Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Umdeildar nábrækur, Einstein kynferðisins, Unforgotten, Gísla saga Súr
    List­málaranum Þrándi Þórarins­syni var meinað að sýna mál­verk sitt af Bjarna Bene­dikts­syni fjármálaráðherra að klæða sig í ná­brók á af­mælis­sýningu sem opnuð var í Hannesarholti á laugar­daginn, þegar Þrándur fagnaði fertugsafmæli sínu, en staðarhaldari gaf Þrándi þá skýringu að verkið ætti ekki heima í Hannesarholti. Þrándur verður gestur Lestarinnar í dag.
    Þýski læknirinn og kynfræðingurinn Magnus Hirschfeld var einn ötulasti baráttumaðurinn fyrir mannréttindum samkynhneigðra á fyrri hluta 20. aldarinnar. Hann rannsakaði fjölbreytileika kynferðisins og reyndi að skýra hann læknisfræðilega með kenningu sinni um kynferðislegt millistig. Guðjón Ragnar Jónasson, framhaldsskólakennari, hefur nú þýtt litla bók sem segir frá ævi og kenningum Hirschfeld. Guðjón tekur sér far með Lestinni í dag og segir frá þessum merka baráttumanni.
    Áslaug Torfadóttir rýnir í bresku glæpaþættina Unforgotten.
    Og Ármann Jakobsson prófessor og rithöfundur segir frá bókinni sem að hans mati lýsir tímum okkar betur en aðrar.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Hraðlest: Snertu mig ekki, algóryþmar, hrunbókmenntir, þeramín, Ísak H
    Hraðlest leggur af stað 17:03. Á meðal efnis í þættinum í dag Ástráður Eysteinsson og Kristnihald undi jökli. Alaric Hall og íslenskar hrunbókmenntir. Hekla Magnúsdóttir og hljóðfærið Þeramín. Ísak Harðarson og ný ljóðabók hans, Ellefti snertur af yfirsýn, Halldór Armand Ásgeirsson og frelsið, Lilja Birgisdóttir og skynjunarveisla í Fischer. Kristrún Heimisdóttir og Weapons of Math Destruction, og Marta Sigríður Pétursdóttir og rúmenska kvikmyndin Snertu mig ekki.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Ísak Harðarson, kvenleg þrá á RIFF, þeremín og Hekla Magnúsdóttir
    Ísak Harðarson hefur sent frá sér sína fyrstu ljóðabók í heil níu ár. Bókin nefnist Ellefti snertur af yfirsýn, rætt verður við Ísak um bókina í Lestinni í dag.
    Þeremín var eitt fyrsta rafhljóðfærið sem var smíðað. Tvö loftnet gefa frá sér rafsegulsvið og hendur tónlistarmannsins stjórna styrk og tíðni hljóðsins þrátt fyrir að snerta aldrei hljóðfærið. Tónlistarkonan Hekla Magnúsdóttir hefur undanfarin ár samið og flutt tónlist á þetta sérstaka hljóðfæri. Nú er komin út fyrsta breiðskífu Heklu, Á. Tónlistin er allt í senn drungaleg og dáleiðandi, fíngerð og loftkennd. Hekla tekur sér far með Lestinni í dag.
    Marta Sigríður Pétursdóttir heldur áfram að fjalla um kvikmyndir sem sýndar eru á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF. Í dag rýnir hún í verðlaunamyndina Touch me not og hina þýsku Þrír dagar í Queberon.
    Og hugað verður að raftónlist: Bandaríski raftónlistarmaðurinn Pictureplane gaf út nýja plötu á dögunum sem ber heitið Degenerate eða Úrkynjaður. Pictureplane, sem heitir réttu nafni Travis Egedy, missti húsnæði sitt í Denver í kjölfar harmleiksins í Oakland um jólin, þar sem 36 manns létust í eldi sem geisaði á meðan tónleikar fóru fram í húsnæðinu. Rætt verður í þættinum í dag við Pictureplane um neðanjarðarsenuna þar vestra og menningarstríðið sem kom upp í kjölfar brunans.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Áhrifavaldar, hrunbókmenntir, Kristnihald undir jökli, Geoff Emerick
    Á þessu ári eru fimmtíu ár liðin frá útkomu skáldsögunnar Kristnihald undir jökli eftir Halldór Laxness. Verkið hefur mikla sérstöðu í höfundarverki Laxness, kom út á ólguskeiði í íslenskri skáldsagnaritun og skartar litríkum persónum sem lifað hafa með þjóðinni. Í tilefni af afmæli verksins ætlar Ástráður Eysteinsson prófessor í bókmenntum við Háskóla Íslands að fjalla það á Gljúfrasteini í kvöld, í erindi sem hann nefnir Að steypa sér í jökulinn. Rætt verður við Ástráð í Lestinni í dag um þetta mikla furðuverk, Kristnihald undir jökli.
    Á þeim 10 árum sem liðin eru frá hruni íslenska fjármálakerfisins hefur fjöldi skáldsagna komið út þar sem atburðir hrunsins eru í bakgrunni eða spila stórt hlutverk. En hvað einkennir þessar bókmenntir, hver var gagnrýni þeirra og útópísk sýn á hið nýja Ísland? Á næsta ári kemur út bók breska miðaldafræðingsins Alaric Hall um íslenskar hrunbókmenntir. Hringt verður til Leeds og spjallað við Hall um hrun og gagnrýnar bókmenntir.
    Við minnumst líka upptökustjórans Geoff Emerick, sem andaðist í gær, 72 ára gamall.
    Og Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur pistil í Lestinni á miðvikudegi og fjallar í dag um auglýsingar, áhrifavald og skáldsöguna LoveStar eftir Andra Snæ Magnason.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Berndsen, frelsi, Kerouac, lykt og skynjun
    Mannveran býr yfir fimm skilningarvitum sem gera henni kleift að vera í tengslum við heiminn í kringum sig, upplifa og skynja veruleikann sem hún er hluti af. Hún snertir, horfir, lyktar, bragðar, heyrir. Öll skilningarvitin verða virkjuð í skynjunarveislu sem stendur nú yfir í hinni óvenjulegu verslun, Fischer í Reykjavík. Í Lestinni í dag verður farið niður í Fischersund, og skynjað með Lilju Birgisdóttur, myndlistarkonu. Tónlistarmaðurinn
    Davíð Berndsen sendi á dögunum frá sér nýja plötu sem nefnist Alter Ego, Davíð verður gestur þáttarins í dag.
    Í skáldsögu bandaríska rithöfundarins Jacks Kerouacs, Á vegum úti, birtist einkennilegt fyrirbæri sem persónur sögunnar nefna einfaldlega ÞAÐ. Erfitt er að koma orðum að því hvað þetta ÞAÐ er en hægt er að laumast í kringum það með dæmum og tónlist. Tómas Ævar Ólafsson kannar málið í þætti dagsins.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Ógnarvald algóryþmans, Maniac, RIFF-gagnrýni, útilistaverk og vindur
    Útilistaverk hafa gegnt ýmsu hlutverki í reykvísku borgarlífi frá því undir lok 19. aldarinnar. Þau hafa verið notuð til að festa ríkjandi söguskilning og þjóðernishugmyndir í sessi með styttum, til að göfga almúgann með fögru umhverfi og myndum, og að setja umdeild pólitísk mál á dagskrá með óræðu inngripi í almannarýmið. Rætt verður við Æsu Sigurjónsdóttur, lektor í listfræði, um virkni útilistaverka í Reykjavík fyrr og nú.
    Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýnandi stendur vaktina á RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, og gefur skýrslu í þætti dagsins. Að þessu sinni rýnir hún í opnunarmyndina Donbass eftir Sergei Loznitsa og kvikmyndina Styx eftir Wolfgang Fischer.
    Nýr dagskrárliður verður kynntur til sögunnar, en í Lestinni á næstu vikum fá umsjónarmenn valda einstaklinga úr ólíkum áttum til að fjalla um bækur sem að þeirra mati skýra betur en aðrar þá tíma sem við lifum nú. Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur ríður á vaðið og segir frá bókinni Weapons of Math Destruction eftir bandaríska stærðfræðinginn Cathy O'Neil.
    Kvikmyndastjörnurnar Jonah Hill og Emma Stone reyna fyrir sér í sjónvarpi í Netflix þáttunum Maniac sem kanna leynstu fylgsni mannshugans. Áslaug Torfadóttir segir frá þáttunum í dag.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Hraðlest: Dickens, SiGRÚN, Virilio, glæpaskáld, RIFF, Massive Attack o
    Lestin yfirgefur brautarpallinn 17:03, og fer hratt í dag. Við sögu í þætti dagsins koma meðal annars Charles Dickens og Þórdís Bachmann, Paul Virilo og Björn Þór Vilhjálmsson, hljómsveitin Massive Attack og Davíð Roach Gunnarsson, tónlistarkonan SiGRÚN, danska skáldið Yahya Hassan, skáld og glæpir, Halldór Armand Ásgeirsson og andófið í bóklestrinum, Erla Björnsdóttir og svefn, Margrét Erla Maack og kabarett, og Marta Sigríður Pétursdóttir og Alþjóðlega kvikmyndahátíðin RIFF í Reykjavík.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Svefnmenning, túlkur Tarkovsky, RIFF-meðmæli, Guðmundar- og Geirfinnsm
    Þriðjung sólarhringsins liggja manneskjur og sofa, á bakinu eða hliðinni, í mjúku rúmi eða hörðu fleti, einar eða í faðmlögum. Þær eiga erfitt með svefn, sofa eins og börn, sofa yfir sig og fá sér lúr. En af hverju sofum við, sofum við öðruvísi en forfeður okkar og hvernig getum við tryggt okkur sem bestan nætursvefn? Í Lestinni í dag verður rýnt í svefnmenningu samtímans með Erlu Björnsdóttur, sálfræðingi.
    Einnig verður rætt við Laylu Alexander-Garrett sem stödd var hér á landi nú á dögunum, en hún starfaði á sínum tíma sem túlkur og sérlegur aðstoðarmaður rússneska kvikmyndaleikstjórans Andreis Tarkovskys við gerð síðustu myndar hans, Fórnarinnar, frá árinu 1986.
    Guðmund­ar- og Geirfinns­málið kemur við sögu í þættinum í dag, mál sem heltók íslenskt samfélag á áttunda áratugnum og hafa áhrif þess verið mikil, og birtingarmyndur verið mýmargar í íslenskri menningu. Í fjórum pistlum í septembermánuði fjallar Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson um þetta alræmdasta sakamál Íslandssögunnar í skáldskap - og sem skáldskap. Snorri flytur fjórða og síðasta pistil sinn um þetta efni í Lestinni í dag, en dómur verður kveðinn upp í Hæstarétti í dag.
    Og Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir dagskrá kvikmyndahátíðarinnar RIFF sem hefst í dag.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Slangur, Mezzanine, ódauðleikinn, kabarett og jaðarsviðslistir
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um slangur, en í dag er evrópski tungumáladagurinn haldinn hátíðlegur meðal 45 Evrópuþjóða. Rætt verður við Einar Björn Magnússon íslenskufræðing sem hélt á sínum tíma, ásamt Guðlaugi Jóni Árnasyni, úti vefsíðunni slangur.is, þar sem slanguryrðum var safnað og hlaut síðan góðar viðtökur.
    Á undanförnum árum hefur skemmtanalíf Reykjavíkurborgar orðið æ fjölbreyttara og má segja að hálfgerður jaðarskemmtanaiðnaður hafi orðið til á öldurhúsum og knæpum miðborgarinnar. Hinar ýmsu sviðslistir sem ekki hafa komist fyrir í virðulegum menningarstofnunum hafa fundið sér stað og laða að gesti kvöld eftir kvöld. Spunaleikhópar, uppistandarar, sirkúsar, börlesk-skemmtanir, ljóðagleðihús, þátttökubíó, drag-keppnir og svo framvegis. Reykjavík Kabarett er ein stoðin í þessari nýju senu en kabarettinn verður með reglulegar sýningar í Þjóðleikhúskjallarnum í vetur. Margrét Erla Maack annar stofnenda Kabarettsins tekur sér far með Lestinni í dag.
    Í ár eru tveir áratugir liðnir frá útgáfu einnar dimmustu plötu poppsögunnar, Mezzanine, eftir trip-hop frumkvöðlana í Massive Attack. Í þættinum í dag verður varpað ljósi á myrkraverkið sem gripurinn er, í orðsins fyllstu og bestu merkingu, og stiklað á stóru í sögu Massive Attack og Bristol-senunnar.
    Og fjallað verður um rússneska heimspekinginn Nikolai Fyodorov og hugmyndir hans um ódauðleikann.
    57 min
  • Skáld og glæpir, SiGRÚN, bóklestur sem andóf og hverfastríð ungmenna
    Tilraunakenndur rafrænn hljóðheimur og ómþýðar sungnar laglínur einkenna nýjustu plötu Sigrúnar Jónsdóttur, Onælan, sem kom út um helgina. Sigrún hefur ferðast um heiminn og leikið með heimsþekktum listamönnnum á borð við Björk, Sigur Rós og Florence and the Machine en einbeitir hún sér að tilraunakenndari tónsmíðum undir eigin nafni. SiGRÚN - allt skrifað með stórum stöfum nema i-ið - tekur sér far með Lestinni í dag.
    Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar um það hvernig bóklestur er hið eina sanna andóf.
    Öldungar braggahverfisins leggja á ráðin og ákveða að stofna fótboltafélag til að sporna við hverfastríðum ungmenna. En hvernig kemur fótbolti í veg fyrir stríð? Í pistli dagsins verður bók Einars Kárasonar, Þar sem Djöflaeyjan rís, skoðuð ásamt gömlu dönsunum í gegnum póst-strúktúralíska valdaspeki.
    Og fjallað verður að gefnu tilefni um skáld, og glæpi.
    55 min