Fyrsta ritmál mannkyns varð til í hinu merkilega menningarsamfélagi Mesópótamíumanna, á svæði sem nú tilheyrir Írak. Þessi uppfinning var fyrst notuð til að halda bókhald og skrásetja varning en fljótlega varð til ríkuleg bókmenntahefð sem er ennþá tiltölulega lítið rannsökuð. Kolbrún Lilja Kolbeinsdóttir, bókmenntafræðingur, hefur rannsakað og vinnur nú að þýðingum á nokkrum mikilvægum bókmenntaverkum frá Mesópótamíu. Í þætti dagsins ferðast Lestin fimm þúsund ár aftur í tímann með Kolbrúnu Lilju.
Einnig verður rætt við Sigtrygg Baldursson, framkvæmdastjóra Útóns, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, um ráðstefnuhald í tengslum við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves sem hefst í næstu viku.
Toshiki Toma, prestur innflytjenda á Íslandi og ljóðskáld, mælir með bók sem að hans mati lýsir samtímanum betur en aðrar bækur. En það eru bækur um leynilögreglumanninn Harry Bosch.
Og Áslaug Torfadóttir fjallar um kanadísku sjónvarpsþættina Schitt's Creek.