Merki og form, góðgerðarmaraþon og besta Bítlalagið verða meðal umfjöllunarefna Lestarinnar í dag.
Merki og form eru Gísla B. Björnssyni, grafískum hönnuði, ávallt jafn hugleikin. Á áratuga löngum starfsferli sínum hannaði hann fjölmörg af þeim óteljandi merkjum sem við sjáum daglega og tengjum tilfinningalegum böndum við tiltekna hópa, fyrirtæki eða stofnanir. Við kíkjum í heimsókn til Gísla og fræðumst um merkjagerð, form og þær miklu breytingar sem átt hafa sér stað á vinnu auglýsingateiknarans frá miðri 20.öldinni.
Og við spyrjum, er endalaust hægt að tala með ástríðufullum hætti um Bítlana? Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og Alþingismaður, hefur að undanförnu birt á Facebook lista fyrir 60 bestu Bítlalögin, að hans mati, með tilheyrandi greinargerðum, mjög fræðandi og skemmtilegum. Fjörugar umræður hafa skapast um listann og auðvitað ekki allir á eitt sáttir, en menn eru að minnsta kosti mjög ánægðir með framtakið. Guðmundur Andri verður gestur Lestarinnar í dag ásamt Þorgeiri Tryggvasyni, gagnrýnanda, sem er einn af þeim sem hafa blandað sér í umræðuna.
Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi, Reykjavíkurmaraþon kemur við sögu hjá Halldóri í dag, hugmyndin um að hlaupa til góðs í nafni fjármálastofnunar.