Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Pólitískur margbreytileiki, kjólar, Arrested Development
    Í lestinni í dag verður meðal annars hugað að kjólum, nýjum en þó gömlum sjónvarpsþáttum og fjölmenningarlegum marbreytileika.
    Gamanþættirnir Arrested Development voru fyrst sýndir árið 2003 og gengu á sjónvarpsstöðinni Fox í þrjár þáttaraðir. Þrátt fyrir að vera vinsælir meðal gangrýnenda var áhorf á þá lítið og því ákvað Fox að taka þá af dagskrá. Þættirnir áttu sér þó alltaf gallharða aðdáendur og sífelt fjölgaði í þeim hópi eftir því sem fleiri uppgötvuðu þá og öðluðust þeir fljótt költ-status sem einhverjir bestu gamanþættir sögunnar. Netflix gerði samning um framleiðslu á þáttunum árið 2013 og hefur streymisveitan nú gefið út tvær þáttarraðir. Áslaug Torfadóttir, sjónvarpsrýnir Lestarinnar, rýnir í nýjustu þáttaröðina, þá fimmtu, sem frumsýnd var á dögunum.
    Einn af af hverjum tíu íbúum Íslands í dag er innflytjandi, aðfluttur Íslendingur. Íslensk stjórnmál og valdastofnanir landsins eru þó ekki enn farnar að sýna slíkan fjölmenningarlegan margbreytileika. Við ræðum við Guðrúnu Lindu Rafnsdóttur, sem hefur rannsakað upplifun innflytjenda af aðgengi sínu og áhrifum á íslenskt samfélag. En niðurstöður rannsókna hennar geta kannski vísað okkur veginn í því hvernig við tryggjum sem flestum íbúum landsins aðgengi að valdinu. Og við heimsækjum einnig Ernu Hlöðversdóttur, sem opnaði um helgina sína fyrstu einkasýningu í Kirsuberjatrénu. Á sýningunni má sjá skúlptúra af kjólum í hinum ýmsu stærðum og gerðum. Erna segir okkur frá blæti sínu fyrir kjólum, ástríðu á pappamassa og tengslum milli hjúkrunarfræði og listar, en hún hefur nýverið lokið störfum sem hjúkrunarfræðingur.
    57 min
  • Hraðlest:
    Við sögu í Hraðlest í dag kemur meðal annars frímerkjasöfnun, sjónvarpsþátturinn Killing Eve, umdeild auglýsingamynd, náttúruást, bullstörf, vinsælasti tölvuleikur heims, minningar úr síðari heimsstyrjöldinni og pólitískur djass
    57 min
  • Jordan Peterson, safnarasýng, Pusha T og Kanye West
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að nýrri tónlist, frímerkjum og umdeildum kenningum Jordans Peterson. Við kíkjum á verðmæt frímerki og ýmiskonar söfn í þætti dagsins. Norræna safnarasýningin Nordia 2018 fer fram í TM-höllinni í Garðabæ um helgina, en sýningin er stærsti viðburður norrænna frímerkjasafnara á árinu. Við röltum um sýninguna með Sigurði R. Péturssyni, safnara og formann sýningarnefndar. Karl Ólafur Hallbjörnsson fór á fyrirlestur kanadíska sálfræðingsins Jordan Peterson í vikunni og í pistli dagsins veltir hann fyrir sér kenningum og vinsældum þessa gríðarlega umdeilda höfundar. Davíð Roach Gunnarsson rýnir síðan í nýjustu plötu Pusha T.
    57 min
  • Stríðsminningar, kaldhæðni og vinsælasti tölvuleikur heims
    Stríðsminningar, vinsælasti tölvuleikur heims og kaldhæðni sem lífstíll. Þannig hljómar leiðarlýsing lestarinnar í dag. Hinn litríki og líflegi fjölspilunar-skotleikur Fortnite: Battle Royal er einn allra vinsælasti tölvuleikur heims um þessar mundir. Hann virðist höfða sérstaklega til barna og ungmenna, og ólíkt flestum slíkum leikjum er hann ekki síður vinsæll hjá stelpum en strákum. Við ræðum við Bjarka Þór Jónsson, ritstjóra tölvuleikjavefsins Nörd norðursins, um gríðarlegar vinsældir Fortnite. Katrín Ólafsdóttir Mixa bjó í Austrurríki á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Árið 1947 gaf hún út endurminningar sínar í bók sem nefnist Liðnir dagar. Bókin er eins konar dagbók sem Katrín hélt úti á meðan stríðinu stóð. Þar lýsir hún hversdagslegu lífi á tímum síendurtekinna loftárása, óvissu og óöryggis, glundroða, flótta og tvístrunar fjölskyldu og vina. Sonur hennar, Ólafur Mixa, gegnir veigamiklu hlutverki í bókinni. Við heimsækjum Ólaf í þætti dagsins og fræðumst nánar um Liðna daga. Og við rifjum upp pistil Karls Ólafs Hallbjörnssonar, þar sem hann velti fyrir sér kaldhæðni, hreinskilni og fjarlægð.
    57 min
  • Killing Eve, láglaunastörf, auglýsingamynd KSÍ
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að nýju sjónvarpsefni, láglaunastörfum og umdeildri auglýsingamynd.
    BBC America hefur staðið sig vel í framleiðslu á efni þar sem konur eru fremstar í flokki bæði fyrir framan og aftan myndavélina. Nýjasta afurð þeirra Killing Eve er engin undantekning. Áslaug Torfadóttir skellir sér í njósnagírinn og fjallar um Killing Eve í þætti dagsins. Við tökum umfjöllun hennar síðan aðeins lengra að þessu sinni og rýnum nánar í þættina með Árna Sigurðssyni, sérlegum aðdáanda. Í pistli dagsins fjallar Halldór Armand Ásgeirsson um bullstörf og af hverju verðmætustu störfin eru verst borguð. "Við erum tilbúnir fyrir Rússland," lýsti Knattspyrnasamband Íslands yfir á Facebook um helgina. Færslunni fylgir litrík mynd í anda teiknimyndasagna. Moskva brennur í bakgrunni og fyrir framan eru ellefu vöðvastæltir og ofurmannlegir líkamar íslenska karlalandsliðsins tilbúnir til árásar, með skildi og spennta vöðva. Í Lestinni í dag rýnum við í umdeilda auglýsingamynd KSÍ fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi sem hefst í næstu viku.
    57 min
  • Náttúruást, eðludrottning og afrískur hversdagsleiki
    „Mennirnir elskuðu náttúruna svo mikið að þeir gleyptu hana í sig, eyddu henni algjörlega.“ Það er þessi ást, þessi tengsl manns og náttúru, sem er meginumfjöllunarefni dansverksins The Lover eftir Báru Sigfúsdóttur sem verður sýnt á Íslandi á Listahátíð í Reykjavík í vikunni. Bára er búsett og starfar í danshöfuðborg Evrópu, Brussel í Belgíu. Þar var The Lover frumsýnt árið 2015, síðan þá hefur það ferðast víðsvegar um Evrópu og er nú loksins sýnt á Íslandi. Bára tekur sér far með Lestinni í dag.
    Breska djasshljómsveitin Sons of Kemet gaf á dögunum út plötuna Your Queen is a Reptile eða Drottning yðar er skriðdýr. Platan kemur ekki út í tilefni að konunglegu brúðkaupi Harry og Meghan heldur er það hárbeitt ádeila gegn bresku konungsstjórninni. Tómas Ævar Ólafsson veltir fyrir sér drottningum og skriðdýrum í þætti dags
    Everyday Africa er Instagram síða sem virðist vera hafa umbyltandi áhrif á ímynd Vestur-landabúa á Afríku. Everyday Africa samanstendur af ljósmyndurum sem koma víðs vegar að í álfunni og taka myndir af hversdagslífi í ríkjum álfunnar. Stofnendur síðunnar, ljósmyndarinn Peter DiCampo, og blaðamaðurinn Austin Merrill, hyggjast sýna Afríku í nýju ljósi, sýna Afríku í því ljósi sem fréttamiðlar gera ekki, og geta ekki. Á Instagram síðunni, sem þrjúhundruð fjörtíu og fimm þúsund fylgjendur skoða, eru nú að finna hátt í fjögur þúsund myndir.
    57 min
  • Listahátíð í Reykjavík
    Lestin verður með óhefðbundnu sniði í dag í tilefni að Listahátíð Reykjavíkur sem hefst í dag. Þátturinn verður sendur út frá Klúbbi Listahátíðar sem staðsettur er í Hafnarhúsinu og þangað koma góðir gestir og ræða saman um og út frá þema hátíðarinnar, en í ár er þemað “heima.“
    Hvenær erum við heima og hvað þýðir það að eiga heimili? Hvar á listin heima, og hvað gerist þegar hún færir sig út fyrir hið hefðbundna rými sitt?
    Gestir þáttarins verða Terry Gunnell, Ásrún Magnúsdóttir, Garðar Eyjólfsson, Guja Dögg Hauksdóttir, Valgeir Sigurðsson, Steinunn Knútsdóttir, Heiðar Kári Rannversson og Markús Þór Andrésson.
    57 min
  • Húðflúr, svikahrappar, myndlist og rapp
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að húðflúrum, rappi, svikahröppum og myndlist. The Icelandic Tattoo Convention - árlega húðflúrshátíðin verður haldin 13 árið í röð núna um helgina í Gamla Bíói. Skipuleggjendur hátíðarinnar eru jafnframt eigendur húðflúrstofunnar Reykjavík Ink við Frakkarstíg. Við heimsækjum stofuna og ræðum við Lindu Mjöll Hafþórsdóttur og Össur Hafþórsson. Við rifjum upp plötu, sem er oft sögð besta plata rappsögunnar. Þetta er Reachin' (A New Refutation of Time and Space) með djassrappsveitinni Digable Planets. Davíð Roach Gunnarsson segir frá. Anna Delvey er einskonar Frank Abagnale sinnar kynslóðar, en hún smyglaði sér í innstu raðir ríka og fræga fólksins í New York og náði hátt í 60 milljónum dala út úr bönkunum á fölskum forsendum. Hún situr nú í gæsluvarðhaldi í Rikers fangelsinu og bíður dóms. Nina Richter fjallar um málið í þætti dagsins. Skil og endurvarp nefnist einkasýning þýska myndlistarmannsins Ignacio Uriarte sem opnar í i8 í dag. Ignacio byrjaði að pára á pappírsarkir þegar hann vann í hefðbundinni skrifstofuvinnu, og verkin á sýningunni eru framhald af þessu dútli. Lestin heimsækir gallerí i8 og ræðir við Þorlák Einarsson um sýninguna.
    57 min
  • Myndlistarsýning Google, Coucou Chloé, pólitísk sannfæring, Svartmálmu
    Svartmálmur er ný ljósmyndabók eftir Hafstein Viðar Ársælsson, en þar skrásetur hann hina öflugu íslensku svartmálmssenu með öllum sínum drunga og djöfulgangi. Sýning með myndum úr bókinni opnar á morgun í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Lestin renndi við á safninu og ræddi við Hafstein. Karl Ólafur Hallbjörnsson veltir fyrir sér pólitískri sannfæringu rökræðulýðræði í pistli sínum í dag. Tónlistarkonan og plötusnúðurinn Coucou Chloé hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir sína tilraunakenndu klúbbatónlist en meðal aðdáenda eru Rihanna og Björk Guðmundsdóttir. Við náðum tali af Chloé í Lundúnum en hún er nýkominn úr tónleikaferðalagi um Asíu. Í síðustu viku opnaði Google Arts and Culture, rafrænt listasafn tæknirisans, sína stærstu vefsýningu til þessa. Tæknirisinn Google opnaði í síðustu viku stafræna yfirlitssýningu á lífi og verkum mexíkósku listakonunnar Fridu Kahlo. Þar geta vefgestir skyggnst inn í heimili listakonunnar og virt fyrir sér verk hennar í návígi. Við skoðum sýninguna, og Khalo, nánar í þætti dagsins. Rifjum einnig upp brot úr viðtali við listakonuna Jóní Jónsdóttur.
    57 min
  • Listaverkauppboð í Gallerí Fold, James Blake & tilfinningatjáning karl
    Lestin kíkir við á síðasta listaverkauppboði vetrarins í Gallerí Fold. Þar eru meðal annars boðin upp verk eftir Jóhannes Kjarval, Svavar Guðnason og Börböru Árnason en auk þess eru uppstoppuð Snæugla, Bjarnarhaus og fleiri sérstakir munir slegnir hæstbjóðanda. Rætt verður við uppboðshaldara, starfsfólk og gesti uppboðsins. Tómas Ævar Ólafssson kíkti á Kjarvalsstaði og skoðaði útskriftarsýningu bakkalárnema í arkitektúr, hönnun og myndlist. Í horni safnsins á bak við rauð gluggatjöld má þar sjá sjónræna plötnu I Thought I'd Be More Famous By Now, eða Það stóð til að vera orðin frægari núna, eftir listamanninn Katrínu Helgu Andrésdóttur sem gengur undir listamannanafninu Special K. Tómas ræðir við listakonuna í þætti dagsins. Halldór Armand Ásgeirsson fjallar um hættulega drauma og úrslitaleikinn í meistaradeild Evrópu í þriðjudagspistli sínum.
    57 min