Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • GDRN, Húsfreyjur, Youssoue N'Dour og bakaralistin
    Í Lestinni í dag er tónlist fyrirferðarmikil, bæði frá Íslandi og Senegal. Þá koma húsfreyjur og bakaralistin við sögu - þó í sitt hvoru lagi.
    Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, sem kallar sig GDRN, hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarna mánuði með trega- og sálarfullri R'n'B tónlist sinni. Nú er komin út 11 laga plata, fyrsta breiðskífan, Hvað ef? Í Lestinni í dag verður rætt við GDRN um tónlistina, tregann og allt það sem gæti hafa orðið.
    Senegalski tónlistarmaðurinn Youssou N'Dour, heldur tónleika ásamt fríðu föruneyti í Eldborgarsal Hörpu annað kvöld. N'Dour er einn þekktasta tónlistarmaður Afríku, og á að baki langan og glæsilegan feril. Við ætlum að fjalla um Youssoue N'Dour í Lestinni í dag, gestir á fyrsta farrými verða tónlistarmennirnir Jakob Frímann Magnússon, Samúel Jón Samúelsson, og tónleikahaldarinn Þorsteinn Stephensen, sem stendur í ströngu þessa dagana, í síðustu viku stóð hann fyrir tónleikum kanadísku hljómsveitarinnar Arcade Fire .
    Raunveruleikaþættir sem miða að því að láta bæði þátttakendum og áhorfendum líða vel verða sífellt meira áberandi. Forsprakki þessarar stefnu eru án efa bresku bökunarþættirnir The Great British Bake Off sem snúa aftur á skjáinn í vikunni. Áslaug Torfadóttir fjallar um þá í þættinum í dag.
    Og Lestin heldur áfram að taka þátt í fullveldismaraþoni Reykjavíkurakademíunnar, sem fram fór á dögunum, þar var fjallað um fullveldið, sögu Íslands og samfélag í fortíð og nútíð. Mjög fjölbreytt dagskrá þar á ferð. Og í dag heyrum við í Lönu Kolbrúnu Eddudóttur, sagnfræðinema og dagskrárgerðarmanni, þema hennar: Kvennasaga í húsfreyjunni.
    57 min
  • Djass, jaðarsetning, David Crosby og draugalegir samfélagsmiðlar
    Í Lestinni í dag, 23. ágúst, verður meðal annars fjallað um djöfullegan djass, jaðarsetningu, David Crosby og draugakennda nærveru samfélagsmiðla
    Í stjórnmálum í dag er sífellt meira rætt um jaðarsetta hópa og hvernig megi gefa þeim pláss og gera kleift að verða hluti af meginstraumnum. Í Lestinni í dag verður fjallað um jaðarsetningu í hinum hnattræna listheimi. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, nemi í listfræði, ræðir um jaðarsetningu, aðgengi og afstöðu til listamanna sem tilheyra ekki norminu.
    Gamall maður stígur á stokk í Háskólabíói í kvöld. Hann er 77 ára gamall, og eiginlega fyrir löngu orðinn að einskonar goðsögn. Feril hann spannar um það svo sem eins og 60 ár, og hann hefur haft mikil áhrif með tónlist sinni. Hann heitir David Crosby, og stofnaði vinsælar hljómsveitir á borð við The Byrds og Crosby, Stills, Nash og Young, en sú síðarnefnda var einhver sú vinsælasta í öllum heiminum uppúr árinu 1970. Og nú segja menn að Crosby hafi gengið í endurnýjun lífdaga, með þremur plötum sem komið hafa út á síðustu árum og hlotið góða dóma. Já, David Crosby í Háskólabíói í kvöld, við ætlum að fræðast um hann í Lestinni í dag. Gestur okkar verður Árni Matthíasson.
    Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur pistil í Lestinni í dag og fjallar um draugakennda nærveru samfélagsmiðlanna.
    Dr. Ólafur Rastrick dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands fjallar um djass og menningarangist, en hann flutti erindi um þetta efni í fullveldismaraþoni Reykjavíkurakademíunnar sem fram fór um helgina. En þar fjallaði Ólafur meðal annars um það hvernig menn skrifuðu um djassinn fyrir hundrað árum, og það var ekki allt fallegt, öðru nær, meira um það í Lestinni í dag.
    57 min
  • Fómó, Bónusferðin, þjóðernisvitund og tónleikarýni
    Í sítengdum snjallsíma- og samfélagsmiðlavæddum samtíma getum við stöðugt fylgst með vinum okkar og kunningjum, hvað þeir eru að gera og hvað er að gerast á þessu tiltekna augnabliki. Það er augljóst að við erum stöðugt að missa af einhverju stórmerkilegu sem er að eiga sér stað, einhvers staðar annars staðar - þar sem við erum ekki. Meðal ungs fólks hefur hugtakið ,,fómó" fest sig í sessi og táknar kvíðann sem þetta veldur, óttann við að missa af. Í Lestinni í dag verður fjallað um fyrirbærið ,,fómó".
    Fullveldismaraþon Reykjavíkurakademíunnar kemur við sögu, en það fór fram um síðustu helgi, þar var fjallað í fjömörgum örfyrirlesturum um fullveldið, sögu Íslands og samfélag í fortíð og nútíð. Við ætlum að grípa niður í erindi sem Kolbeinn Óttarsson Proppé sagnfræðingur og alþingismaður flutti, en hann spurði Sleit þjóðernisvitundin barnsskónum? Og hann staldraði þar við umdeildan fund Alþingis sem fram fór á Þingvöllum fyrir mánuði.
    Kanadíska hljómsveitin Arcade fire spilaði í Laugardalshöll í gær, Lestin var auðvitað á staðnum, og við heyrum viðbragð Davíðs Roach Gunnarssonar.
    Við lítum einnig við í útvarpsleikhúsinu, og ræðum við Ragnar Ísleif Bragason og Friðgeir Einarsson, úr leikhópnum Kriðpleir, en þeir vinna að nýju útvarpsleikriti sem frumflutt verður hér á Rás 1 í september og ber vinnuheitið Bónusverðin.
    Við fáum í heimsókn tvo meðlimi hljómsveitarinnar Grúska babúska, sem spilar draumkennda og gáskafulla tónlist, og heldur tónleika í Hannesarholti á morgun. Gestir okkar verða þær Harpa Fönn Sigurjónsdóttir og Erla Stefánsdóttir.
    57 min
  • Kristur, Arcade Fire, fótboltadómari og Evripídes
    Jesús Kristur, Arcade Fire, fótboltadómari og Evripídes. Þannig hljómar leiðarlýsing Lestarinnar í dag, 21. ágúst.
    Jesús Kristur er vafalaust einn allra áhrifamesti einstaklingur í sögu mannkyns, en alveg frá upphafi hefur átt sér stað hörð barátta um arfleifð hans. Hugmyndir fólks um það hver Jesú var hafa tekið stöðugum breytingum í tímans rás, eðli hans og gjörðir túlkaðar og endurtúlkaðar. Í Lestinni í dag verður rætt við Sverri Jakobsson, sagnfræðing, um sögu Kristshugmyndarinnar.
    Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur tekur til máls í Lestinni í dag, á nýjan leik, og fjallar um enskan fótboltadómara og óréttlætið sem hann varð fyrir um helgina.
    Í kvöld heldur kanadíska hljómsveitin Arcade Fire tónleika í Laugardalshöll. Margir hafa beðið eftir þessum tónleikum, enda þykir hljómsveitin einstaklega gott tónleikaband. Við hitum upp fyrir kvöldið í Lestinni í dag, og rifjum upp feril Arcade Fire.
    ,,Tíminn mun milda harm þinn. Hinn látni er horfinn og að engu orðinn." ,,Set sorg þinni takmörk." ,,Gerir þú þér grein fyrir hlutskipti dauðlegra manna, hvernig því er háttað?" ,,Ein ævi er oss gefin, ekki tvær" (117) ,,Dauðlegir menn verða að ala hugsanir í brjósti í samræmi við sitt dauðlega eðli. Forn-gríska harmleikjaskáldið Evripídes kemur við sögu í Lestinni í dag.
    55 min
  • Deilihagkerfið, Aretha Franklin og upphaf rappsins.
    Tónli, sálartónlist, rapptónlist og deilihagkerfið er á dagskrá Lestarinnar í dag.
    Deilihagkerfið teygir anga sína æ víðar þessa dagana. Nú hefur hópur fólks tekið sig saman og stofnað Tólatek Reykjavíkur, Reykjavík Tool Library, félagsskapur sem safnar og lánar út ýmis konar smíða- og handverkfæri. Við kíkjum við á opnun Reykjavík Tool Library úti á Granda og ræðum við stofnendurna um deilihagkerfið, sameignarfyrirkomulag og viðgerðakaffi.
    Lestin minnist einnig bandarísku söngkonunnar Arethu Franklin sem andaðist á fimmtudag, 76 ára gömul, en Franklin var einhver vinsælasta söngkona í heimi. Hún byrjaði kornung að syngja gospeltónlist, fyrir guð og fleiri. Ferill hennar spannaði ríflega 60 ár, og hún seldi ógrynni platna. Aretha Franklin var gjarnan kölluð drottning sálartónlistarinnar. Gestur þáttarins í dag verður Sigríður Thorlacius, söngkona, en hún útskýrir fyrir okkur hvað gerði Arethu Franklin svo stóra sem raun ber vitni.
    Og þann 11. ágúst síðastliðinn fögnuðu menn stórafmæli rappsins víða um heim en þá voru 45 ár liðin frá fyrsta rappteitinu, sem haldið var af plötusnúðinum Kool Herc. Þórður Ingi Jónsson fjallar í þættinum í dag um upphaf rappsins, sem er nú vinsælasta tónlistarstefna heimsins
    57 min
  • Leikaraskapur og hraðlest
    Stærsti íþróttaviðburður ársins fer nú um þessar mundir fram í Rússland, heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur er í byrjunarliði Lestarinnar í dag og færir okkur sinn vikulega fótboltapistil, en í dag flytur hann okkur málsvörn fyrir leikaraskap.
    En það er hraðlest í dag og venju samkvæmt verður farið um víðan völl: róttæk heimspeki, tónlistarkonan Eartheater, saga klifuríþróttarinnar, My friend Dahmer, tónlistartækni, heimildaljósmyndun, borgaralaun og næst vinsælasta stúlknasveit allra tíma.
    Föstudagslag Lestarinnar var Sphynx með frönsku hljómsveitinni La Femme
    57 min
  • Secret Solstice, Hereditary og Simone Weil
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að tónlistarhátíð, einni bestu hrollvekju ársins og róttækri heimspeki.
    Fjórir heilir dagar af rokki, labbi, rappi, dansi, raftónlist, hoppi, klappi og á köflum volki í misblíðu veðri. Secret Solstice hátíðin fór fram í laugardanum um liðna helgi. Davíð Roach Gunnarsson, útsendari Lestarinnar var á svæðinu. Hann segir frá hátíðinni í þætti dagsins
    Simone Weil var róttækur heimspekingur, dulspekingur, aðgerðarsinni og raunar ýmislegt fleira. Við skoðum líf hennar og skrif nánar í þætti dagsins. Erla Karlsdóttir, heimspekingur, guðfræðingur og kennari, er gestur okkar í þætti dagsins en hún þekkir vel til verka Weil.
    Bandaríska hryllingsdramað Hereditary fer nú sigurför um heiminn og segja margir gagnrýnendur hana vera bestu hrollvekju ársins. Þórður Ingi Jónsson veltir fyrir sér vinsældum myndarinnar og spjallar meðal annars við myndlistarmanninn og kvikmyndaáhugamanninn Valdemar Garðar Guðmundsson um Hereditary.
    57 min
  • Eartheater, klifuríþróttir og gagnrýnin hugsun
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að gagnrýnni hugsun, klifri og nýrri tónlist. Alexandra Drewchin, sem kallar sig Eartheater, er afar sérkennileg og sérstæð tónlistarkona frá New York sem gaf nýlega út sína þriðju plötu, Irisiri.
    Í Lestinni í dag ræðir Þórður Ingi Jónsson við Alexöndru um líf hennar og list, flóttahyggju, rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og ýmislegt fleira.
    Saga klifuríþróttarinnar er villt og óhefðbundin. Frumkvöðlar hennar hafa verið bláfátækir flækingar og fyllibyttur, hippar og ofurhugar, sem hafa lifað fyrir það eitt að klífa þverhnípta fjallaveggi. Saga klifuríþróttarinnar hefur að stórum hluta átt sér stað í hinum mikilfenglega Yosemite-dal í Kaliforníu og er sú saga rakin í heimildamyndinni Valley Uprising sem er aðgengileg á Netflix. Við rýnum í myndina og ræðum við Rafn Emilsson, gítarkennara, sem fór og klifraði þekktasta klettavegginn í Yosemite-dalnum í fyrra.
    Í pistli sínum í dag veltir Karl Ólafur Hallbjörnsson fyrir sér gagnrýnni hugsun gagnvart hinu líkamlega.
    57 min
  • Ljósmyndun, garðhúsgögn og borgaralaun
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að ljósmyndun, garðhúsgögnum og borgaralaunum.
    Nú á dögunum var formlega stofnað Félag borgara, eða Fellowship of citizen, hagsmunasamtök sem er ætlað að sýna fram á fýsileika borgaralauna og þrýsta á að þau verði tekin upp á Íslandi. Félagsskapurinn var kynntur á myndlistarsýningu Sæmundar Þórs Helgasonar í Arebyte galleríinu í London. Sæmundur Þór tekur sér far með Lestinni í dag.
    Ljósmyndir Þórsteins Sigurðssonar hafa vakið talsverða athygli á síðustu árum. Hann er þekktur fyrir að fanga íslenska jaðarmenningu sem annars ber lítið á. Undanfarin ár hefur hann unnið að verkefninu Container Society þar sem hann skyggnist inn í líf tveggja manna sem búa í gámum á Grandanum í Reykjavík. Við fræðumst nánar um verkefnið í þætti dagsins.
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur að venju pistil á þriðjudegi, og í dag veltir hann fyrir sér sálfræðilegu mikilvægi garðhúsgagna.
    57 min