Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Mosar á Íslandi, Suspiria, staða blaðamennsku í samtímanum
    Bandaríska tímaritið Time velur að þessu sinni hóp fréttafólks víða um heim, sem hefur lagt líf sitt í hættu við að upplýsa almenning um sannleikann, manneskjur ársins 2018. Þeirra á meðal Jamal Khashoggi sem var myrtur í Istanbúl í október, þegar hann fór inn á ræðismannsskrifstofu Sádi-Arabíu í borginni, en margt bendir til þess að ráðamenn í Sádi-Arabíu hafi fyrirskipað morðið á honum, Khashoggi hafði skrifað á gagnrýnan hátt um stjórnvöld þar í landi fyrir bandaríska stórblaðið Washington Post. Einnig koma hér við sögu blaðamenn Reuters, þeir Wa Lone og Kyaw Soe Oo, sem eru í fangelsi í Mjanmar, fyrir að hafa skrifað um meðferð stjórnvalda þar í landi á Róhingjum. Og þannig mætti áfram telja. Time kallar þetta fólk verðina, fólkið sem stendur vörð um sannleikann, fólkið sem leggur líf sitt í sölur við að upplýsa almenning um sannleikann. Í Lestinni í dag verður rætt um stöðu og mikilvægi blaðamennsku í samtímanum, gestur þáttarins hér verður Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans.
    Út er komin bókin Mosar á Íslandi eftir Ágúst H. Bjarnason, grasafræðing. Þetta er greiningarlykill að öllum tegundum mosa sem vaxa hér á landi. Lestin heimsækir Ágúst og fræðist nánar um mosa í þætti dagsins. Bandaríski grasafræðingurinn Robin Wall Kimmerer heldur því meðal annars fram að töfrandi heimur mosa geymi lykil að alvöru eftirtektar- og athyglisgáfu mannsins - við skoðum líka hvort eitthvað sé til í þeirri staðhæfingu í þætti dagsins.
    Og Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um kvikmyndina Suspiria eftir ítalska leikstjórann Luca Guadagnino, mynd sem er innblásin af hrollvekju frá árinu 1977, mynd eftir annan ítalskan leikstjóra, Dario Argento. Danslistin er mikilvægur þáttur í myndinni og atvinnudansarar leika stór hlutverk, meðal annars Halla Þórðardóttir, dansari úr Íslenska dansflokknum, og við heyrðum í henni hér í Lestinni í síðustu viku. En Marta Sigríður fjallar sumsé um þessa mynd, Suspiria í þættinum í dag.
    55 min
  • Kraumsverðlaun, George Bush eldri, Stefán í Vallanesi, trúboði deyr
    Kraumsverðlaunin verða afhent í ellefta skipti klukkan 5 í dag. Sex plötur hljóta verðlaunin en þeim er ætlað að kynna og styðja útgáfustarfsemi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi - og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Árni Matthíasson, blaðamaður og formaður dómnefndar Kraumsverðlaunanna, tekur sér far með Lestinni í dag og ræðir um sigurplöturnar sex.
    Á þessu ári eru 400 ár liðin frá fæðingu Stefáns Ólafssonar, eins þekktasta skálds þjóðarinnar á 17. öld. Af því tilefni hefur Kristján B. Jónasson, bókaútgefandi og bókmenntafræðingur, birt að undanförnu pistla um Stefán og skáldskap hans á facebook-síðu sinni. Kristján verður gestur Lestarinnar í dag.
    „Draumurinn er að kynnast þeim, búa með þeim, læra tungumál þeirra, snúa þeim til kristinnar trúar og þýða fyrir þau biblíuna.“ Svona hljómuðu markmið trúboðans John Chau sem myrtur var af frumbyggjum Norður Sentinel eyju, þann 17. nóvember síðastliðinn. Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson þetta misheppnaða trúboð og skuggahliðar ritmálsins.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar um George Bush eldri og söguskoðun fjölmiðla.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Framtíð Iðnsamfélagsins, Svarti Laxness, Dietland og George Saunders
    Iðnsamfélagið og framtíð þess er viðfangsefnið á fyrstu breiðskífu ROHT sem kom út nú á dögunum. Tónlistin er hreinræktað iðnaðarpönk: hávær, skítug og illa þjökuð af samfélagslegri bölsýni og tilvistarangist. Sveitina skipa hjónin Þórir Georg og Júlía Aradóttir en þau hafa lengi verið virk á pönkjaðri Reykvísku tónlistarsenunnar. Hljómsveitin ROHT tekur sér far með Lestinni í dag.
    Og í þættinum í dag verður einnig haldið áfram að fá fólk til mæla með bókum sem tala inn í okkar samtíma, með einum eða öðrum hætti, mæla með bókum sem við eigum að lesa hér og nú. Í dag er röðin komin að Fríðu Ísberg, rithöfundi, en hún mælir með bókinni The Brief and Frightening Reign of Phil eftir bandaríska rithöfundinn George Saunders.
    Davíð Þór Katrínarson, sem kallar sig Svarta Laxness, var fenginn til að yrkja hátíðarljóð - fullveldisljóð, í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins. En hvernig fullveldi? Hvernig Ísland er það sem Svarti Laxness sér í ljóði sínu? Þórður Ingi Jónsson ræðir í þættinum í dag við Davíð Þór Katrínarson, leikara og rappara.
    Og Áslaug Torfadóttir fjallar um sjónvarpsþættina Dietland.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Bubbi fær heiðurslaun, Gróa, McCartney í Köben
    Allsherjar- og menntamálanefnd hefur lagt fram breytingartillögu sína við fjárlagafrumvarp næsta árs um heiðurslaun listamanna samkvæmt ákvörðun Alþingis. Leggur nefndin til að 25 einstaklingar fái heiðurslaun listamanna á næsta ári. Listinn er sá sami og í fyrra að öðru leyti en því að Bubbi Morthens kemur nýr inn, og það eru tíðindi. Bubbi Morthens verður gestur okkar á degi íslenskrar tónlistar, hann spjallar við okkur og frumflytur splúnkunýtt lag, sem er svo nýtt að það hefur ekki einu sinni hlotið nafn.
    Og já, það er dagur íslenskrar tónlistar í dag, íslensk tónlist kemur meira við sögu hjá okkur í dag, að gefnu tilefni kíkjum við á hljómsveitaræfingu hjá pönkrokk-sveitinni GRÓU. Bandið skipa þær Karólína Einarsdóttir, Hrafnhildur Einarsdóttir og Fríða Björg Pétursdóttir, 16 og 17 ára menntskælingar. „Það er ákveðinn hópur sem sækir mjög mikið á tónleikana okkar, segja þær, 50 til 60 ára gamalt fólk,“ en hljómsveitin þykir minna á nýbylgju-póstpönk-hljómsveitir 8. og 9. áratugarins.
    Og við förum líka til Kaupmannhafnar í þættinum í dag. Lestin flúði fullveldisafmælið um síðustu helgi og kom við í gamla höfuðstaðnum. Þar spilaði - söraði og háaldraði bítillinn Paul McCartney, Davíð Roach Gunnarsson var á staðnum og hann gefur okkur skýrslu frá Royal Arena.
    51 min
  • Sindri Freysson, jólagjafainnpökkun, hátíðarofngóttir, The Ballad of B
    Efni Lestarinnar í dag: Borgarbókasafnið hefur opnað innpökkunarstöðvar fyrir jólagjafir í Grófinni og Kringlunni. Þar er að finna gamlar bækur og afskrifuð blöð sem gestir geta endurnýtt sem gjafapappír. Rætt verður við Esther Ýr Þorvaldsdóttur, verkefnastjóra kynningar- og markaðsmála hjá Borgarbókasafninu. Og að gefnu tilefni fá hlustendur að heyra af skapandi jólagjafainnpökkun frá tónlistarmanninum Óskari Guðjónssyni. Rætt verður við Sindra Freysson rithöfund um nýja ljóðabók hans, sem nefnist Skuggaveiði. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um nýjustu mynd Coen bræðra, The Ballad of Buster Scruggs, sex stuttmyndir um grimman heim villta vestursins sem mynda eitt heildstætt verk. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um hátíðarofgnóttir.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Suspiria, Dansað í Odessa, frelsun og endajaxlar
    Nú í vikunni verður frumsýnd í Bíó Paradís endurgerð ítölsku költ-hryllingsmyndarinnar Suspiria frá árinu 1977, en það er leikstjóri hinnar óskarstilnefndu Call me by your name, Luca Guadagnino, sem stendur á bak við nýju útgáfuna. Myndin fjallar um bandaríska stúlku sem flytur til þýskalands til að leggja stund á dansnám, en kemst fljótt að því að skólinn er ekki allur þar sem hann er séður. Danslistin er mikilvægur þáttur í myndinni og atvinnudansarar leika stór hlutverk, meðal annars Halla Þórðardóttir, dansari úr Íslenska dansflokknum. Halla heimsækir Lestina í dag og spjallar um dans, Hollywood-leikara og hrylling.
    Endajaxlar eða vísdómstennur? Lengi vel voru öftustu tennur manneskjunnar kenndar við visku og skynsemi en í dag eru þær taldar vera þróunargalli. Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson endajaxla, tanndrátt og viskuskort. Ljóðabókin Dansað í Odessa eftir úkraínska skáldið Ilya Kaminsky kemur við sögu, en hún er komin út í íslenskri þýðingu Sigurðar Pálssonar og Sölva Björns Sigurðssonar.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi. Hann fer frá Ísraelum í ánauð, til Páls postula og inn í sjónvarpsfréttir RÚV.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    52 min
  • Erfðabreytt börn, Sabrina, J.K. Huysmans og stólar
    Í síðustu viku bárust þær ótrúlegu fréttir af því að fyrstu erfðabreyttu börnin hefðu fæðst í Kína. Daginn eftir að vísindamaðurinn He Juankui tilkynnti um byltingarkennda og gríðarlega umdeilda tilraun sína, hélt vöruhönnuðurinn Búi Bjarmar Aðalsteinsson fyrirlestur í Listaháskóla Íslands undir formerkjum ímyndaðs framtíðarfyrirtækis, Temper Genetics, en fyrirtækið býður foreldrum framtíðarinnar upp á hönnun og erfðabreytingu barna þeirra. Búi tekur sér far með Lestinni í dag og ræðir um hlutverk hönnuða í þessari nýju og ógnvænlegu veröld. Og í þættinum í dag verður einnig haldið áfram að fá fólk til mæla með bókum sem tala inn í okkar samtíma, með einum eða öðrum hætti, mæla með bókum sem við eigum að lesa hér og nú. Í dag er röðin komin að Braga Ólafssyni, rithöfundi.
    Táningsnornin Sabrina hefur snúið aftur á skjáinn eftir langt hlé. Áslaug Torfadóttir kynnti sér þessa nýju og myrkari útgáfu og segir frá í Lestinni.
    Og karlmenn sem færa stóla koma við sögu að gefnu tilefni í þættinum í dag.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    54 min
  • Hleranir, UK drill, 48 klst innilokun, Moon Safari
    Í Lestinni í dag verður hugað að myndlist, tónlist og hlerunum. Siðafár hefur oft fylgt tónlist á tuttugustu öldinni en í tilfelli rappsins segja sumir að raunveruleikinn hermi eftir listinni. Í Bretlandi hefur ný tónlist verið að ryðja sér til rúms, svokallað UK drill en um er að ræða grjóthart rapp um gengjastríð og götulíf. Þessi tónlist er mikið á milli tannanna hjá breskum yfirvöldum en sumum röppurum þar hefur einfaldlega verið bannað að gera tónlist. Þórður Ingi Jónsson ræðir í dag við skoska tónlistarblaðamanninn Bob Cluness um þessa nýju stefnu gangsterrapps. Listakonurnar Annar Margrét Ólafsdóttir og Eygló Hilmarsdóttir verða gestir þáttarins en í gær sýndu þær gjörningaverk í Kubbnum sem var afrakstur 48 klukkustunda innilokunar í sýningarýminu sjálfu. Virðing Alþingis kemur við sögu að gefnu tilefni. Og Davíð Roach Gunnarsson þurrkar rykið af 20 ára gömlu meistaraverki, hljómplötunni Moon Safari með frönsku hljómsveitinni Air.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Kynhlutlaus barnafatalína Celine Dion, Arnbjörg María Danielsen, Widow
    Tónlistarkonan Celine Dion kynnti nýlega kynhlutlausa barnafatalínu. Herferðin þaut eins og eldur í sinu um internetið. Fatalínan verður skoðuð nánar í þætti dagsins. Rætt verður við Jóhönnu Guðrúnu, söngkonu og sérlegan Celine Dion aðdáanda. Einnig verður í þætti dagsins rætt við Arnbjörgu Maríu Danielsen, listrænan stjórnanda viðburðar sem fram fer á laugardag, 1. desember, í tilefni af hundrað ára afmæli fullveldisins. Viðburðurinn ber yfirskriftina Íslendingasögur en um er að ræða nýstárlega sýningu í tali og tónum sem byggð er á sögum Íslendinga fyrr og nú. Arngunnur segir nánar frá viðburðinum í Lestinni í dag. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um nýjustu kvikmynd leikstjórans Steve McQueen, Ekkjur, sem fjallar um eiginkonur glæpamanna sem láta lífið í misheppnuðu ráni og skilja eftir stóra skuld. Einnig tekur hún fyrir kvikmyndina Erfingjana sem gerist í Paragvæ og fjallar um líf yfirstéttarinnar þar í landi og roskið lesbíupar sem einnig þarf að horfast í augu við skuldir. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur pistil um að sjá það sem koma skal, eða lesa framtíðina úr fortíðinni.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Framtíð hinna dauðu, Hnotubrjóturinn, flökkusjálf
    Efni Lestarinnar í dag: Hnotubrjóturinn og músakóngurinn, sígild saga E.T.A. Hoffmanns er jólaævintýri sem flestir kannast eflaust við enda saga sem hefur margoft verið aðlöguð að hvíta tjaldinu, sjónvarpsskjám, leikhús- og balletthúsum um víða veröld. Ævintýrið birtist fyrst á prenti fyrir meira en 200 árum en hefur aldrei komið út í íslenskri þýðingu fyrr en nú. Hulda Vigdísardóttir þýddi verkið úr frumtexta Hoffmanns og verður bókin gefin út í næstu viku. Hulda er gestur Lestarinnar í dag. Nokkuð hefur verið rætt að undanförnu um hótelbyggingu sem fyrirhugað er að reisa á svokölluðum Landsímareit í hjarta Reykjavíkurborgar. Ástæðan er einföld: á reitnum er gamall kirkjugarður, sá elsti í Reykjavík, svokallaður Víkurgarður. Sitt sýnist hverjum um framkvæmdirnar og á dögunum birti Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur grein undir yfirskriftinni Framtíð hinna dauðu þar sem hún fjallar meðal annars um þau lög sem gilda um kirkjugarða, grafarhelgi og friðhelgi hinna látnu. Lára verður gestur Lestarinnar í dag. Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson hugtakið flökkusjálf sem lýsir ákveðnum veruhætti eða lífstíl sem einkennist og mótast af millibilsástandi. Það er háþróaður kapítalismi sem laðar fram þetta fyrirbæri þó að nafn þess sé dregið af gamalkunnum hirðingjum. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    51 min