Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Kvennafrí, Sapiens, Travis Scott, The Haunting of Hill House,
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Maríönnu Clöru Lúthersdóttur um kvennafrí, en stundvíslega klukkan 14:55 eru konur hvattar til að ganga úr vinnu og ganga síðan fylktu liði niður á Arnarhól þar sem haldinn verður samstöðufundur. Maríanna er verkefnisstjóri kvennafrís og segir frá í þættinum í dag.
    Halldór Björnsson, veðurfræðingur, segir frá bók sem að hans mati á meira erindi við samtímann en aðrar bækur, bók sem við eigum að lesa hér og nú. Bókin sem hann velur er metsölubókin Sapiens, eftir ísraelska sagnfræðinginn Yuval Noah Harari, bók sem varpar áhugaverður og óvæntu ljósi á sögu mannkyns.
    Við kíkjum á nýtt tónlistarmyndband með rapparanum Travis Scott, en myndbandið við Sicko Mode er ofhlaðið og gallsúrt ferðalag um heimaborg hans, Houston í Texas.
    Og sjónvarpsþátturinn The Haunting of Hill House þykir ekki aðeins draugalegasti sjónvarpsþáttur ársins, heldur líka einn sá besti. Áslaug Torfadóttir hættir sér inn í Hill House í Lestinni í dag.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Kurt Vile, Karíbahafið, kvennastörf og Haraldur Jónsson
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Harald Jónsson myndlistarmann en á laugardag verður opnuð á Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á verkum hans. Sýningin nefnist Róf og spannar þrjátíu ára feril Haraldar.
    Í byrjun árs ferðaðist Halldór Ragnarsson, myndlistarmaður, um eyjar Suður-Karíbahafsins í tvo mánuði. Hann dvaldist á fáförnum eyjum og ljósmyndaði þar fólk og staði og útkoman kemur nút út í ljósmyndabók sem nefnist Leit að lífi. Bókin inniheldur einnig brot úr ferðadagbók Halldórs, hugleiðingar sem varpa ljósi á hið innra tilvistarlega ferðalag listamannsins. Halldór tekur sér far með Lestinni og ræðir um ferðalög, ljósmyndir og leitina að lífi. Á fimmtudögum í októbermánuði flytur Eydís Blöndal, ljóðskáld, pistla um kvennastörf, hlustendur heyra annan pistil hennar í þættinum í dag. Og Davíð Roach Gunnarsson fjallar um nýútkomna plötu með bandaríska tónlistarmanninum Kurt Vile.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    51 min
  • Nýtt íslenskt bíó, stafræn fótspor, Blood on the tracks, bréf til Evró
    Stafræni heimurinn birtist okkur yfirleitt sem loft- og óefniskenndur. Því gerum við okkur illa grein fyrir þeim ummerkjum sem við skiljum eftir okkur, greinileg fótspor og skýr slóð sem fyrirtæki og stjórnvöld geta rakið, safnað saman og notað í ýmsum tilgangi. En geta einstaklingar á einhvern hátt falið slóð sína eða minnkað stafræna fótsporið sitt? Oktavía Hrund Jónsdóttir, öryggisráðgjafi og baráttukona fyrir stafrænum réttindum, tekur sér far með Lestinni í dag og ræðir um friðhelgi einkalífsins í netheimum.
    Vefútgáfa breska blaðsins The Guardian greindi frá því í gær að ítalski kvikmyndaleikstjórinn Luca Guadagnino, höfundur mynda á borð við Call me by your Name og Suspira, hyggist gera kvikmynd eftir hljómplötunni Blood on the Tracks með Bob Dylan. Platan kom út árið 1975 og þykir ein albesta plata Dylans. Einnig var tilkynnt á dögunum að væntanlegur væri pakki frá Columbia-útgáfufyrirtækinu, 14. pakkinn í bootleggseríunni svokölluðu, sem helgaður verður þessari frægu plötu og hefur meðal annars að geyma upptökur sem ekki hafa heyrst áður. Lög af plötunni Blood on the Tracks hljóma í hljóðkerfi Lestarinnar í dag, og rætt verður við Guðmund Andra Thorsson, rithöfund og Alþingismann sem hefur miklar mætur á plötunni.
    Í Lestinni í dag verður flutt opið bréf til Evrópu. Þetta er brot úr ljóðinu “Bréf til Evrópu“ eftir sænska ljóðskáldið Athenu Farrokhzad sem var frumflutt á ljóðahátíðinni Dagar ljóða og víns í Berlín í ágúst. En á hverju ári fá hátíðarhaldarar er eitt ljóðskáld fengið til að ávarpa Evrópu, stöðu hennar og vandamál. Bréfið hefur verið þýtt af Eiríki Erni Norðdahl og er hér lesið upp af Sönnu Magdalenu Mörtudóttur. En ljóðið verður hluti af Cycle Music and Art Festival sem fer fram í Kópavogi 25 til 28. október og verður þar flutt í heild sinni, en þema hátíðarinnar í ár er inclusive nation - “Þjóð meðal þjóða.“
    Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýndi fjallar í þættinum um dag um kvikmyndina Undir halastjörnu eftir Ara Alexander Ergis Magnússon sem frumsýnd var á dögunum, og nýja íslenska heimildamynd, Bráðum verður bylting.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Aflandsfélög, gervigreindartónlist, varðskipið Óðinn og bíóillmenni
    Gervigreind er farin að leika stórt hlutverk í tónlistarsköpun í nútímanum á öllum stigum sköpunarinnar. Gervigreindin aðstoðar ekki bara mannlega tónsmiði við að semja og ná fram áhugaverðum hljóðum heldur er hún jafnvel farin að geta samið sína eigin tónlist. Í Lestinni í dag verður spáð í gervigreind, tækni og tónlist með Þórhalli Magnússyni, lektor, við Háskólann í Sussex í Bretlandi.
    Varðskipið Óðinn er eitt sögufrægasta skip landsins. Það tók þátt í þorskatríðunum auk þess sem skipið á sér merka sögu þegar kemur að björgunarafrekum. Í febrúar á þessu ári voru 50 ár síðan skipverjar á Óðni björguðu átján sjómönnum af breska togaranum Notts County í foráttuveðri í Ísafjarðardjúpi, alls fórust 26 sjómenn í því veðri. Óðinn hefur verið einn helsti sýningargripur Sjóminjasafnsins í Reykjavík en var dreginn í slipp í gær. Í Lestinni í dag verða fáein brot úr sögu Óðins rifjuð upp með Pálma Hlöðverssyni sem var stýrimaður á skipinu dagana örlagaríku í febrúarbyrjun árið 1968.
    Tómas Ævar Ólafsson kannar í dag skilvirka formúlu ævintýrakvikmynda til að koma illmennum fyrir kattarnef án þess að fórna sakleysi hetjunnar, formúlu sem kalla mætti hinn gerandalausa dauðdaga illmennisins.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi. En í dag veltir hann fyrir sér aflandsfélögum og peningalandi.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    51 min
  • Jóhann Jóhanns og Mandy, Swing time, Bach, hinsegin grasrót
    Nú um helgina var frumsýnd hér á landi síðasta kvikmyndin sem Jóhann Jóhannsson, tónskáld, vann tónlistina við. Mandy er tilraunakennd hryllingsmynd eftir Panos Cosmatos og með Nicolas Cage í aðalhlutverki. Tónlistin hefur vakið mikla athygli enda er hún óvenjuleg og ágeng, en þar eru nostalgískir hljóðgervlar og níðþungur gítarhljómur í aðalhlutverki. Einn þeirra sem starfaði með Jóhanni að gerð tónlistarinnar er Kjartan Holm, tónlistarmaður og tónsmiður. Kjartan tekur sér far með Lestinni í dag og lýsir frá því hvernig var að vinna með Jóhanni við gerð myndarinnar.
    Auður Jónsdóttir rithöfundur segir frá bók sem að hennar mati á meira erindi við samtímann en aðrar bækur, bók sem við eigum að lesa hér og nú. Bókin sem hún velur er Swing time eftir Zadie Smith.
    Sjónvarpsþættirnir Pose fjalla um merkilega tíma í grasrótarmenningu hinsegin fólks í New York á níunda áratugnum. Áslaug Torfadóttir rýnir í ballmenninguna og segir frá þátttakendum hennar.
    Og Johann Sebastian Bach kemur við sögu að gefnu tilefni í Lestinni í dag.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Hraðlest: Banksy, Rax, sjónvarpsgrínistar, nábrækur, Einstein kynferði
    Hraðlestin leggur af stað 17:03. Við sögu í þættinum í dag koma meðal annars Banksy, Ragnar Axelsson og Einar Geir Ingvarsson, Eydís Blöndal, Guðjón Ragnar Jónasson og þýski læknirinn og kynfræðingurinn Magnus Hirschfeld, Ármann Jakobsson og Gísla saga Súrssonar, Þrándur Þórarinsson og skollabuxur Bjarna Benediktssonar, Svavar Knútur, Ísleifur Þórhallsson og Off-venue, og Halldór Armand Ásgeirsson og sjónvarpspredikarar dagsins í dag.
    57 min
  • Tónlist í almannarými, A Star is Born, kvennastörf, Marie Davidson
    Það er tónlist út um allt. Í stórmörkuðum, verslunarmiðstöðvum, veitingastofum, hjá rakaranum, á flugvöllum og á hótelum. En hvernig er þessi tónlist valin? Hvað liggur til grundvallar og hvaða markmið eru höfð í huga? Við fjöllum um tónlist í almannarými í Lestinni í dag. Gestur okkar verður Kristinn Pálsson sem hefur unnið í nokkur ár fyrir fyrirtæki sem heitir AtmoSelect við nákvæmlega það að setja saman lagalista.
    Í októbermánuði ætlar Eydís Blöndal, ljóðskáld og heimspekinemi, að taka sér far með Lestinni og flytja nokkra pistla um kvennastörf. Í fyrsta pistli sínum veltir Eydís fyrir sér óútskýrðum launamun kynjanna.
    Og Kanadíska teknóskáldkonan Marie Davidson framleiðir prósaljóð fyrir dansgólfið og takta fyrir tilvistarkreppur, um leið og hún afhjúpar myrkari kima plötusnúða- og klúbbamenningar samtímans með nístandi íróníu. Hennar fjórða skífa, Working Class Woman, kom út dögunum við standandi lófaklapp gagnrýnenda. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Marie Davidson og setur tónlist hennar í hljóðkerfi Lestarinnar í dag.
    Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýnandi fjallar um kvikmyndirnar A Star is Born eftir bandaríska leikstjórann Bradley Cooper og Lazzaro felice (eða Happy as Lazzaro) eftir ítalska leikstjórann Alice Rohrwacher.
    57 min
  • Skammir á netinu, RAX og jökullinn, endalok Off-venue?
    Í huga margra er hin svokallaða Off venue dagskrá, óopinberir og ókeypis tónleikar samhliða Iceland Airwaves, stór hluti af sjarmanum við tónlistarhátíðina. Nú á 20 ára afmæli Airwaves hafa nýir aðilar tekið við rekstrinum og óttast margir að þeir ætli skera upp herör gegn þessari ókeypis hliðardagskrá, en þeir vilja meina að minnka miðasölu á sjálfa hátíðina. Við veltum fyrir okkur Off-venue í Lestinni í dag og ræðum meðal annars við Svavar Knút, söngvaskáld og off-venue áhugamann, og Ísleif Þórhallsson, framkvæmdastjóra Iceland Airwaves.
    Ragnar Axelsson ljósmyndari gefur á laugardag út nýja ljósmyndabók sem nefnist Jökull en bókin hefur að geyma jöklamyndir sem Ragnar hefur tekið á undanförnum tíu árum. Sama dag verður opnað í Ásmundarsal sýning þar sem sýnt verður úrval mynda úr bókinni. Bókin er fyrsta bókin sem kemur út hjá nýju forlagi, Querndu, þar sem ætlunin er að beina sjónum að norðurslóðum. Ragnar segir frá í Lestinni í dag, en einnig verður rætt við hönnuð bókarinnar, Einar Geir Ingvarsson.
    Og Karl Ólafur Hallbjörnsson, fjallar í heimspekilegu spjalli á miðvikudegi um skömm og skammir á netinu.
    57 min
  • Banksy, sjónvarpsgrínistar, sovéskir hippar og vampíruteknó
    Huldulistamaðurinn og ólíkindatólið Banksy hefur enn einu sinni sett listheiminn í uppnám með prakkaralegum gjörningi. Um leið og eitt hans frægasta verk, Stelpa með blöðru, var slegið á 150 milljónir króna á uppboði í Sothebys í London virkjaðist tætari sem komið hafði verið fyrir inni í rammanum og eyðilagði verkið verðmæta. Nú deilir fólk um hvort Banksy hafi tekist að setja fram beinskeytta gagnrýni á listmarkaðinn eða hvort þetta hafi bara verið innihaldslaus auglýsingabrella, gerð til þess að auka verðgildi verksins? Arnór Kári , listamaður, tekur sér far með Lestinni í dag og ræðir um þennan athyglisverða gjörning.
    Á kvikmyndahátíðinni RIFF sem lauk um helgina mátti meðal annars sjá heimildamynd um sérkennilega menningarfyrirbærið Sovéska Hippa. Myndin skoðar sögu þeirra og samtíð og afhjúpar athyglisverðan hulduheim innan járntjalds Sovétríkjanna. Tómas Ævar Ólafsson hefur kynnt sér málið og segir frá í þættinum í dag.
    Þórður Ingi Jónsson fjallar um bandaríska raftónlistarmanninn Pictureplane sem gaf nýlega frá sér plötuna Degenerate.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar um sjónvarpspredikara dagsins í dag.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    55 min