Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Ásu Helgu Hjörleifsdóttur kvikmyndaleikstjóra um listina að aðlaga skáldsögur að kvikmyndaforminu en hún heldur á næstunni námskeið um efnið hjá Endurmenntun HÍ. Á námskeiðinu læra þátttakendur að skrifa handrit byggt á bók að eigin vali, og fá einstaka innsýn í þetta listform, aðlögun. Ása segir nánar frá í Lestinni í dag.
Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýnandi fjallar um tvær kvikmyndir í þætti dagsins, pólsku myndina Kler eftir Wojciech Smarzowski og Gräns, eða Mæri, eftir íransk/sænska kvikmyndaleikstjórann Ali Abbasi.
Tvisvar í mánuði hittist hópur kvenna á besta aldri í Borgarbókasafninu í Árbæ, þær skrifa, lesa upp textana sína og gefa hverri annarri gagnrýni og ábendingar. Skrifstofan er opin og ókeypis ritsmiðja á vegum Borgarbókasafnsins í Árbæ en sams konar smiðja er einnig starfrækt í Kringlunni. Þátttakendur nýta smiðjuna ýmist til að skrásetja endurminningar sínar, vinna úr sárri lífsreynslu í ljóðum, eða virkja ímyndunaraflið og skrifa skáldsögur. Lestin brunar upp í Árbæ og heimsækir ritsmiðju borgarbókasafnsins.
Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í miðvikudagspistli um hugtök væntingar og ætlunar með hliðsjón af sögunni um Ödipus konung.