli á samfélagsmiðlum. Í þætti dagsins veltum við fyrir okkur hvað deilan segir okkur um stöðu mannsins í alheiminum, og allt það sem liggur mögulega utan skynsviðs okkar. Á dögunum kom út fyrsta LP-plata Brooklyn-búans Jeremy Malvin sem framleiðir raftónlist undir listamannsnafninu Chrome Sparks. Á skífunni sem er samnefnd verkefninu, er að finna ofgnótt hugmynda og einstakan bræðing hins lífræna, stafræna og hliðræna.
    57 min
  • Þögn, Maud Lewis, Gianni Versace, pítsur
    Nútímamaðurinn býr við meira áreiti en nokkur skepna í jarðsögunni og upplifir æ sjaldnar algjöra þögn. Þróunarlíffræðingar hafa bent á að heili mannskepnunnar sé hreinlega ekki fær um að takast á við slíkt yfirflæði upplýsinga. Þagnarathvörf og kyrrðarvökur, þar sem fólk kemur saman og þegir, njóta því sífellt meiri vinsælda í dag. Rætt verður við Ástu Arnadóttur, jógakennara, sem hefur stundað og staðið fyrir kyrrðarvökum í tvo áratugi. Og við rýnum í naíf, tvívíð málverk kanadísku utangarðslistakonunnar Maud Lewis í þætti dagsins, en vinsældir hennar náðu nýjum hæðum þegar út kom ævisöguleg kvikmynd um listakonuna á síðasta ári. Morðið á ítalska fatahönnuðinum Gianni Versace vakti heimsathygli árið 1997 en hann var myrtur fyrir utan heimili sitt í Miami af ókunnugum manni. Nú hefur ofurframleiðandinn Ryan Murphy gert leikna þáttaröð um atburðina sem leiddu að morðinu. Áslaug Torfadóttir skoðar málið í þætti dagsins. „Fyrir mörgum er pítsan sérstakt hugðarefni og jafnvel nokkurs konar þráhyggja. Í dag er ekki óalgengt að fjárfesta í pítsustein eða stáli eða rækta súrdeigsmóður sérstaklega fyrir pítsudeigið eða að panta sérstaka tómata beint frá Ítalíu og up að dyrum o.s.frv“ Tómas Ævar Ólafsson veltir fyrir sér hvað góð pítsla þarf að uppfylla? Hann spyr: Hver er munurinn á venjulegri pítsu og ekta pítsu? Hann hringir til Ítalíu og ræðir við mann sem þekkir góðar pítsur.
    57 min
  • Þjóðlegur hryllingur, arkitektúr, Isle of Games, Ikea
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að hugtakinu ,,folk horror'', samsuðu tölvuleikja og lista, arkitektúr sem meðal annars varpar ljósi á óleysta glæpi. Notkun á hugtakinu “folk horror“ hefur færst í aukana í heimi hryllingsmyndanna á seinustu árum en það mætti útleggjast sem þjóðlegur hryllingur. Um er að ræða myndir sem sækja innblástur í heiðin sagnamynni Evrópu og galdrafár miðalda. Í dag skoðum við nokkrar helstu myndir stefnunnar og ræðum stuttlega við leikstjórann Hrafn Gunnlaugsson en kvikmynd hans Myrkrahöfðinginn gæti fallið undir þessa stefnu. Isle of Games er leikjahátíð sem beinir sjónum sínum að sambandi leikja og lista í samtímanum. Hátíðin verður haldin í Iðnó næstkomandi föstudag, þar mun gestum gefast tækifæri á að upplifa nýja hlið á tölvuleikjum sem ekki hafa áður verið til sýnis á Íslandi. Á bak við hátíðina stendur fjölbreyttur hópur af bæði fag- og áhugafólki um listir, tölvuleiki og menningarlegt gildi þeirra. Einn þeirra, Sigursteinn Jóhannes Gunnarsson, verður gestur okkar í þætti dagsins. Getur arkitektúr gagnast við að varpa ljósi á óleysta glæpi og mannréttindabrot? Það er sannfæring bresku rannsóknarstofnunarinnar Forensic Architecture, en þar koma saman arkitektar, fræðimenn og rannsóknarblaðamenn og beita hinum ýmsu verkfærum byggingarlistarinnar til að rannsaka möguleg mannréttindabrot stjórnvalda, vopnuð átök og umhverfisglæpi. Stofnunin var nýlega tilnefnd til hinna bresku Turner-myndlistarverðlauna, og að því tilefni verður rætt við einn meðlim stofnunarinnar, arkitektinn Stefán Laxness. Og Halldór Armand Ásgeirsson flytur að vanda pistil hjá okkur á þriðjudegi.
    57 min
  • Eurovision & stjórnmál, Vargur, svartmálmur
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að nýrri íslenskri kvikmynd, Eurovision og svartmálmi. Framlag Ísraels vann Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár. Í kjölfar hefur sprottið upp umræða um pólitísk áhrif keppninnar og spyrjum við því í þætti dagsins:,,Er hægt að aðskilja skemmtanagildi keppninnar og pólitík?''. Heimildamenn okkar verða Vera Illugadóttir, dagskrárgerðakona á Rás 1, og Laufey Helga Guðmundsdóttir, ritari Félags Áhugamanna um Söngvakeppi Tónlistarmenn tengdir íslensku svartmálmsútgáfunni Vánagandr voru nýlega beðnir um að semja og flytja nýtt tónverk á hinni virtu öfgarokkhátíð Roadburn Festival í Hollandi. Í Lestinni verður rætt við forsprakka hópsins um Sól án varma, sjötíu mínútna myrkraverk þar sem tekist er á við klassísk svartmálmsþemu, hið illa og djöfullega, en á stjarnfræðilegum skala. Og Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um tvær nýjar myndir, You were never really here, og íslensku spennumyndina Vargur eftir Börk Sigþórsson.
    57 min