Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Lof mér að falla, vísindaskáldskapur, Paul og yfirstéttasjónvarp
    Lestin svífur út fyrir gufuhvolfið í dag, og alla leið til tunglsins. Þar verður á vegi hennar myndlistarkonan Theresa Himmer sem segir frá forvitinilegri bók sem nefnist Somninum og er eftir þýska stjörnufræðinginn Johannes Kepler. Sagan, sem nefnist Draumurinn á íslensku, er mögulega ein fyrsta hreinræktaða vísindaskáldsagan en var skrifuð árið 1608. Sagan gerist á Íslandi, í Danmörku og á tunglinu og hefur Theresa notað hana sem innblástur fyrir ný ljósmynda- og myndlistarverk sem hún sýnir um þessar mundir í Hverfisgallerí.
    Marta Sigríður Pétursdóttir, kvikmyndagagnrýnandi, rýnir síðan í nýja íslenska mynd, Lof mér að falla, eftir Baldvin Z, sem var frumsýnd um helgina.
    Ævintýri bresku yfirstéttarinnar hafa sjaldan verið vinsælla sjónvarpsefni en síðustu ár, með þáttum eins og Downton Abbey og The Crown. Nýjasta innleggið er míní-serían Patrick Melrose. Áslaug Torfadóttir kynnti sér málið og segir frá í þættinum í dag.
    Og fjallað verður í Lestinni í dag um hljómplötuna Egypt Station með Paul McCartney sem kom út á föstudag og hefur nú þegar hlotið frábæra dóma.
    55 min
  • Kvikmyndir um Útey, JFDR, loftslagsganga, Guðmundar- og Geirfinnsmálið
    Á morgun verður frumsýnd í Bíó Paradís norsk kvikmynd byggð á fjöldamorðunum í Útey þann 22. júlí 2011. Þetta er þó ekki eina leikna kvikmyndin um atburðina sem kemur út um þessar mundir, því breski leikstjórinn Paul Greengrass, frumsýnir mynd um fjöldamorðin á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum sem stendur nú yfir. Þóra Tómasdóttir, blaðamaður, tekur sér far með Lestinni í dag og ræðir um viðbrögð við þessum eldfimu kvikmyndum í norsku samfélagi.
    End­urupp­taka í Guðmund­ar- og Geirfinns­málinu verður tek­in fyr­ir í Hæsta­rétti í næstu viku. Málin heltóku íslenskt samfélag á áttunda áratugnum og hafa áhrif þess verið mikil og birtingarmyndur verið mýmargar í íslenskri menningu. Í fjórum pistlum í septembermánuði fjallar Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson um þetta alræmdasta sakamál Íslandssögunnar í skáldskap, og sem skáldskap.
    Rætt verður við tónlistarkonuna Jófríði Ákadóttur en hún kemur fram ásamt strengjasveit í Iðnó í kvöld í tilefni af útkomu EP-plötunnar, White Sun Live, Part I: Strings. Og
    Magnús Örn Sigurðsson flytur pistil í Lestinni í dag í tilefni af Loftslagsgöngunni sem fram fer í Reykjavík á laugardag.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Plötuumslög, Castle Rock, göngugötur og vofa dauðans í daglegu lífi
    Á undanförnum árum hefur Ragnar Fjalar Lárusson vakið athygli fyrir líflega, litríka og listilega hönnun sína á plötuumslögum. Plötuumslög sem hann gerði fyrir Ojba Rasta vöktu mikla lukku og nú er það hönnun sem hann vann fyrir nýja plötu Teits Magnússonar, Orna, sem gleður auga tónlistarunnenda. Í þættinum í dag verður rætt við Ragnar Fjalar um hvað það er sem einkennir gott plötuumslag.
    Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í gær að fela umhverfis- og skipulagssviði að útfæra Laugaveg og Bankastræti sem göngugötur allt árið, ásamt götum í Kvosinni sem koma til greina sem göngugötur.
    Í Lestinni í dag verður af þessu tilefni fjallað um götur og almenningsrými, og rætt við Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um vofu dauðans í hinu daglega lífi í ljósi rannsókna félagssálfræðinnar og Áslaug Torfadóttir segir frá sjónvarpsþáttunum Castle Rock.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Spjallsímar, bókmenntasaga, andsemitísk tónlist, safnbruni í Ríó
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við íslenskufræðingana Guðrúnu Ingólfsdóttur og Þórunni Sigurðardóttur sem hafa búið til prentunar bókmenntasögu Jóns Ólafssonar Grunnvíksins, en verkið var skrifað á fyrri hluta átjándu aldar, og kemur út í fyrsta sinn í vikunni.
    Snjallsímar verða stöðugt mikilvægari hluti af lífi fólks, það talar saman, ljósmyndar, hugsar, man og ratar með hjálp símanna - svo eitthvað sé nefnt. En því fylgir einnig áreiti og er kvíðavaldandi að hafa allan heiminn stöðugt við höndina. Sumir hafa brugðið á það ráð að segja skilið við snjallsímann og grafið upp gamla netlausa spjallsímann úr skúffunni til að losna við áreitið. Símafyrirtæki eru svo farin að bregðast við þessu með framleiðslu nýrra gamalla síma. Í Lestinni í dag veltum við fyrir okkur takkasímum og heimsækjum meðal annars skrifstofu Íslandsdeildar Amnesty International þar sem starfsmenn hafa tekið sig saman um að hverfa aftur til fortíðar.
    Frá því var greint í gær að ísraelska Ríkisútvarpið hefði beðið hlustendur afsökunar eftir að tónlist eftir Richard Wagner var leikin í útvarpinu, en tónskáldið er enn afar umdeilt í Ísrael sökum þess að honum var í nöp við gyðinga og naut á sínum tíma aðdáunar Adolfs Hitlers. Lestin skoðar málið í dag með Selmu Guðmundsdóttur píanóleikara, en hún er formaður Íslenska Wagnerfélagsins.
    Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi, og í dag veltir hann fyrir sér bruna þjóðminjasafnsins í Ríó í Brasilíu.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Draugaskip, Bobi Wine, The Innocents, og nýtt íslenskt leikverk
    Popptónlistarmaðurinn Bobi Wine er nú orðin ein helsta ógn við spilltan og þaulsetinn forsetann í Úganda. Hann ólst upp í sárri fátækt, sló í gegn með glaðlegu afrópoppi en hefur nú náð inn á þing og er orðinn að helstu táknmynd stjórnarandstöðunnar í landinu. Hann hefur verið handtekinn og pyntaður og sakaður um landráð. Egill Bjarnason, blaðamaður, bjó um tíma í Úganda og heimsækir Lestina til að ræða nýjustu vendingar í stjórnmálum landsins.
    Árni Kristjánsson leikstjóri segir frá nýju, íslensku leikverki, sem verður leiklesið í Hannesarholti í kvöld. Verkið nefnist Fáir, fátækir, smáir, og er eftir höfund sem óskar nafnleyndar, en það er Vonarstrætisleikhúsið sem stendur að uppákomunni.
    Haldið verður áfram að fylgjast með fullveldismaraþoni Reykjavíkurakademíunnar sem fram fór á dögunum. Björg Árnadóttir veltir fyrir sér hvað við eigum að gera við það sem við skrifum, eigum við að birta það eða brenna það?
    Áslaug Torfadóttir segir frá sjónvarpsþáttunum The Innocents og við höldum til hafs, í leit að draugaskipi.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • García Lorca, #MeToo, vinnukerfi og Kanye-sumarið mikla
    Jörðin skelfur ennþá undir fótum okkar vegna þeirra ótrúlegu hræringa sem kenndar hafa verið við MeToo. Byltingar sem hefur haft gríðarleg áhrif á hugmyndir, orðræðu og hegðunarreglur í kynferðislegum samskiptum fólks. Nú nýlega hafa komið upp tvö merkileg mál í Bandaríkjunum þar sem tvær konur, feministar og þátttakendur í MeToo-hreyfingunni hafa verið sakaðar, í sitt hvoru lagi, um kynferðislega áreitni af yngri karlmönnum. Í Lestinni í dag ræðir Nanna Hlín Halldórsdóttir, heimspekingur, hvernig þessu flóknu og margslungnu mál varpa ljósi á eitrað valdamisræmi í hinum ýmsu vinnukerfum
    Áður en Lestin fór í sumarfrí ferðaðist hún til Wyoming og fjallaði um Kanye-sumarið mikla, en upptökustjórinn Kanye West var áberandi í vor með glæfralegum yfirlýsingum um stjórnmál, auk þess að gefa út fimm plötur með sjálfum sér og öðrum listamönnum þar sem hann var potturinn og pannan í upptökum og lagasmíðum, en plöturnar komu með viku millibili í júnímánuði. Í dag fjallar Davíð Roach Gunnarsson um tvær síðustu plöturnar í þessum fimmleik, Nasir með rapparanum Nas, og K.T.S.E. með söngkonunni Teyönu Taylor.
    Lestin minnist þess einnig að í sumar voru 120 ár liðin frá fæðingu spænska skáldsins Federico Garca Lorca, sem var eitt fremsta ljóðskáld Evrópu á síðustu öld, gestur þáttarins verður Örnólfur Árnason.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Dauðinn, tónleikar, Merleau-Ponty og japönsk tölvuleikjatónlist
    Heimspeki; Hegel og Maurice Merleau-Ponty, japönsk tölvuleikjatónlist, Hávamál og tónleikar sem fram fóru í gærkvöld, á dagskrá hjá okkur í dag.
    "Heimur skynjunarinnar virðist í fyrstu vera sá heimur sem við þekkjum best. [...] En þetta er blekking." Svo komst franski heimspekingurinn Maurice Merlau-Ponty að orði í útvarpserindi fyrir sjötíu árum síðan. Í sjö útvarpserindum sem hann flutti árið 1948 setti hann fram margar meginhugmyndir sínar á óvenjulega aðgengilegan hátt, og nú eru þessu erindi orðin enn aðgengilegri fyrir okkur, enda komin út í íslenskri þýðingu. Við ræðum við Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki og annan þýðendanna, um Merlau-Ponty og Heim skynjunarinnar.
    Það var funheitt og ekkert gefið eftir í Elborgarsal Hörpu í gærkvöldi þegar senagalski tónlistarmaðurinn Youssau N'Dour hélt ásamt stórri hljómsveit. Hitinn fór á köflum upp undir fjörutíu gráður. Lestin var að sjálfsögðu á staðnum, og við segjum frá í þættinum í dag.
    Og Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur heimspekipistil í Lestinni á miðvikudegi, og fjallar í dag um dauðann, og framhaldslíf í Hávamálum og hjá Hegel.
    Japönsk tölvuleikjatónlist hefur haft gríðarleg áhrif á tónlist og poppkúltúr nútímans en nú er fjallað um tölvuleikjatónlist níunda og tíunda áratugsins sem háklassa list. Verið er að endurskoða þessa tónlist sem eitthvað meira en bara bakgrunnstónlist og eru jafnvel haldnir sinfóníutónleikar víðs vegar um heim með tónlist úr frægum tölvuleikjum frá Japan. Lestin kannar tilurð og sögu japanskrar tölvuleikjatónlistar í dag
    57 min
  • Merki og form, góðgerðamaraþon og besta Bítlalagið
    Merki og form, góðgerðarmaraþon og besta Bítlalagið verða meðal umfjöllunarefna Lestarinnar í dag.
    Merki og form eru Gísla B. Björnssyni, grafískum hönnuði, ávallt jafn hugleikin. Á áratuga löngum starfsferli sínum hannaði hann fjölmörg af þeim óteljandi merkjum sem við sjáum daglega og tengjum tilfinningalegum böndum við tiltekna hópa, fyrirtæki eða stofnanir. Við kíkjum í heimsókn til Gísla og fræðumst um merkjagerð, form og þær miklu breytingar sem átt hafa sér stað á vinnu auglýsingateiknarans frá miðri 20.öldinni.
    Og við spyrjum, er endalaust hægt að tala með ástríðufullum hætti um Bítlana? Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og Alþingismaður, hefur að undanförnu birt á Facebook lista fyrir 60 bestu Bítlalögin, að hans mati, með tilheyrandi greinargerðum, mjög fræðandi og skemmtilegum. Fjörugar umræður hafa skapast um listann og auðvitað ekki allir á eitt sáttir, en menn eru að minnsta kosti mjög ánægðir með framtakið. Guðmundur Andri verður gestur Lestarinnar í dag ásamt Þorgeiri Tryggvasyni, gagnrýnanda, sem er einn af þeim sem hafa blandað sér í umræðuna.
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi, Reykjavíkurmaraþon kemur við sögu hjá Halldóri í dag, hugmyndin um að hlaupa til góðs í nafni fjármálastofnunar.
    57 min